Fréttablaðið - 21.06.2011, Síða 20
21. JÚNÍ 2011 ÞRIÐJUDAGUR2 ● kynning ● kaffi
„Þessi litla baun býr yfir svo miklu
meira en bragði og ilmi að heil ævi
dugir ekki til að koma því öllu á
framfæri,“ segir Þórður Þórisson,
markaðsstjóri hjá Gevalia á Íslandi,
og vitnar þar í Giovanni, ástríðufullan
aðdáanda kaffibaunarinnar og
kaffisérfræðing hjá Gevalia.
„Við hjá Gevalia erum nú að markaðssetja
tvær nýjar og afar spennandi blöndur af heil-
um kaffibaunum. Þær fást fyrir flestar gerð-
ir af uppáhellingu, allt frá pressukönnu og
venjulegum kaffivélum til espresso,“ segir
Þórður Þórisson, markaðsstjóri Gevalia á Ís-
landi, um helstu nýjungar hjá Gevalia. „Stöð-
ugt fleiri kjósa heilar kaffibaunir og mala
í hverja uppáhellingu, ýmist í sjálfvirkri
könnu eða kvörn. Til viðbótar er Gevalia-
kaffið komið í nýjar, vandaðar, umbúðir –
þyngdin er hin sama en pakkningarnar nett-
ari.“
Þórður segir hverja blöndu fá sína sér-
stöku meðhöndlun í brennslu eftir sérkenn-
um hennar en að sameigin-
legt með öllu Gevalia-kaffi
sé ríkt jafnvægi í grunn-
bragðinu þar sem fyll-
ing og mýkt leika ljúflega
saman og kaffið er laust
við rangt sýrustig.
„Ég vel Gevalia-kaffið
mitt eftir húmor dags-
ins”, segir Þórður, spurð-
ur um uppáhaldskaffið.
„Allar blöndurnar eru mitt
uppá hald – það fer eftir
húmornum í það skiptið
hverju ég sækist eftir. Það
er nefnilega blæbrigða-
munur á bragði, brennslu,
mýkt, ilmi eða skerpu í
Gevalia-kaffi. Hin þekktu
gæði Gevalia skila sér allt-
af í gegn. Ég get til dæmis
valið mér kraftmeira og ákveðnara kaffi
þegar sá gállinn er á mér en mýkra og meira
léttleikandi þegar svo ber undir. Kaffið frá
Gevalia er alltaf eins og sinfónía, það bregð-
ur fyrir mörgum tónum sem leika á bragð-
laukana og maður er alltaf að njóta.“
„Nýju tegundirnar tvær eru suðurítalska
espresso-blandan hans Giovanni í heilum
baunum, sem þykir einstaklega heillandi.
Giovanni er ástríðufullur áhugamaður um
kaffi og staðráðinn í að koma sjarmanum,
dulúðinni, gleðinni og sögunni sem fylgir
þessari litlu baun á framfæri. Eftir honum
er haft að þessi litla baun búi yfir svo miklu
meira en bragði og ilmi að heil ævi dugi
ekki til að koma því öllu á framfæri. Suður-
ítalska espresso-blandan er brennd eftir
æva gamalli ítalskri hefð, unaðsleg sinfónía,
dökk og seiðandi með mjúkum sérkennum og
löngu eftir bragði. Kjarkmikill espresso með
flottri mýkt. Espresso-blandan er auðvitað
afbragðsgrunnur í cappuccino, kaffi latte,
macchiato og ýmsa aðra kaffidrykki.
Hin nýja tegundin er Ebony-baunir, sem
ætlaðar eru fyrir alhliða uppáhellingu. Það
er mjúkt og fyllt kaffi
með þessu sjarmerandi
Gevalia-bragði. Þetta
eru sérvaldar baunir frá
hágæðabúgörðum í Suð-
ur-Ameríku og Austur-
Afríku sem hafa fengið
sérstaka meðhöndlun og
örlítið dekkri brennslu
sem dregur fram eigin-
leika þeirra. Árangurinn
er kraftmikil, ilmandi
fylling og þéttur keim-
ur með dásamlegu eftir-
bragði.
Það er alltaf hægt að
treysta á Gevalia hvað
gæði, sjarma og bragð
varðar. Þar að auki rækt-
ar Gevalia garðinn sinn
af alúð og færir viðskipta-
vinum sínum fjölbreytni
og spennandi nýjungar
sem gaman er að njóta.“
Heil sinfónía fyrir bragðlaukana
Þórður Þórisson, markaðsstjóri hjá Gevalia á Íslandi, segir blæbrigði Gevalia-kaffisins eins og bragð sinfóníu.
MYND/VALLI
● Halva er heiti á indverskum ábæti, litlum kökustykkjum,
sem er kjörið að spreyta sig á heima í eldhúsi. Þessi
ljúffengi eftirréttur á miklum vinsældum að fagna í Asíu
og víðar og bragðast einstaklega vel með rjúkandi heitum
kaffibolla. Njótið!
Framandi freistingar
Ebony-baunir fá sérstaka
meðhöndlun og örlítið dekkri
brennslu.
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Sigríður
Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is
s. 512 5462 og Þórdís Hermannsdóttir thordish@f365.is s. 512 5447..
2 bollar af möndlum
2 bollar af mjólk
1½ bolli sykur
örlítið af saffrani
¼ bolli af ósöltu smjöri
skvetta af matarlit
Látið afhýddar möndlur liggja í heitu
vatni í um það bil fimmtán mínútur.
Myljið möndlurnar, blandið saman við
mjólk og hnoðið í þykkni. Vætið saffran
í mjólk (tvær matskeiðar). Hitið mat-
skeið af ósöltu smjöri á pönnu. Bætið við
möndlum, sykri og saffrani ásamt mjólk
og hrærið stöðugt í. Bætið við restinni
af ósalta smjörinu og matarlit. Hrærið
áfram þar til blandan verður þykk og
hellið því næst í olíuborið mót. Skreytið
með möndlum og skerið í bita. Berið
fram ásamt kaffi.
N
O
RD
IC
PH
O
TO
S/
A
FP
Þennan indverska
ábæti er tilvalið að
prófa.