Fréttablaðið - 21.06.2011, Page 30

Fréttablaðið - 21.06.2011, Page 30
21. júní 2011 ÞRIÐJUDAGUR22 22 menning@frettabladid.is Tónlist ★★★★★ Vetrarferðin eftir Schubert Kristinn Sigmundsson og Víkingur Heiðar Ólafsson í Eldborg í Hörpu. Tveir karlar í kjólfötum gengu fram á sviðið í Eldborginni á fimmtudagskvöldið. Annar þeirra var ungur og mjór, hinn eldri og sverari. Voru þetta Gög og Gokke? Nei, þetta voru þeir Kristinn Sigmundsson söngvari og Vík- ingur Heiðar Ólafsson píanóleik- ari. Annar með mikla reynslu af því að syngja Vetrarferðina eftir Schubert, hinn að takast á við að spila hana í fyrsta sinn opinber- lega. Það voru athyglisverðar and- stæður. Og spennandi! Kristinn hefur hingað til bara sungið með einum píanóleikara hér á landi, Jónasi Ingimundarsyni. Maður þekkir hann varla öðruvísi. Auðvitað kemst maður ekki hjá því að bera þá saman, Jónas og Víking. Ég hef oftar en einu sinni heyrt Jónas spila Vetrarferðina. Hann er miklu ljúfari og mýkri en hefur ekki sömu tæknina. Hins vegar er Víkingur afburða píanisti, tækni hans gerir að verkum að hann getur leyft sér hvað sem er. Það virkar allt, einhvern veginn. Vetrarferðin fjallar um mann með brostið hjarta er sér aðeins dauðann fram undan á kaldri vetrar göngu. Schubert samdi hana rétt áður en hann lést. Hann not- aði síðustu augnablikin á banabeði sínum til að fara yfir handritið að seinni hluta verksins. Fyrri hlutinn hafði verið gefinn út skömmu áður. Vetrarferðin samanstendur af 24 ljóðum. Þau eru ýmist minn- ingar frá ljúfu sumri þegar ástin blómstraði, eða lýsingar á sorg og vonleysi vetrarins. Píanóleikarinn er í afar mikilvægu hlutverki. Í tónum píanósins er stemning hvers ljóðs undirstrikuð með myndrænu tónmáli. Alls konar andstæður er þar að finna. Þessar andstæður voru skýrar hjá Víkingi. Snerpan í píanóleikn- um var meiri en maður á að venj- ast. Það gerði tónlistina óvanalega safaríka. Mýkri kaflar voru líka afar fallegir. Litbrigðin voru ótelj- andi, ljóðrænan heillandi. Útkoman var í stuttu máli einhver mest sann- færandi píanótúlkun á verkinu sem ég hef heyrt. Kristinn var líka frábær. Hann náði að miðla áhrifamiklum skáld- skapnum með breiðu tilfinningalit- rófi, allt frá ljúfri nostalgíu, óljósri von, djúpri sorg, vonleysi og loks dauða. Og styrkleikahlutföllin á milli hans og Víkings voru í góðu jafnvægi. Eins og áður sagði var sam- bandið á milli þeirra sérlega skemmtilegt. Annar ungur, hinn gamall; annar ákafur og snöggur upp á lagið, hinn innhverfur og lífs- leiður (að því er virtist). Þetta skap- aði sterka listræna heild sem gerði tónlistina ljóslifandi. Þráðurinn slitnaði aldrei. Flæðið er einmitt svo mikilvægt í tónlist Schuberts og það var alveg óheft hér. Þetta voru frábærir tónleikar. Jónas Sen Niðurstaða: Magnaðir tónleikar með Kristni Sigmundssyni og Víkingi Heiðari. Safarík og spennandi túlkun sem lengi verður í minnum höfð. Tónlistin varð ljóslifandi Vorhefti menningarritanna Tímarits Máls og menningar, Skírnis og Spássíunnar eru komin út. Í Tímariti Máls og menningar kennir ýmissa grasa, til dæmis eru þar ljóð eftir Þorstein frá Hamri og Braga Ólafs- son, Ástráður Eysteinsson rýnir í ævi- verk Thors Vilhjálms sonar og Haukur Ingvars- son ræðir við Kristínu Eiríksdóttur. Gunnar Karlsson sagnfræðing- ur leggur orð í belg í umræðuna um upphaf mannaferða í Skírni og hrekur með dæmum þá stað- hæfingu að sagnfræðingar ríg- haldi í Ara fróða sem aðalheim- ild fyrir landnáminu. Að auki má finna greinar eftir Guðna Elísson um ástarsögur og hugleiðingar Salvarar Nordal um stjórnlaga- ráð. Þá minnist Sigurður Pálsson Thors Vilhjálmssonar. Bókmenntatímaritið Spássían er að þessu sinni helgað vísinda- skáldskap. Stiklað er á stóru um sögu þessarar bókmenntagreinar og rýnt í ýmsa afkima hennar. Auður Aðalsteinsdóttir og Ásta Gísladóttir eru ritstjórar Spássí- unnar. - bs Þrjú ný hefti komin út THOR VILHJÁLMSSON VÍKINGUR HEIÐAR OG KRISTINN Þessir ólíku tónlistarmenn mynduðu sterka listræna heild, sem gerði tónlistina ljóslifandi að mati gagnrýnanda. Blóðdropinn, glæpasagnaverðlaun Hins íslenska glæpafélags, verður afhentur í aðalsafni Borgarbóka- safnsins í Grófinni í dag. Níu glæpasögur eru tilnefndar í ár: Furðustrandir eftir Arnald Indriðason; Morgunengill eftir Árna Þórarinsson; Runukrossar eftir Helga Ingólfsson; Fyrirgefn- ing eftir Lilju Sigurðar dóttur; Martröð millanna eftir Óskar Hrafn Þorvaldsson; Snjóblinda eftir Ragnar Jónsson; Ég man þig eftir Yrsu Sigurðardóttur; Mörg eru ljónsins eyru eftir Þórunni Erlu Valdimarsdóttur; og Önnur líf eftir Ævar Örn Jósepsson. Athöfnin hefst klukkan 17 og boðið verður upp á léttar rauðar veitingar. - bs Blóðdropinn afhentur í dag LILJA SIGURÐARDÓTTIR Tilnefnd fyrir bókina Fyrirgefning. DJÚPIÐ VERÐLAUNAÐ Útvarpsleikhús RÚV hlaut norrænu útvarpsleikhúsverðlaunin 2011 fyrir útvarpsleikritið Djúpið eftir Jón Atla Jónasson, sem jafnframt er leikstjóri verksins. Viðar Eggertsson, stjórnandi Útvarpsleikhússins, tók við verðlaununum. Djúpið hlaut einnig Grímuna sem útvarpsverk ársins á dögunum. Verkið var frumflutt í Útvarpsleikhúsinu 12. september síðastliðinn og var leikið af Ingvari E. Sigurðssyni. norra na husid e - -

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.