Fréttablaðið - 05.07.2011, Blaðsíða 34
5. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR26
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI „Ég tel Ajax vera eitt
stærsta félag í Evrópu og jafn-
vel í heiminum. Þetta er stórt
tækifæri fyrir mig að spila fyrir
svona sögufrægt félag,“ segir
Kolbeinn Sigþórsson. Kolbeinn
skrifaði undir fjögurra ára samn-
ing við hollensku meistaranna í
gær en kaupverðið er talið vera
um fjórar milljónir evra.
Kolbeini var úthlutað treyju
númer níu en ófáar knattspyrnu-
stjörnurnar hafa klæðst treyj-
unni hjá Ajax í gegnum tíðina.
Nægir að nefna Patrick Kluivert,
Zlatan Ibrahimovic að ógleymd-
um Marco Van Basten.
„Það hafa margir sögufrægir
leikmenn spilað í níunni og gert
gott mót í henni. Það er pressa og
mikil ábyrgð sem fylgir því. En
það er það sem ég leitast eftir.
Að spila um titla, skora mörk og
gera góða hluti fyrir Ajax,“ segir
Kolbeinn.
Ajax er stærsta félag hol-
lenskrar knattspyrnu og sigur-
sælt í Evrópukeppnum. Félagið
hefur 30 sinnum orðið hollenskur
meistari og unnið alla Evrópu-
titlana. Með Johan Cruyff innan-
borðs vann félagið Evrópukeppni
Meistaraliða þrjú ár í röð á 8.
áratugnum. Gullaldarlið félags-
ins stóð uppi sem sigurvegari í
Meistaradeild Evrópu árið 1995.
Í þjálfarateymi Ajax eru marg-
ir fyrrum atvinnumenn sem Kol-
beinn telur að muni hjálpa honum
að bæta sig sem leikmaður.
„Þetta er náttúrulega draum-
ur að rætast. Þetta eru fyrrum
leikmenn sem eru þekktir um
víðan heim. Að fá þjálfara eins og
Frank De Boer og Dennis Berg-
kamp, sem þjálfar framherjana
og er aðstoðarþjálfari, er frábært
fyrir mig sem einstakling og
hjálpar mér að bæta mig,“ segir
Kolbeinn sem skoraði 15 mörk í
deildinni á síðasta tímabili.
Félagaskipti Kolbeins frá AZ
Alkmaar til Ajax hafa verið í
burðarliðnum í þó nokkurn tíma.
Hann frétti fyrst af því að félögin
hefðu komist að samkomulagi
þar sem hann var við veiðar í
Rangá. Að loknum döprum veið-
degi hringdi Andri bróðir hans
og umboðsmaður í hann og færði
honum gleðitíðindin.
„Ég veiddi ekki mikið í Rang-
ánni, hún var skítug eftir gosið
og ég kenni því alfarið um að
hafa ekki fengið neinn lax. Það
sást ekki í botninn. Þetta var það
allra jákvæðasta við kvöldið, að
fá símtal um að þetta væri klapp-
að og klárt. Bjargaði veiðidegin-
um,“ sagði Kolbeinn í léttum tón.
Kolbeinn gekk til liðs við AZ
Alkmaar sumarið 2007. Skömmu
eftir komuna lenti hann í erfiðum
meiðslum sem tók hann tvö ár að
hrista af sér. Hann segir mikil-
vægt að hafa haft trú á því svo
ungur að árum að geta komið til
baka eftir meiðslin. Nú sé ljúft að
líta um öxl.
Íslendingar munu ef að líkum
lætur geta fylgst vel með Kol-
beini á næsta tímabili í Meistara-
deild Evrópu.
„Auðvitað er heillandi að fá
að spila í Meistaradeildinni. Við
förum beint inn í riðlakeppn-
inni. Ajax ætlar aftur á toppinn
í Evrópu eins og fyrir fimmtán
árum. Það eru spennandi tímar
fram undan hjá félaginu og ég vil
vera með í því,“ sagði Kolbeinn
að lokum.
Kolbeinn ætlar að slappa af á
Íslandi í nokkra daga en mætir til
æfinga til Ajax á mánudag. Liðið
heldur í æfingaferð til Þýska-
lands en keppni í hollensku deild-
inni hefst í upphafi ágústmánað-
ar.
kolbeinntd@365.is
Á FÖRUM Argentínski landsliðsmaðurinn í fótbolta, Carlos Tevez, gaf í gærkvöld út þá yfirlýsingu að hann vilji yfirgefa her-
búðir enska bikarmeistaraliðsins Manchester City. Tevez vill vera nær dætrum sínum, en fjölskylda hans er í Argentínu. „Ég hef
greint Manchester City frá ákvörðun minni, að ég vilji fara frá félaginu, það geri ég með mikilli eftirsjá,“ sagði Tevez í yfirlýsing-
unni en allt frá því í desember á síðasta ári hefur orðrómur um þetta verið í gangi.
FÓTBOLTI Andrúmsloftið var raf-
magnað í höfuðstöðvum KSÍ í gær
þegar Guðjón Þórðarson þjálfari
BÍ/Bolungarvíkur dró mótherja
sína í undanúrslitum Valitor-bik-
ars karla upp úr hattinum.
„Bjarni, þetta verður eins og þig
dreymdi,“ sagði Guðjón við góðar
undirtektir viðstaddra. Ljóst var
að KR myndi sækja Vestfirðinga
heim.
Guðjón segir fegurðina við fót-
boltann þá að alltaf sé möguleiki
og í öllum leikjum felist tækifæri.
„ Í bi k a r nu m er þet ta
spu r n i ng u m aug n abl i k-
ið, dagsformið og stillinguna
sem maður nær að draga inn í
augnablikið,“ sagði Guðjón. „Þetta
er stærsta verkefnið sem BÍ/Bol-
ungarvík hefur tekist á við. Það er
tilhlökkun að fá þetta verkefni og
takast á við það,“ bætti Guðjón við.
Annað árið í röð verða undanúr-
slitin spiluð á heimavöllum liðanna
en ekki á Laugardalsvelli eins og
gert var um tíma. Bjarni Guðjóns-
son fyrirliði KR er mjög ánægður
með það fyrirkomulag.
„Laugardalsvöllur er svo leið-
inlegur. Það á ekki að spila hérna
nema það sé fullt í stúkunni. Ég
fagnaði því mjög þegar þessu var
breytt á síðasta ári. Það er ekki
það mikið af fólki sem mætir
á undanúrslitin. Úrslitaleikur-
inn rétt nær að bera það að spila
hérna,“ sagði Bjarni.
Í hinni viðureigninni tekur Þór
á móti ÍBV á Akureyri. Liðin átt-
ust við í deildinni á sama stað í
síðasta mánuði þar sem Þórsar-
ar komu á óvart og höfðu sigur.
Heimir Hallgrímsson þjálfari ÍBV
var þokkalega sáttur við dráttinn.
„Ég held að engan hafi langað
á Ísafjörð, enginn vildi fara norð-
ur og enginn vildi mæta KR. Við
getum ekki verið svekktir yfir
þessu en auðvitað vildum við fá
heimaleik. Við fórum þangað fyrir
ekki svo löngu og töpuðum. Ég
vona að sá tapleikur sitji svolítið
í mínum mönnum,“ sagði Heimir
Hallgrímsson þjálfari ÍBV.
Í kvennaflokki tekur Aftureld-
ing á móti bikarmeisturum Vals
sem eru ósigraðir í sumar. Gunnar
Borgþórsson þjálfari liðsins segir
að stelpurnar ætli sér að vinna tvö-
falt í ár.
„Við erum búin að gefa það út
að það sé markmið okkar. Vinna
þessa tvo titla og halda þeim á
Hlíðarenda,“ sagði Gunnar.
Í hinni viðureigninni tekur Fylk-
ir á móti KR í Árbænum. Liðin
mættust í deildinni í síðustu viku
þar sem Fylkir hafði 1-0 sigur í
hörkuleik.
Leikirnir í kvennaflokki fara
fram 22. júlí. Leikirnir í karla-
flokki eru áætlaðir 28. júlí. Lík-
lega verður tímasetningu annars
leiksins hnikað til um einn dag svo
hægt verði að sýna þá báða í beinni
útsendingu.
kolbeinntd@365.is
FEÐGAR MUNU BERJAST Á ÍSAFIRÐI
KR sækir BÍ/Bolungarvík heim á Ísafjörð og Eyjamenn heimsækja Þórsara í undanúrslitum Valitor-bikars
karla. Í kvennaflokki fara bikarmeistarar Vals í Mosfellsbæ og Fylkir tekur á móti KR í Árbænum.
SÖGULEGUR DRÁTTUR Guðjón Þórðarson brosti út að eyrum þegar ljóst var að hans menn fengju KR-inga í heimsókn á Ísafjörð.
Þetta er í fyrsta skipti sem BÍ/Bolungarvík kemst í undanúrslit keppninnar. Guðjón gerði KR tvívegis að bikarmeisturum á sínum
tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/VIHELM
FÓTBOLTI Björn Bergmann Sig-
urðarson, leikmaður U21 árs
landsliðs Íslands, stendur sig vel
í vinnunni hjá norska úrvalsdeild-
arliðinu Lilleström. Björn Berg-
mann er í fjórða sæti á lista yfir
þá sem hafa fengið hæstu einkunn
að meðaltali í leik í deildinni og
hann er í efsta sæti á stoðsend-
ingalistanum. Alls hefur Björn
leikið 13 leiki í deildarkeppninni á
þessari leiktíð. Hann hefur fengið
5,85 í einkunn hjá Verdens Gang
í þeim leikjum að meðaltali og
eflaust þykir mörgum það ekki há
einkunn. Norsku blaðamennirnir
eru hins vegar með mjög strangar
reglur í þessum efnum og sá sem
er efstur á listanum er með 6,18
að meðaltali. Björn, sem er aðeins
tvítugur, hefur gefið 6 stoðsend-
ingar í 13 leikjum og alls hefur
hann skorað 4 mörk.
Björn var leikmaður ÍA á Akra-
nesi áður en hann fór til Lille-
ström árið 2009. Bræður hans þrír
hafa allir leikið sem atvinnumenn,
Þórður Guðjónsson, Bjarni Guð-
jónsson og Jóhannes Karl Guð-
jónsson.
Veigar Páll Gunnarsson leik-
maður Stabæk er markahæsti
íslenski leikmaðurinn í deildinni
með 6 mörk en Anthony Ujah liðs-
félagi Björns hjá Lillestrøm er
markahæstur með 13 mörk. - seth
Ofarlega á lista hjá VG:
Björn Berg-
mann stendur
sig í vinnunni
Landsliðsframherjinn samdi við hollenska meistaraliðið Ajax til fjögurra ára og leikur í níunni:
Kolbeinn fetar í fótspor Van Basten
DRAUMURINN RÆTTIST Kolbeinn SIgþórsson verður í treyju nr. 9 hjá Ajax líkt og
Marco Van Basten og Zlatan Ibrahimovich gerðu á sínum tíma.
Ajax er 111 ára gamalt stórveldi
Ajax á sér langa sögu sem fótboltalið en félagið var stofnað þann 18. mars
árið 1900 og fagnaði því 111 ára afmæli sínu fyrr á þessu ári. Heimavöllur
liðsins er Amsterdam Arena og tekur völlurinn rétt um 53.000 áhorfendur.
Margir af þekktustu knattspyrnumönnum Hollands hafa komið upp úr yngri
flokkum Ajax en félagið hefur lagt mikla áherslu á það starf allt frá upphafi.
Má þar nefna: Johan Cruijff, Edwin van der Sar, Dennis Bergkamp, Patrick
Kluivert, Marco van Basten. Þessir eru án efa þeir þekktustu en einnig
má nefna þá Ryan Babel, Wesley Sneijder, Rafael van der Vaart, Maarten
Stekelenburg, Eljero Elia, André Ooijer, John Heitinga og Nigel de Jong.
Félagið hefur unnið hollenska meistaratitilinn alls 30 sinnum, þar af þrívegis
á þessari öld, 2001-02, 2003-04 og 2010-11. Ajax hefur einnig unnið
bikarkeppnina í Hollandi alls 18 sinnum.
GÓÐUR Björn Bergmann Sigurðarson
stendur sig í Noregi.
FÓTBOLTI Marcelo Ramón Ferrero
átti stórleik í marki Ekvador
í markalausu jafntefli gegn
Paragvæ þegar liðin áttust við
í riðlakeppni Copa America í
fyrrakvöld. Brasilía og Venesúela
gerðu einnig markalaust jafn-
tefli. Þetta er í fyrsta sinn í 58
ár sem tveimur leikjum dagsins
lýkur markalausum.
Argentína, Brasilía og nú
Paragvæ hafa öll lent í tómu basli
gegn minniháttar andstæðing-
um. Þá vann Kólumbía aðeins
eins marks sigur gegn Kosta-
ríka. Sparkspekingar keppast við
að gagnrýna stórstjörnur stóru
liðanna en sumir benda á aðrar
ástæður. Suðuramerísk knatt-
spyrna hafi aldrei verið sterk-
ari auk þess sem vallaraðstæður
í Argentínu komi niður á spila-
mennsku sterkari liðanna. - ktd
Copa America í Argentínu:
Stóru þjóðirnar
eru í tómu basli
MARKAHÆSTUR Robinho er markahæsti
leikmaður Brasilíu en hann á enn eftir
að skora í Argentínu.