Fréttablaðið - 10.06.2011, Síða 24

Fréttablaðið - 10.06.2011, Síða 24
2 föstudagur 10. júní núna ✽ Afslöppun og dekur augnablikið Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Umsjón Sara McMahon Forsíðumynd Anton Brink Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@365.is og Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 blogg vikunnar H önnunarmerkin E-lab- el og Forynja hafa leitt saman hesta sína og hannað saman fata- línu. Línan kemur út í lok mán- aðarins og verður fáanleg í Top- shop og á heimasíðu E-label. Að sögn Ástu Kristjánsdóttur, annars eigenda E-Label, er línan blanda af hinum þægilegu snið- um E-Label og litríku munstri For- ynju og þykir útkoman skemmti- leg og lífleg. „Við höfum hingað til framleitt flestallt í svörtu en lang- aði að gera aðeins litríkari flík- ur fyrir sumarið. Við höfum áður unnið með hönnuðum á borð við Ásgrím Má, Hörpu Einarsdóttur, sem gerði Volcano-línuna, og Ernu Bergmann og núna langaði okkur í samstarf við Forynju,“ útskýr- ir Ásta. Hönnuðurinn Sara María Júlíudóttir stendur á bak við For- ynju og rekur einnig verslun við Laugaveg með sama nafni. Innt eftir því hvernig hafi geng- ið að sleppa sér lausri í litagleð- inni segir Ásta það hafa verið lítið mál. „Það var alls ekki erf- itt að færa sig út í meiri litagleði, ekki svona yfir sumartímann í það minnsta. Það var ákveðið frá upp- hafi að sniðin yrðu frá E-Label en að prentið yrði frá Söru þannig að samstarfið gekk rosalega vel. Við höfum líka alltaf verið mjög hrifn- ar af því sem Sara hefur gert í gegnum árin,“ út- skýrir Ásta og útilokar ekki áframhaldandi samstarf E-Label og Forynju. Línan er framleidd í takmörkuðu upplagi og fæst aðeins í Top- shop og á heimasíðu E- Label. Eldri línur E-Label má nálgast í Outlet- verslun þeirra við Laugaveg 27. - sm E-LABEL OG FORYNJA Í SUMARSAMSTARF: LITRÍKT OG SUMARLEGT Litrík hönnun Ásta Kristjánsdóttir, annar eigenda E-Label, segir nýju línuna vera samblöndu af þægindum og litagleði. GLIMRANDI Leikkonan Leighton Meester var á meðal gesta MTV- kvikmyndahátíðarinnar sem fram fór síðustu helgi. NORDICPHOTOS/GETTY Blúndur og dúllur Bloggsíðan www.fashion-canvas. com er stútfull af blúnduflíkum, hekluðum hippakjólum og stór- kostlegu skarti. Stúlkan sem sér um síðuna er augljóslega aðdáandi frjálslegrar hippatísku og er dugleg að setja inn mynd- ir sem fylla hana innblæstri. Myndirn- ar og fatnað- urinn sömuleið- is er sumarleg- ur og rómantískur og það er auð- velt að gleyma sér í myndunum. Slæmar stelpur Vefverslunin Nasty Gal heldur úti samnefndu bloggi sem gaman er að kíkja á. Bloggið má finna á slóðinni www.blog.shopnastygal. com. Síðan inniheldur myndir víða að, bæði gamlar og nýjar. Þar má meðal annars finna myndir af mús- unni Francoise Hardy og nokkr- ar myndir af Kate Moss ungri. N e m e n d u r á öðru ári í Ljós- myndaskólan- um opna í dag ljós- myndasýningu í húsnæði skólans við Hólmaslóð. Sýningin saman- stendur af verkefn- um annars árs nema og inniheldur tísku- ljósmyndir, portrett- myndir og listrænar myndir. Sýningin verður opnuð klukkan 17 í dag og stendur yfir til 19. júní næstkom- andi. Lokað verður á mánudag og þriðju- dag. Ljósmyndaskólinn er við Hólmaslóð 6. Ljósmyndanemar sýna: List og lífið í ljósmyndum Nemendasýning Nemendur við Ljósmyndaskólann sýna verk sín í dag. MYND/KOLBRÚN INGA BLÓMADÝRÐ Ilmvatn og gelkrem frá L‘occitane sem innihalda meðal annars bóndarósir. Kremið gefur húðinni mjúka áferð og ljúfan blómailm og ilmvatnið angar af blóm- um og blíðum sumardögum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.