Fréttablaðið - 19.07.2011, Side 21

Fréttablaðið - 19.07.2011, Side 21
KYNNING − AUGLÝSING19. JÚLÍ 2011 ÞRIÐJUDAGUR Protec-gluggarnir henta fyrir allar gerðir nýrra húsa en ekki síður fyrir eldri gerð- ir húsa þar sem skipta þarf um glugga og er auðveldlega hægt að útfæra útlit glugganna í bæði gömlum og nýjum stíl,“ segir Pétur Hans Pétursson forstöðumaður sölu- og markaðssviðs BM Vallár. „Þetta er ekki stöðluð fram- leiðsla. Verksmiðjan getur útfært f lestar þarfir viðskiptavinarins eftir óskum hvers og eins varðandi útlit, stærð og þykkt á körmum og póstum og búnaði. Protec-glugg- arnir henta í allar gerðir húsnæðis, íbúðarhús, sumarhús, iðnaðarhús, hótel og skóla,“ segir Pétur Hans. „Gluggar eru meira en bara gler,“ segir Pétur Hans. „En það er að mörgu að huga við val á gluggum hvað varðar allar lausn- ir og búnað og hvað þarf að upp- fylla hvað varðar byggingareglu- gerð. Við teljum okkur góða í að benda á skynsamlegar lausnir viðskiptavinum til hagsbóta. Það þarf að huga að opnunarbúnaði, lömum, handföngum, deililausn- um á hornum og samskeytum og þéttingum,“ segir hann og tekur fram að hægt sé að fá alls konar opnunarlausnir. „Gluggarnir okkar eru með nettum körmum, en þannig er ljósop gluggans há- markað. Ljósið sem getur flætt inn um gluggana er því mjög mikið,“ segir Pétur Hans. Á gluggunum er tíu ára fram- leiðsluábyrgð enda leggur BM Vallá mikla áherslu á þjónustu. Fyrirtækið fylgist með því að gluggarnir séu rétt í settir og allt gert samkvæmt bókinni. Gluggun- um er sem sagt fylgt eftir að sölu lokinni. Allir gluggar frá PRO TEC eru með háeinangrandi gleri, bæði hvað varðar einangrunargildi og hljóðvist. „Á tímum þar sem orka hefur hækkað í verði hér á Íslandi þá þurfa Íslendingar að hugsa meira um að nota byggingarefni sem er orkusparandi,“ segir Pétur Hans. „Við bjóðum upp á gasfyllt einangrunargler sem er um leið misþykkt, en slík tækni eykur til muna góða hljóðvist.“ PRO TEC er framleitt í Dan- mörku og hefur verið á markaði á Íslandi frá 1993 og er því komin góð reynsla á gluggana við íslensk- ar aðstæður. „Við hjá BM Vallá bjóðum heildarlausnir við bygg- ingu húsa að nokkru leyti þegar kemur að staðsteyptum húsum eða Smellin einingarhús. Fólk velur í síauknum mæli að geta klárað pakkann með góðum tré-/ áluggum hjá einum aðila þegar kemur að vali við kaup á húsum,“ segir Pétur Hans að lokum. Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu www. bmvalla.is. Gluggar eru ekki bara gler PRO TEC-gluggarnir frá BM Vallá eru viðhaldslitlir og hafa reynst ákaflega vel við íslenskar aðstæður. Ytri hluti glugganna er úr áli en innri hluti úr timbri og hægt að fá timbrið sprautulakkað í öllum litum og einnig er hægt að fá mahóní eða eik. Pétur Hans Pétursson við PRO TEC-glugga frá BM Vallá. MYND/ANTON BM Vallá ehf Breiðhöfða 3 110 Reykjavík Sími: 412 5050 sala@bmvalla.is Opið mán.–fös. kl. 8–18 bmvalla.is Kynntu þér PRO TEC hjá BM Vallá áður en þú velur glugga. Það gæti borgað sig. Gluggar eru ekki bara gler Veldu háeinangrandi PRO TEC glugga sem spara orku BM Vallá býður vandaðar gluggalausnir frá PRO TEC í Danmörku. Gluggarnir eru úr áli og tré og henta vel fyrir íslenskar aðstæður en hér er meira vind- og slagregnsálag en þekkist í flestum löndum. Glerið er háeinangrandi sem lækkar hitunarkostnað og sparar orku. Hver gluggi er sérsmíðaður eftir óskum viðskiptavinar um stærð lit og lögun Skoðaðu PRO TEC , . á bmvalla.is PRO TEC hentar líka í einbýlishús í funkís stíl.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.