Fréttablaðið - 05.07.2011, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 05.07.2011, Blaðsíða 23
ÞRIÐJUDAGUR 5. júlí 2011 Kristinn sparkar af krafti í tuðruna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Rugby-íþróttin er ekki gömul í hettunni hér á landi. „Við byrj- uðum í febrúar í fyrra að hitt- ast einu sinni í viku svona í gamni. Síðan hljóp kraftur í starfið þegar við skráðum okkur á Scandinavian Open-mótið sem fram fór í Kaupmannahöfn,“ segir Kristinn en rugby-íþrótt- in var viðurkennd af Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands, ÍSÍ, í febrúar 2011. Mikill hugur er í Kristni og félögum. „Það bendir allt til þess að keppt verði í rugby á smá- þjóðaleikunum í Lúxemborg árið 2013 og við ætlum þangað. Svo stefnum við á sigur á smáþjóða- leikunum á Íslandi 2015,“ segir hann kokhraustur. Í Rugby-félagi Reykjavíkur eru nú skráðir 40 meðlimir í tveim- ur liðum. „Við æfum hins vegar saman en framtíðarstefnan er að skipta okkur upp og koma upp fleiri liðum,“ segir Kristinn og bætir við að annar draumur sé að koma upp kvennaliði en nú æfa fimm konur með Rugby-félaginu. En hvað er svona heillandi við þessa íþrótt? „Það er samstað- an, krafturinn og félagsskapur- inn,“ svarar Kristinn og segir marga finna sig í rugby-íþrótt- inni sem ekki hafi líkað nógu vel í öðrum íþróttagreinum. Hann segir marga í félaginu koma úr öðrum íþróttagreinum á borð við handbolta, fótbolta og jafn- vel júdó. „Við Íslendingar ættum vel að geta náð árangri í þessari íþrótt enda lifnar nokkurs konar víkingaandi í leikmönnum þegar þeir spila,“ segir Kristinn glað- lega. Áhugasamir geta leitað frekari upplýsinga á www.rugby.is. solveig@frettabladid.is Framhald af forsíðu Engifer þykir gott við ferðaveiki sem getur gert vart við sig í bíl, á sjó og í flugi. Það má taka inn með ýmsum hætti en hreint engiferskot fyrir ferðalag fóðrar magann og kemur í veg fyrir að þar myndist órói. Flest ógleðilyf virka á heilann og innra eyrað en engifer virkar beint á magann. Pip- arminta hefur svipaða eiginleika. Heimild: www.heilsuhusid.is ÍSLENSKT HUNDANAMMI Fæst í Bónus, Samkaup, 10-11, Fjarðarkaup og Inspired Keflavíkurflugvelli gott í þjálfun og í leik VINSÆLVARA Hin fagra og forna Albanía 25 sept. - 5 okt. Albanía hefur nú loksins opnast fyrir erlendum ferðamönnum. Enn hefur alþjóðafæðingin ekki náð að festa þar rætur og er lítt sjáanleg. Þar má sjá ævaforna menningu, söguna á hverju horni, gríðarfallega náttúru og fagrar strendur og kynnast einstakri gestrisni heimamanna þar sem gömul gildi eru í hávegum höfð. Kortaklúbburinn, 2 í herbergi verð 241.000 kr. á mann. Þú sparar 25.000 kr. á mann, 50.000 fyrir tvo. Almennt verð, 2 í herbergi verð 266.000 kr. á mann. Náttúra, menning og dýralíf sem eiga varla sinn líkan, ævintýraleg upplifun í einstöku umhverfi. Eyjan sem Sinbað sæfari og Marco Polo heimsóttu á ferðum sínum. Við kynnumst framandi en heillandi heimi sem tekur á móti ferðalöngum með opnum örmum. Kortaklúbburinn, 2 í herbergi verð 339.990 kr. á mann. Þú sparar 25.000 kr. 50.000 fyrir tvo. Almennt verð, 2 í herbergi verð 364.990 kr. á mann. Einstök ferð 5.-17. október FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN Meiri Vísir. Allt sem þú þarft Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði á 120 stöðum um land allt. Nánari upplýsingar á visir.is/dreifing

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.