Fréttablaðið - 05.07.2011, Síða 4

Fréttablaðið - 05.07.2011, Síða 4
5. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR4 GENGIÐ 04.07.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 220,1547 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 113,88 114,42 183,31 184,21 165,34 166,26 22,162 22,292 21,292 21,418 18,158 18,264 1,4106 1,4188 182,45 183,53 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is 3ja rétta matseðill á Fjörunni veitingahúsi Humarsúpa með grilluðum humri, lambaskanki með meðlæti og heit eplakaka með ís og rjóma. www.fjorukrain.is 30 viðskiptavini þarf til að virkja tilboðið HÓPKAUP.IS Í DAG í krafti fjöldans hópkaup.is 3.300 kr. GILDIR Í 24 TÍMA 8.250 kr Verð 60% Afsláttur 4.950 kr. Afsláttur í kr. PI PA R\ W A TB W R\ PI PA R TB W A • SÍ A SÍ A • 11 15 31 111 15 31 SJÁVARÚTVEGUR Friðbjörn Garð- arsson, þrotabússtjóri Eyrarodda á Flateyri, sem varð gjaldþrota þann 17. janúar síðastliðinn, segist bjartsýnn á að það takist að ganga frá sölu eigna fyrirtækisins innan fimmtán daga. Útgerð á Flateyri hefur verið lömuð að miklu leyti vegna deilna í kringum söluna en um fjörutíu manns misstu atvinnu sína þegar Eyraroddi varð gjaldþrota. Deilan stendur milli Lotnu og fyrirtækisins Toppfisks en Lotnu- menn telja sig hafa fengið bind- andi vilyrði frá Byggðastofnun um kaup á eignunum eftir að þeir gerðu tilboð í fyrsta útboðið sem haldið hefur verið. Byggðastofnun dró vilyrðið til baka og var haldið annað uppboð og eftir það hófust samningavið- ræður við Topp- fisk. „Ég hef sagt öllum þeim sem að málum koma að ég sé að fara í sumarfrí 20. júlí og ég hef einsett mér að málið verði frá- gengið þá. Ég er bjartsýnn á að það takist,“ segir Friðbjörn. Eiríkur Finnur Greipsson, for- maður bæjarráðs Ísafjarðarbæj- ar, segir það hryggilegt hversu lengi hafi dregist að finna lausn á þessu máli. „Við verðum bara að trúa því að þeir sem véla um okkar mál séu tilbúnir til að klára þetta,“ segir hann. „Það er alveg hræðilegt að hugsa til þess hvernig menn halda heilu samfélagi í slíkri óvissu svo lengi, það er bara óviðunandi. Þeir eru með fjöregg þorpsins í heljar- greipum, segir Eiríkur Finnur, sem býr á Flateyri. Hann segist hafa orðið var við það að margir séu farnir að leita að vinnu fjarri heimabyggð. Friðbjörn segir að þetta ferli hafi alls ekki tekið langan tíma. „Þrotabússkipti á eignalausu búi taka yfirleitt fjóra til fimm mán- uði svo þessu væri ekki lokið, jafnvel þótt allt hefði gengið eins og í sögu. En svo er það rétt að það skapaðist flækja sem tefur málið.“ Hann segist hafa skilning á því að Flateyringar séu orðn- ir langeygir eftir því að málið leysist. „Það var nú einmitt þess vegna sem ég leyfði fyrirtæk- inu Lotnu að fara vestur og hefja starfsemi áður en samningar hafa orðið gildandi.“ Um tuttugu manns starfa nú hjá Lotnu á Flat- eyri. jse@frettabladid.is Framtíð útgerðar á Flateyri að skýrast Þrotabússtjóri segist vongóður um að deilan, sem lamað hefur útgerð á Flateyri, leysist innan 15 daga. Heimamenn farnir að huga að vinnu fjarri heimabyggð. FRÁ LÖNDUN Á FLATEYRI Ef áform þrotabússtjóra Eyrarodda ganga eftir verður þess ekki langt að bíða að líf færist í útgerð að nýju á Flateyri. MYND/RÓBERT FRIÐBJÖRN GARÐARSSON HOLLAND, AP Dómarar stríðs- glæpadómstóls á vegum Sam- einuðu þjóðanna vísuðu Ratko Mladic, fyrrverandi herforingja Bosníu-Serba, út úr réttarsalnum í gær. Hann hafði gripið fram í, neit- að að lýsa sig sekan eða saklaus- an og hunsað fyrirmæli réttarins. Þegar hann var farinn úr saln- um skráðu þeir að hann hefði lýst sig saklausan af ákærum um stríðsglæpi, eins og reglur réttarins mæla fyrir um ef sak- borningur neitar að bregðast við ákærum. - gb Virti dómarana að vettugi: Mladic vísað úr réttarsalnum MLADIC Í RÉTTARSAL Tók ekkert mark á dómstólnum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 30° 29° 25° 24° 28° 25° 23° 23° 25° 22° 28° 30° 33° 23° 27° 26° 22° 10 Á MORGUN víða 3-8 m/s, hvassast við SA-stöndina FIMMTUDAGUR víða 3-8 m/s 14 13 16 12 12 11 7 1313 5 5 3 3 3 6 3 5 4 3 11 3 14 14 12 15 13 12 15 11 1416 AÐ ÞORNA Ein- hver væta áfram S-og SA-til í dag en styttir upp til morg- uns. Að mestu þurrt á fi mmtudag og bjart N- og V- til. Vindur fremur hægur næstu daga þó eitthvað hvass- ara við SA-strönd- ina í dag. Snjólaug Ólafsdóttir veður- fréttamaður SAMGÖNGUR Litlu munaði að Herj- ólfur strandaði í Landeyjahöfn þann 26. júní síðastliðinn þegar ferjan snerist um 30 gráður og stefndi að varnargarði hafnarinn- ar. Um 300 farþegar voru um borð þegar atvikið átti sér stað. Það var RÚV sem greindi frá málinu í gær. Eimskip mun afhenda rannsókn- arnefnd sjóslysa upptökur úr höfn- inni og er þetta í fyrsta sinn sem slíkt er gert, að sögn Ólafs Willi- ams Hand, upplýsingafulltrúa Eim- skips. Jón Arilíus Ingólfsson, forstöðu- maður rannsóknarnefndar sjóslysa, segir að málið verði skoðað stig af stigi til þess að kanna hvort ástæða sé til frekari rannsókna. „Reyndar varð hvorki slys né tjón, en það var athyglisvert að þarna var einungis 2,5 metra ölduhæð og það virðist bara vera nóg.“ Að sögn Jóns kom kröftug alda undir skipið sem ýtti því af leið. Snarræði skipstjórans varð til þess að Herjólfur rétti sig af. „Menn verða að vara sig á því að fara ekki af stað þegar svo mikil ölduhæð er í höfninni.“ Samstarfshópur á vegum þeirra sem sjá um samgöngur um höfn- ina hefur nú verið settur á laggirn- ar til að meta hvort ástæða sé til að loka Landeyjahöfn næsta vetur, en höfnin var lokuð samfleytt í sautj- án vikur nú í vetur. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir menn uggandi yfir vetrinum og nokkuð sé síðan að hafin var vinna við að finna annað skip sem siglt gæti í Landeyjahöfn. Það yrði jafnvel gert af nýjum aðilum sem ekki þjónusta höfnina í dag. Elliði segir að slíku verkefni, sem er ný hugmynd, sé best sinnt af einkaaðilum mögulega með aðkomu sveitarfélagsins. Elliði segir að Eyjamenn mæti skilningi samgönguyfirvalda „en við ferð- umst ekki á skilningi þeirra held- ur á skipi. Við erum orðin langeyg eftir framtíðarlausn“. - sv / shá Rannsóknarnefnd sjóslysa mun skoða tildrög óhapps í Landeyjahöfn: Litlu munaði að Herjólfur strandaði LANDEYJAHÖFN Rætt hefur verið um að loka Landeyjahöfn næsta vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON SKÓLAMÁL Fimm íslenskir fram- haldsskólanemar halda til Taí- lands í lok vikunnar þar sem þeir munu keppa á Ólympíuleikunum í eðlisfræði, sem nú verða haldnir í 42. sinn. Leikarnir eru alþjóðleg keppni framhaldsskólanema en í ár taka þátt lið frá 86 löndum. Keppendurnir eru þeir Arnór Hákonarson, Atli Þór Svein- bjarnarson og Konráð Þór Þor- steinsson úr Menntaskólanum í Reykjavík og Magnús Pálsson og Sigtryggur Hauksson úr Mennta- skólanum við Hamrahlíð. Atli lauk þriðja ári menntaskóla í vor en hinir hafa nýlokið stúdents- prófi. Tveir eðlisfræðingar, þeir Martin Swift og Viðar Ágústsson, eru fararstjórar liðsins. Ísland hefur sent nemendur á Ólympíuleikana í eðlisfræði á hverju sumri í tuttugu og sjö ár, auk þess sem leikarnir voru haldnir hér á landi fyrir þrettán árum. Leysa eðlisfræðiþrautir: Fimm keppa á Ólympíuleikum DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur maður hefur verið látinn laus úr gæsluvarðhaldi, meðan hann bíður dóms í Hæstarétti fyrir líkamsárás. Maðurinn var í hér- aðsdómi dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir árás á 16 ára gamla stúlku í Laugardal þann 11. októ- ber í fyrra. Hann réðst að henni á göngustíg og stórslasaði hana. Héraðsdómur hafði dæmt manninn í gæsluvarðhald þar til dómur gengi í Hæstarétti, en Hæstiréttur felldi þann úrskurð úr gildi vegna þess að málshraði þótti ekki fullnægjandi. - jss Bíður dóms í Hæstarétti: Göngustígs- hrotti laus SLYS Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti erlenda konu á Barðaströnd um átta í gærkvöldi. Konan hafið dottið í fjalllendi við Vatns- dalsvatn og treysti sér ekki til byggða, að sögn Landsbjargar. Ákveðið var að fá þyrluna til að sækja konuna, enda erfitt að kom- ast að slysstaðnum. Konan gat gefið nákvæma lýsingu á stað- setningu sinni og gekk greiðlega að finna hana. Hún var flutt á Landspítalann í Fossvogi en var ekki mjög alvar- lega slösuð. Björgunarsveitir frá Patreksfirði, Tálknafirði og Bíldudal tóku þátt í björguninni. - þeb Datt í fjalli á Barðaströnd: Þyrlan sótti slasaða konu

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.