Fréttablaðið - 21.06.2011, Page 34
21. júní 2011 ÞRIÐJUDAGUR26
sport@frettabladid.is
TÓMAS INGI TÓMASSON var í gær rekinn sem þjálfari 1. deildarliðs HK í knattspyrnu. HK er í neðsta sæti
deildarinnar með 1 stig eftir 7 leiki. Við starfi hans tekur Ragnar Gíslason, yfirþjálfari yngri flokka HK. Ragnar stýrir
HK í kvöld gegn Grindavík í Valitor-bikarnum. Þá mætast einnig Valur og ÍBV í keppninni, sem og Þróttur og Fram.
FÁÐU GÓÐAN
SVEFN Í SUMAR
TILBOÐ TILBOÐ
SUMARIÐ ER TÍMI ÚTIVISTAR: SVEFNPOKAR FRÁ 7.990 KR.
TILBOÐ
NÁÐU ÁRANGRI. ÚTILÍF – HOLTAGÖRÐUM. GLÆSIBÆ. KRINGLUNNI. SMÁRALIND. WWW.UTILIF.IS
FÓTBOLTI Í gær var dregið í Evrópu-
keppnunum í fótbolta og þar lentu
Íslandsmeistarar Breiðabliks gegn
norska liðinu Rosenborg í annarri
umferð Meistaradeildarinnar.
Liðin mætast fyrst í Þrándheimi
12. eða 13. júlí og svo á Kópavogs-
velli viku síðar.
KR mætir færeyska félaginu
ÍF frá Fuglafirði í fyrstu umferð
Evrópudeildarinnar. Í sömu
keppni mætir ÍBV skoska liðinu St.
Patrick ś, en ÍBV mun spila heima-
leik sinn á Vodafone-vellinum.
Fyrri leikir liðanna fara fram
30. júní. ÍBV byrjar heima en KR í
Færeyjum.
Ef KR kemst áfram mætir liðið
Zilina frá Slóvakíu í næstu umferð
en ÍBV mun annað hvort mæta
Koper frá Slóveníu eða Karagandy
frá Kasakstan, takist því að kom-
ast áfram.
FH kemur inn í keppnina í ann-
arri umferð og mætir þar sterku
liði Nacional frá Portúgal. Fyrri
leikur liðanna fer fram á Kapla-
krikavelli þann 14. júlí og seinni
leikurinn ytra viku síðar. - hbg
Dregið í Evrópukeppnum:
Blikar mæta
Rosenborg
NOREGUR Breiðablik fer í stutt ferðalag.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Þórsarar frá Akureyri
eru komnir áfram í Valitor-bikar-
keppninni eftir 3-1 sigur á Víking-
um á Þórsvellinum í gærkvöld.
Fyrsta mark leiksins, sem
Magnús Þormar, markvörður Vík-
inga, skoraði í eigið mark, þótti
nokkuð vafasamt og voru Víkingar
gríðarlega ósáttir við að það fengi
að standa.
Gísli Páll Helgason, leik maður
Þórs, átti þá langt innkast inn
að marki og þar ætlaði Magn-
ús Þormar að kýla boltann frá,
umkringdur af leikmönnum, en
virtist missa jafnvægið í loftinu
og kýldi boltann rakleiðis í sitt
eigið mark. Magnús lá óvígur eftir
og leikmenn Víkinga mótmæltu
dómnum harðlega en án árangurs,
markið stóð.
„Mér fannst þetta í það minnsta
vafasamt svo ekki sé nú meira sagt
en hins vegar get ég ekki sagt að
mér finnist þetta mark ráða úrslit-
um í leiknum, það er langt því frá
að við höfum tapað þessum leik út
af þessu atviki,“ sagði Pétur Georg
Markan, leikmaður Víkinga, um
atvikið eftir leik.
Í upphafi seinni hálfleiks náðu
Víkingar að jafna og þar var á
ferðinni Halldór Smári Sigurðsson
með glæsilegu langskoti af um 30
metra færi sem söng í marknetinu
hjá Þór.
Sveinn Elías Jónsson kom Þór
aftur yfir eftir að skot Jóhanns
Helga Hannessonar fór af varnar-
manni og barst til Sveins, sem var
einn óvaldaður á fjærstöng og setti
boltann örugglega í markið.
Víkingar reyndu að pressa í
lokin og fjölguðu í sókninni en við
það opnaðist vörn þeirra og það
nýtti Gunnar Már Guðmundsson
sér til fullnustu þegar hann skor-
aði þriðja mark Þórs í uppbótar-
tíma með skalla af stuttu færi.
Úrslitin voru nokkuð sanngjörn
þrátt fyrir að Víkingar væru meira
með boltann. - jsj
Umdeilt opnunarmark er Þór lagði Víking að velli:
Þórsarar sem fyrr
sterkir á heimavelli
BARÁTTA Ekkert var gefið eftir í leik liðanna en heimamenn voru sterkari.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Keflavík tryggði sér sæti
í átta liða úrslitum Valitor-bikars-
ins í gærkvöld með góðum 3-1 sigri
á fyrstu deildar liði Hauka.
Leikurinn var bráðfjörugur og
skemmtilegur en Keflavík fékk
sannkallaða óskabyrjun þegar
Guðmundur Steinarsson skoraði
strax á fjórðu mínútu. Andri Steinn
Birgisson bætti öðru marki við á
21. mínútu og allt virtist stefna í
stórsigur úrvalsdeildarliðsins.
„Við töpum leiknum í upphafi,
úrvalsdeildarlið láta ekki svona
færi framhjá sér fara. Þeir refsa
okkur grimmilega fyrir arfas-
laka byrjun en eftir þessar fyrstu
25 mínútur finnst mér við vera
síst slakara liðið. Það dugar samt
ekki, þar sem við skorum færri
mörk en þeir og þess vegna erum
við úr leik. Ég er sáttur við seinni
hálfleikinn og lokin á þeim fyrri
en byrjunin var arfaslök,“ sagði
Magnús Gylfason, þjálfari Hauka,
eftir leikinn.
Haukar voru þó ekki tilbúnir að
játa sig sigraða þótt staðan væri
svört. Þeir minnkuðu muninn á
33. mínútu þegar þriðja skalla-
mark leiksins leit dagsins ljós, en
þar var Hilmar Trausti Arnarsson,
fyrirliði Hauka, að verki. Haukar
voru síst lakari aðilinn fram að
hálfleik og hófu seinni hálfleikinn
af krafti. Þeir hefðu hæglega getað
jafnað metin ef ekki hefði verið
fyrir frábæra markvörslu Ómars
Jóhannssonar sitt hvoru megin við
hálfleikinn.
„Við héldum yfirvegun og ró
á þeim kafla þegar þeir herja að
okkur og náðum svo að setja þriðja
markið sem gaf okkur trúna og
færi á að spila þéttir út leikinn,“
sagði Willum Þór Þórsson, þjálf-
ari Keflavíkur, að leiknum lokn-
um, en þriðja mark Keflavíkur
kom þegar korter var eftir. Jóhann
Birnir Guðmundsson nýtti sér þá
skógarhlaup Daða Lárussonar
eftir langa sendingu og skoraði af
miklu öryggi.
Þetta var fyrsti leikur Kefla-
víkur í þrjár vikur og var Will-
um smeykur við ryð í sínu liði en
byrjun leiksins var þó fljót að róa
taugar hans. „Við erum búnir að
vera í langri leikjahvíld og maður
var sannast sagna smeykur við
að við yrðum smá ryðgaðir. Við
náðum að vega það upp með fersk-
leika og hugarfari í byrjun, héld-
um ró og yfirvegun og vorum
þéttir. Við nýttum okkur forskotið
sem við náðum vel,“ sagði bros-
mildur Willum, sem var ekki síst
ánægður að vera kominn aftur út
á völl eftir langt frí.
„Við viljum bara spila fótbolta á
sumrin og nógu mikið af leikjum.“
- gmi
Óskabyrjun Keflavíkur rotaði Hauka
Tvö mörk á fyrstu tuttugu mínútunum lögðu grunninn að sigri Keflavíkur gegn Haukum í sextán liða
úrslitum Valitor-bikarsins í gær. Leikurinn var bráðfjörugur og skemmtilegur en gestirnir voru sterkari.
ÁKVEÐNIR Haukar áttu sína spretti í leiknum en höfðu ekki erindi sem erfiði að
þessu sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
Valitor-bikar karla
Haukar-Keflavík 1-3
0-1 Guðmundur Steinarsson (4.), 0-2 Andri
Steinn Birgisson (21.), 1-2 Hilmar Trausti Arnars-
son (33.)
Þór-Víkingur 3-1
1-0 Magnús Þormar, sjm. (22.), 1-1 Halldór Smári
Sigurðsson (49.), 2-1 Sveinn Elías Jónsson (75.),
3-1 Gunnar Már Guðmundsson (90.+3.).
Fjölnir-Hamar 3-2
1-0 Illugi Þór Gunnarsson (30.), 2-0 Kristinn
Sigurðsson (39.), 2-1 Arnþór Kristinsson (48.),
3-1 Illugi Þór Gunnarsson, 3-2 Ragnar Valberg
Sigurjónsson (57.)