Fréttablaðið - 10.06.2011, Page 54

Fréttablaðið - 10.06.2011, Page 54
10. júní 2011 FÖSTUDAGUR38 FÖSTUDAGSLAGIÐ „Let Me Entertain You með Robbie Williams kemur mér í föstudagsgírinn. Klassískt að byrja kvöldið á því.“ Andri Ómarsson er einn af aðalskipu- leggjendum Bestu útihátíðarinnar. „Ég er að fara að taka þetta að mér. Það er ekki búið að ákveða neitt annað,“ segir leikstjórinn Gunnar Björn Guðmundsson. Gunnar hefur tekið að sér að leikstýra Áramótaskaupi Sjón- varpsins, þriðja árið í röð. Hann fær því einstakt tækifæri til að loka þríleiknum, en fyrstu skaup- in hans tvö þóttu afar velheppnuð. „Þetta er mjög skemmtilegt verkefni og ólíkt öllu öðru,“ segir Gunnar. „Þetta fær mestu athygl- ina og gríðarlegt áhorf. Alveg brjálað, sem er mjög skemmtilegt.“ Síðustu tvö ár hafa Anna Svava Knútsdóttir, Ari Eldjárn, Halldór E. Högurður, Ottó Geir Borg og Sævar Sigurgeirsson verið í höf- undateymi Skaupsins, en Gunnar hefur ekki ráðið handritshöfunda til að skrifa Skaupið með sér í ár og segist raunar ekki vera búinn að ákveða neitt í þeim efnum. „Þetta er nýskeð og ekkert búið að hugsa meira út í þetta, enda árið ekki hálfnað,“ segir hann. „Nú á eftir að stilla þessu upp.“ En er árið búið að vera nógu viðburðaríkt hingað til fyrir gott Skaup? „Já, ég er að vísu ekki mikið búinn að spá í þetta. En jú, jú, það er alltaf eitthvað. Það verður verkefnið okkar að finna út úr því. Hvernig það liggur.“ - afb Leikstýrir þriðja Skaupinu í röð LOKAR ÞRÍLEIKNUM Gunnar hefur leikstýrt tveimur síðustu Áramótaskaupum og leikstýrir því þriðja í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Baltasar Kormákur hefur verið á ferð og flugi á þessu ári. Hann bjó í hálft ár í New Orleans þegar tökur á Hollywood-myndinni Contraband stóðu yfir. Svo kom hann heim í sveitasæluna í Skagafirði þar sem kvikmynd- in var klippt með Elísabetu Ronaldsdóttur og nú er hann fluttur út aftur, að þessu sinni til London til að sinna eftirvinnslu myndar- innar. „Ég verð hérna meira og minna í allt sumar. Ég er kominn með íbúð rétt hjá höfuð- stöðvum Working Title og verð að hljóðvinna myndina í Baker Street þar sem þeir eru með aðstöðu,“ segir Baltasar í samtali við Frétta- blaðið. Dvölin á Íslandi var ekki eingöngu nýtt til klippinga heldur notaði leikstjórinn tæki- færið og tók nokkra ramma fyrir Contraband hér á landi. „Ég þurfi að taka upp smá skipa- dót og fékk góða aðstoð frá Eimskip og svo var ég við neðansjávartökur á Þingvöllum. Þær nýtast mér reyndar bæði fyrir Contra- band og Djúpið. Maður reynir að koma með alla vinnu sem maður getur hingað heim,“ segir Baltasar en eftirvinnslufyrirtækið Framestore Reykjavik vinnur að myndinni eins og Fréttablaðið hefur greint frá. Contraband skartar stórstjörnunni Mark Wahlberg í aðalhlutverki ásamt Kate Beckins ale, Lukas Haas og Giovanni Ribisi. Myndin er endurgerð á íslensku kvikmynd- inni Reykjavik-Rotterdam og segir frá smyglara sem er plataður út í eitt smyglið enn. Contraband verður væntanlega frum- sýnd á næsta ári. - fgg Baltasar kemur sér fyrir í Baker Street Á FERÐ OG FLUGI Baltasar Kormákur er búinn að koma sér fyrir í London og verður þar, meira eða minna, í allt sumar. Hann er að hljóðvinna Contraband. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „Ég sagði ekki orð. Ég stóð bara eins og spýtukall með skiltið með bókstafnum,“ segir Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, sjónvarpskona á Stöð 2. Sigrún Ósk var fulltrúi Íslands í lokaþætti sjónvarpskonunnar Opruh Winfrey á dögunum. Fram- leiðendur þáttarins leituðu til kvenna víðs vegar að úr heiminum til að taka þátt í óvæntu atriði sem Oprah hafði ekki hugmynd um. Hlutverk Sigrúnar var að standa með skilti með bókstafnum „O“ við þekkt kennileiti í Reykjavík. „Ég hef ekki séð þáttinn sjálf en mér skilst að þetta hafi verið sýnt. Það voru fimmtán þúsund manns í myndverinu og ég reikna fastlega með því að ásamt heimsókn Toms Hanks, Beyoncé og Madonnu hafi þetta verið það sem kom henni skemmtilegast á óvart,“ segir Sig- rún Ósk og hlær. Alls skilaði Sigrún inn fimm- tán mínútna myndefni af sér með skiltið góða. Framleiðendur þáttar ins vildu greinilega hafa vaðið fyrir neðan sig því á end- anum var aðeins stutt brot af því notað. „Við skemmtum okkur kon- unglega við þetta, ég og Baldur myndatökumaður,“ segir Sigrún. Mikil leynd hvíldi yfir umræddu atriði og þurfti Sigrún að heita því að láta ekki nokkurn mann vita af upptökunum fyrir sýningu þátt- arins. Hún þurfti að fylla út blað með ýmsum upplýsingum um sig. Auk þess átti hún að segja frá því hvaða þýðingu Oprah hefði haft fyrir hana og líf hennar. „Ég sagði frá því að ég hefði verið sautján ára þegar ég sá fyrsta þáttinn en svo hefði ég ekki endurnýjað kynnin fyrr en ég var í fæðingar- orlofi í fyrra. Þá fékk ég til baka svar þar sem mér var þakkað fyrir að vera „loyal viewer“ síðan ég var sautján,“ segir Sigrún. hdm@frettabladid.is SIGRÚN ÓSK: ÞURFTI AÐ FARA MEÐ ÞETTA EINS OG MANNSMORÐ Kom fram í óvæntum kveðjuþætti Opruh Winfrey HEIÐRAÐI OPRUH WINFREY Sjónvarpskonan Sigrún Ósk Kristjánsdóttir kom fram í óvæntum kveðjuþætti fyrir Opruh Winfrey. Hún fékk verkefnið í gegnum Svanhildi Hólm Valsdóttur, framkvæmdastjóra þingflokks Sjálfstæðisflokksins, sem kom fram í þætti Opruh fyrir nokkrum árum eins og frægt varð. MYND/BALDUR HRAFNKELL 2.299,- ALLTAF ÓDÝRARI Boðið á alþjóðlega leiklistarhátíð í Írak Uppfærslu leikhússins í Konst- anz á verki Bertolt Brecht, Móðir Hugrekki, í leikstjórn Þorleifs Arnarssonar hefur verið boðið að taka þátt í fyrstu alþjóðlegu leiklistarhátíðinni í Írak. Hátíðin fer fram í höfuðborg Kúrdistan-héraðsins, Arbil, en Þorleifur sjálfur kemst að öllum líkindum ekki með, þar sem hann hefur mikilvægari hnöpp- um að hneppa hér heima. „Þetta er sett í sömu viku og ég eignast barn,“ segir Þorleifur í samtali við Fréttablaðið. Verkið fékk mjög sterk við- brögð þegar það var frum- sýnt í Þýskalandi; sumir voru hrifnir og hrósuðu því hástert, aðrir ekki. „Þetta er eitt af höf- uðverkum Brechts og gerist í Þrjátíu ára stríðinu. Ég tók hins vegar út allar tilvísanir í það stríð, þannig að þetta virkar sem eilífðarstríð.“ Uppfærsl- an þykir mjög myndræn, það rignir blóði allan tímann uppi á sviði og leikstjórinn segir að nú sé allt á fullu við að leysa tæknilegar útfærslur. Þorleif- ur viðurkennir að ekki standi öllum á sama í leikhópnum; tvær af leikkonum verksins séu til að mynda ákaflega smeykar við ferðalagið en ætli þó að láta slag standa. Þorleifur segir valið vera gríðarlega mikinn heiður og kveðst vera spenntur að heyra hvernig íbúar hins stríðs- hrjáða lands muni taka verkinu. „Kannski mun verkið snerta áhorfendur þarna mjög djúpt og kannski á það bara eftir að hljóma hjákátlega.“ - fgg TIL ÍRAKS Leiksýningu Þorleifs Arnarssonar, Móðir Hugrekki, hefur verið boðið á fyrstu alþjóðlegu leiklistarhátíðina í Írak. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.