Fréttablaðið - 29.06.2011, Side 4
29. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR4
GENGIÐ 28.06.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
220,4307
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
115,68 116,24
184,68 185,58
165,07 165,99
22,127 22,257
21,165 21,289
17,831 17,935
1,4305 1,4389
183,91 185,01
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
11
-0
56
8
/
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
...hvert er
þitt eftirlæt
...endilega f
Hrísmjólkin frá MS fæ
ljúffengum bragðtegu
rifsberja- og hindberj
og gömlu góðu kanils
IÐNAÐUR „Framtíðarsýnin byggir á
því að nýjar virkjanir verði byggð-
ar. Ef ekkert verður byggt þá verð-
ur sagan önnur. En það verður
ekkert slæm saga,“ segir Ásgeir
Jónsson, sérfræðingur hjá fjár-
málafyrirtækinu GAMMA og einn
höfunda skýrslu um efnahagsleg
áhrif af rekstri og arðsemi Lands-
virkjunar til ársins 2035.
Í skýrslunni kemur fram að áætl-
aðar arðgreiðslur Landsvirkjunar
til ríkissjóðs geti numið allt frá
30 til 112 milljörðum króna á ári.
Allt fer það eftir því hvenær ráðist
verði í nýjar framkvæmdir, hvort
sæstrengur verði lagður héðan til
meginlands Evrópu, þróun raf-
orkuverðs, nýjum samningum um
raforkusölu og endurnýjun á eldri
samningum. Hæsta arðgreiðslan er
álíka há og hið opinbera leggur til
allra framhalds- og háskóla lands-
ins, menningar, íþrótta- og trúmála
auk löggæslu, dómstóla og fangelsa.
Hörður Arnarson, forstjóri
Landsvirkjunar, hefur áður boðað
þessa sömu framtíðarsýn. Hann
segir hana öðru fremur mikilvæga
svo hægt verði að ákveða hvert
stefna eigi með Landsvirkjun.
Framtíðarsýn Landsvirkjunar
gerir sem fyrr ráð fyrir tvöföldun
raforkuframleiðslu á næstu fimm-
tán árum, niðurgreiðslu skulda og
að arðgreiðslur hefjist fyrir árið
2020. Hörður segir margar forsend-
ur verða að ganga upp til að fram-
tíðarsýn Landsvirkjunar geti orðið
fyllilega að veruleika.
Hann bendir á að Landsvirkjun
sé enn of skuldsett og því sé ein
forsendan sú að þegar viðunandi
FRÁ KYNNINGU SKÝRSLUNNAR Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir
áætlanir um fjármögnun virkjanaframkvæmda Landsvirkjunar næstu fimmtán
árin ekki hafa verið lagðar fram. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Framtíðarsýn byggir
á nýjum virkjunum
Arðgreiðslur frá Landsvirkjun gætu fjármagnað alla háskóla landsins, löggæslu
og dómstóla. Margar forsendur þurfa að ganga upp, segir forstjóri fyrirtækisins.
Ekki hafa verið gerðar áætlanir um fjármögnun nýrra virkjanaframkvæmda.
Í skýrslu GAMMA um efnahagsleg áhrif af rekstri og arðsemi Landsvirkj-
unar til ársins 2035 eru nokkrar forsendur.
■ Gert er ráð fyrir að Landsvirkjun muni nýta handbært fé frá rekstri til að
greiða niður eldri lán og draga úr skuldsetningu.
■ Gert er ráð fyrir að álag á eldri lánum haldist óbreytt og að álag á nýjum
lánum verði svipað og í síðustu útgáfum Landsvirkjunar og í samræmi við
nýja skuldabréfaútgáfu ríkissjóðs.
■ Við mat á arðgreiðslugetu er gert ráð fyrir að nettóskuldir verði fjórfaldur
rekstrarhagnaður – svipað og hjá sambærilegum fyrirtækjum erlendis.
Nokkrar forsendur
skuldahlutfalli verði náð muni
arður verða greiddur út. Í skýrsl-
unni er gert ráð fyrir að ríkissjóð-
ur fái fyrstu arðgreiðsluna eftir tvö
ár og verði hún um fjórðungur af
landsframleiðslu.
Árið 2021 munu þær aukast hratt
og gætu farið í um fjögur til sex
prósent af landsframleiðslu ára-
tug síðar þegar fyrirhuguðu fram-
kvæmdatímabili Landsvirkjunar
lýkur, segir Hörður.
Ekki hafi verið lagðar fram
áætlanir um fjármögnun virkjana-
framkvæmda þótt þeirra sé getið
í skýrslu GAMMA. „Við gerum
aðeins ráð fyrir að hafa aðgang að
fjármagninu þegar þar að kemur,
það er sérstakt verkefni,“ segir
Hörður. jonab@frettabladid.is
E.coli bakterían var ranglega sögð
veira í fréttaskýringu um áhrif hennar
á spænska grænmetisbændur í
Fréttablaðinu á mánudag.
LEIÐRÉTTING
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
29°
25°
29°
25°
25°
25°
23°
23°
26°
20°
30°
27°
30°
23°
22°
18°
23°
11
Á MORGUN
Hæg breytileg átt
FÖSTUDAGUR
Byrjar hægt en hvessir
með deginum
5
7 7
6
8
13
11
11
8
6
4
5
5
6 4
5
3
4
2
4 5
10
11
11
7
8
15
9
11
11
11
HLÝNAR N-TIL
Væta norðanlands
í dag og örlítið á
morgun en ef allt
gengur að óskum
verður bjart og
hlýtt norðanlands á
föstudag. Þangað
til verður fremur
bjart sunnanlands
en fer að rigna
sunnantil á föstu-
dag. Hvessir einnig
á föstudaginn á
Suður- og Norð-
vesturlandi.
Snjólaug
Ólafsdóttir
veður-
fréttamaður
FERÐAÞJÓNUSTA Stjórnendur Kefla-
víkurflugvallar hafa nú fjarlægt
auglýsingar dýraverndunarsam-
takanna International Fund for
Animal Welfare (IFAW). Samtök-
in gagnrýna stjórnendur vallarins
harðlega og saka þá um ritskoðun.
Lögmenn IFAW skoða nú hvort
Keflavíkurflugvöllur eigi að
endur greiða samtökunum um 550
þúsund krónur sem greiddar voru
fyrir fjögurra mánaða samning
um birtingu auglýsinganna.
Að sögn IFAW hefur Hlynur Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri Leifs-
stöðvar, hringt tvívegis í samtök-
in og sett þeim úrslitakosti; breyta
auglýsingunum eða fjarlægja þær.
Við því brugðust samtökin ekki.
Auglýsingarnar eru hluti af
átaki gegn áti á hvalkjöti og er
þeim beint að ferðamönnum. Sam-
tök hvalaskoðunarfélaga á Íslandi
voru með IFAW í átakinu.
IFAW saka stjórnendur Kefla-
víkurflugvallar um ritskoðun á
auglýsingum sem búið er að greiða
fyrir. Þeir hafa farið fram á það
við stjórnendur Leifsstöðvar að
fá frekari útskýringar á meint-
um breyttum forsendum, en segja
engin svör hafi borist. - sv
Dýraverndunarsamtök krefja Keflavíkurflugvöll skýringa á brotthvarfi auglýsinga:
Auglýsingar hvalavina horfnar
EKKI BORÐA HVAL Auglýsingarnar í
Leifsstöð hvöttu fólk til að hitta hvalinn
frekar en að leggja hann sér til munns.
KENÍA Samtökin Barnaheill –
Save the Children gangast fyrir
neyðar aðstoð til að hjálpa börnum
í Austur-Afríku sem eru í hættu
vegna yfirvofandi hungursneyð-
ar. Í tilkynningu frá Barnaheill-
um segir að um 800 börn bætist á
hverjum degi við hóp flóttafólks
í Keníu. Fólkið flýr mikla þurrka
og versnar ástandið stöðugt. - þj
Neyðarástand að skapast:
800 börn flýja
neyð daglega
BÁG STAÐA Óttast er um hag barna
í Dadaab-flóttamannabúðunum og
gangast Barnaheill fyrir neyðaraðstoð
þeim til hjálpar. MYND/BARNAHEILL
EFNAHAGSMÁL Seðlabanki Íslands
keypti í gær 61,74 milljónir
evra, sem jafngilda 12,97 millj-
örðum króna, í seinna skrefi
fyrsta gjaldeyrisútboðs bank-
ans.
Útboðið er liður í losun gjald-
eyrishafta en í fyrra skrefinu
gaf Seðlabankinn eigendum af-
landskróna færi á að losna við
þær. Þá keypti bankinn 13,37
milljarða króna.
Sem greiðslu fyrir gjaldeyr-
inn fá kaupendur afhent verð-
tryggð ríkisverðbréf. - mþl
Losar sig við aflandskrónur:
Seðlabankinn
kaupir evrur
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært mann sem er gefið að sök
að hafa nauðgað tveimur ungum
konum. Hæstiréttur framlengdi í
gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir
honum til 22. júlí.
Maðurinn er talinn hafa nauðg-
að nítján ára stúlku í heimahúsi og
beitt hana öðru ofbeldi. Hann er
einnig grunaður um að hafa nauðg-
að sautján ára stúlku í lok mars.
Annar maður tók þátt í fyrrnefnda
athæfinu, en var ekki ákærður þar
sem hinn var talinn hafa stjórnað
atburðarásinni. - jss
Gæsluvarðhald framlengt:
Ákærður fyrir
tvær nauðganir
VERSLUN Rúmlega tuttugu starfs-
mönnum Byko í Kauptúni í
Garða bæ hefur verið sagt upp
og versluninni verður lokað í
september. Þá hefur Sigurður E.
Ragnarsson, forstjóri fyrirtækis-
ins, látið af störfum.
Í tilkynningu frá Byko kemur
fram að fjölskyldan sem staðið
hafi að baki rekstrinum frá byrj-
un ætli að taka alfarið við stjórn-
artaumunum. Guðmundur H.
Jónsson, sonur Jóns Helga Guð-
mundssonar aðaleiganda, tekur
við forstjórastarfinu. - þeb
Fjölskyldan tekur stjórnina:
Loka Byko-búð
og segja upp 20
BYKOVERSLUN Versluninni í Kauptúni
verður lokað í september.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
DÓMSMÁL Sá sem telur sig eiga
skýlausan rétt á að fá umráð
eignar sem er í vörslu annars
þarf almennt að leita til opinbers
aðila til að fá heimild sína stað-
festa. Þetta kemur fram í svari
Ögmundar Jónassonar innan-
ríkisráðherra við erindi Sam-
taka lánþega um vörslusviptingu
bifreiða. Ráðherra segir að verði
aðfararbeiðni hafnað sé gerðar-
beiðanda óheimilt að taka eign í
sína vörslu þar til leyst hafi verið
úr ágreiningi aðila. - ibs
Vörslusvipting bifreiða:
Ráðherra varar
við lögbrotum