Fréttablaðið - 21.06.2011, Side 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar – mars 2011
Þriðjudagur
skoðun 14
SÉRBLAÐ
í Fréttablaðinu
Allt
21. júní 2011
142. tölublað 11. árgangur
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
Plöntuskoðunarferð verður farin á Esjuna upp með Mógilsá
fimmtudaginn 23. júní klukkan 17. Elín Soffía Ólafsdóttir, pró-
fessor við lyfjafræðideild Háskóla Íslands, leiðir gönguna. Hún
mun skyggnast inn í ósýnilegan heim plöntuefnasambanda, sem
mörg hver má nota í lyf.
Dansarinn Ástrós Gunnarsdóttir kennir belgískum skrifstofumönnum alvöru pilates í Brussel:Varast íslenska hugsunarháttinn
ÚTSALA
Sölustaðir:
10 -11, Inspired í Flugstöðinni, Samkaup, Nettó, Kaskó, Fjarðarkaup, Skeljungsbúðirnar, Olís, N1,
Kaupfélag V- Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga,Verslunin Vísir, Bláa lónið, Hreyfing, Krambúðin,
Fiskbúðin Freyja, Melabúðin.
ÍSLENSK FÆÐUBÓTBITAFISKUR-næring fyrir líkama og sál
Nístandi
spenna
„Flottasti gaurinn
í þessum
bókmenntageira.“
STEPHEN KING
NÝ
KILJA
FÓLK „Þetta er rosalega skemmti-
legt ævintýri sem við erum að fara
út í og æðislegt að fá þetta tæki-
færi,“ segir Jóna G. Kolbrúnar-
dóttir menntaskólanemi, sem
ásamt stúlkunum í kórnum
Graduale Nobili tekur þátt í tón-
leikaferð Bjarkar sem hefst í dag.
Förinni er heitið til Manchester
á Englandi, þar sem Björk frum-
flytur nýjustu afurð sína, Bio-
philia, en alls ætlar hún að halda
sex tónleika á listahátíð þar í
borg. Platan er ekki komin út en
stefnt er á útgáfu með haustinu.
Fyrsta smáskífan, Crystalline,
kemur hins vegar út í lok
mánaðar ins. - áp / sjá síðu 30
Halda til Manchester í dag:
Taka þátt í tón-
leikum Bjarkar
SPENNTAR Þær Jóna G. Kolbrúnardóttir,
Kristín Sveinsdóttir og Guðrún Matt-
hildur Sigurbergsdóttir eru á leið til
Manchester með Björk.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HEILSA Hlaupastíll sem Smári
Jósafatsson hefur þróað vekur
mikla athygli á Englandi. Hlaupa-
stíllinn felur í sér að þegar fólk
hleypur verður álag á fætur, liði
og mjóbak rétt. „Ég var með sýn-
ingarstand á London Marathon-
sýningunni í apríl,“ segir Smári,
framkvæmdastjóri Smart Motion
Running. „Fulltrúar margra
hlaupatímarita og vefsíðna komu
til mín, spurðu út í þetta og leist
vel á.“
Í kjölfarið ákvað hann að halda
námskeið í London sem atvinnu-
hlauparar og þjálfarar hafa
meðal annarra sótt og líkað vel.
- mmf / sjá Allt
Rétt álag á fætur og liði:
Nýr hlaupastíll
vekur athygli
Hristir upp í Brussel
Ástrós Gunnarsdóttir kennir
Pilates í höfuðborg Evrópu.
allt 1
Upplifðu ótrúlega hluti
Bear Grylls hafði áhyggjur
af Jake Gyllenhaal á
Íslandi.
fólk 30
Hlakkar til hvers dags
Ásdís Eyjólfsdóttir blæs á
hundrað kerta afmælisköku
í dag.
tímamót 16
SAMGÖNGUR Áberandi mikill munur
er á frammistöðu Iceland Express
og helstu keppinauta í að halda
auglýsta áætlun. Þetta kemur fram
í tölum Isavia ohf. um Keflavíkur-
flugvöll.
Á alþjóðlega vísu er miðað við
að flugfélög hafi haldið áætlun ef
seinkun er undir fimmtán mínút-
um. Af 823 brottförum hjá flug-
félaginu Astraeus, sem annast flug
fyrir Iceland Express, stóðst 351,
eða 42,6 prósent, þennan mæli-
kvarða í júní, júlí og ágúst í fyrra.
Staðan er enn verri þegar litið er
til komutíma. Þá voru aðeins 29,7
prósent af vélum félagins innan
við fimmtán mínútum á eftir áætl-
un. Samanlagt átti Astraeus 1.644
lendingar og brottfarir á þessu
tímabili og voru aðeins 36,2 pró-
sent á áætlun.
Langstærsti keppinautur Ice-
land Express er Icelandair, sem
státar af mun betri tölfræði að
þessu leyti. Samanlagt átti Iceland-
air 4.963 lendingar og brottfarir á
fyrrnefndu tímabili. Samkvæmt
skilgreiningunni voru 73,8 prósent
af þeim flugum á áætlun.
Flugfélagið SAS, sem var með
áætlunarflug hingað til lands í
fyrrasumar, státar af mun meiri
stundvísi, en félagið hélt áætlun í
93,3 prósent tilvika.
Fram kom á fundi sam-
ræmingar nefndar í millilanda-
flugi í fyrrahaust að það skapaði
vandamál hve illa Astraeus stæð-
ist áætlanir og hve afleitlega það
stæði sig í að koma upplýsingum
um tafir til flugmálayfirvalda.
Svör við fyrirspurn um þessi
mál fengust ekki hjá Iceland
Express í gær, en samkvæmt vef
Keflavíkurflugvallar eru seink-
anir á áætlun félagins viðvarandi
þessa dagana. - gar / sjá síðu 6
Iceland Express seint í
64 prósentum tilvika
Yfirlit um brottfarir og lendingar á Keflavíkurflugvelli frá í fyrrasumar sýnir að
seinkanir á flugi Iceland Express voru miklu meiri en hjá öðrum. Félagið fékk
ákúrur vegna upplýsingaskorts. Flugfélagið SAS hélt áætlun í 93,3% tilvika.
RÓLEGHEIT Í dag verður fremur
hæg NA-læg eða breytileg átt
víðast hvar. Skúrir SV- og V-lands
seinnipartinn. Hiti 4-14 stig.
VEÐUR 4
7
11
8
7
9
SVÍFÐU SEGLUM ÞÖNDUM Á sumrin njótum við náttúrunnar og hvers kyns útivistar. Krakkarnir
í Nauthólsvík létu sitt ekki eftir liggja þrátt fyrir að sólin hafi verið horfin bak við ský í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
Ekkert óvænt
Úrslitin í bikarkeppni KSÍ
í gær voru eftir bókinni.
Keflavík, Þór og Fjölnir
komust áfram.
sport 26
VÍSINDI Höf jarðar eru í verra
ástandi en áður hefur verið talið,
að mati hóps sérfræðinga. Í nýrri
skýrslu er varað við því að mikil
hætta sé á að tímabil fjölda útdauða
meðal sjávarlífvera renni upp í
fyrsta sinn á sögulegum tíma.
Ofveiði, mengun og loftslagsbreyt-
ingar eru sagðar meðal orsaka
þessa vanda, sem sé þegar farinn
að hafa áhrif á mannkynið.
Sérfræðingahópurinn starfaði
undir merkjum IPSO, alþjóðlega
verkefnisins um stöðu sjávar. Í
honum voru vísindamenn úr fjölda
greina, þar á meðal sérfræðingar
um kóralrif, eiturefnafræðingar og
sérfræðingar í fiskistofnum.
„Niðurstöðurnar eru sláandi,“
segir Alex Rogers, framkvæmda-
stjóri IPSO. „Þegar við mátum
samanlögð áhrif mannkynsins á
höfin áttuðum við okkur á því að
staðan er mun alvarlegri en ætla
má þegar litið er afmarkað á hvern
þátt.“
Niðurstöður skýrslunnar verða
kynntar síðar í vikunni í höfuð-
stöðvum Sameinuðu þjóðanna
í New York. Þá verða tillögur
skýrsluhöfunda einnig ræddar en
meðal þeirra má nefna að komið
verði í veg fyrir ofveiði af meiri
krafti en áður og að losun eitur-
efna og plasts í höfin verði minnk-
uð verulega. - mþl
Vísindamenn hafa miklar áhyggjur af breytingum á vistkerfi sjávar:
Ástand sjávar fer ört versnandi