Fréttablaðið - 19.07.2011, Side 26
19. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR18
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi, bróðir
og mágur,
Björn Stefánsson
flugumsjónarmaður
Hlíðarbyggð 29, Garðabæ,
sem lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi
fimmtudaginn 14. júlí, verður jarðsunginn frá
Vídalínskirkju í Garðabæ föstudaginn 22. júlí kl. 13.
Hrefna Jónsdóttir
Ragnheiður Kristín Björnsdóttir Elís Kjartansson
Berglind S. Björnsdóttir
Stefán Þór Björnsson Elfa Dögg Finnbogadóttir
Jón Ingi Björnsson Hugrún Valtýsdóttir
Hrafnhildur Stefánsdóttir Cummings
Páll M. Stefánsson Jóhanna Hauksdóttir
barnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir og amma,
Jónína Þ. Finnsdóttir
frá Flateyri, Rauðalæk 41 í Reykjavík,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Skjóli þann 6. júlí sl.
Útförin fer fram frá Áskirkju miðvikudaginn
20. júlí kl. 13.
Grímur Þ. Sveinsson
Finnur Torfi Magnússon Þórunn Erhardsdóttir
Steinþór Bjarni Grímsson Sigurbjörg Lóa Ármannsdóttir
Sveinn Víkingur Grímsson
Sigurveig Grímsdóttir Kristinn R. Sigurðsson
barnabörn.
Ástkæra móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Bjarney Sigríður
Guðmundsdóttir
frá Hælavík,
lést á Droplaugarstöðum að kvöldi föstudagsins
15. júlí s.l. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Kristján Ágúst Ögmundsson Elín Þórjónsdóttir
Lúðvík Baldur Ögmundsson Guðrún Sigurðardóttir
Sigurbjörg G. Ögmundsdóttir Snæbjörn Ó. Ágústsson
Jóhann Sigurður Ögmundsson
Kristinn Bjarni Ögmundsson Auður Hreinsdóttir
Þorteinn H. Ögmundsson Sigríður E. Hafsteinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Hjartans þakkir til allra er sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærs eiginmanns, föður, afa
og langafa
Sigmundar
Sigurgeirssonar
Hnotubergi 21, Hafnarfirði.
Við viljum þakka öllum þeim sem önnuðust hann í
veikindum hans og þá sérstaklega starfsfólki deildar 11
G á Landspítalanum.
Guð blessi ykkur öll.
Guðný Guðnadóttir
Ingigerður Sigmundsdóttir Sighvatur Kristjánsson
Sigurgeir Sigmundsson Kristín Arnarsdóttir
Ólafur Þór Sigmundsson Asefash Berhanu
Margrét Sigmundsdóttir Helgi Ásgeir Harðarson
Guðni Markús Sigmundsson Sólveig Magnúsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, sonur
og faðir okkar,
Jón Pétursson
eðlisfræðingur,
lést sunnudaginn 17. júlí síðastliðinn á Landspítala.
Anna Stefánsdóttir
Halldóra Jónsdóttir
Halldóra Jónsdóttir
Dofri Jónsson
Dagbjört Jónsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Hólmfríður Kristjana
Eyjólfsdóttir
lést á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi,
miðvikudaginn 13. júlí. Útför hennar fer fram frá
Fossvogskirkju, þriðjudaginn 19. júlí kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð í Kópavogi.
Eyjólfur Jónsson Vilborg Guðmundsdóttir
Björg Jónsdóttir Guðmundur Guðmundsson
Magnús Jónsson Margrét Berta Þórisdóttir
Einar Jónsson Jensína Ragna Ingimarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
Kristín Hinriksdóttir
Skjóli, áður Skólavörðustíg 22a,
andaðist 11. júlí 2011. Jarðarförin fer fram frá
Fossvogskirkju 21. júlí kl. 13.00.
Ásgeir Höskuldsson Gyrit Hagman
Jóhann H. Þórarinsson Sigríður Valdimarsdóttir
Andrés H. Þórarinsson Ásta B. Björnsdóttir
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir,
tengdafaðir og afi,
Sigfús Jónasson
kranamaður
Holtateigi 18, Akureyri,
lést á Dvalarheimilinu Hlíð 13. júlí sl. í faðmi
fjölskyldunnar. Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk
hins látna. Fjölskylda Sigfúsar vill færa sérstakar þakk-
ir fyrir kærleiksríka umönnun til starfsfólks Einihlíðar,
Sjúkrahússins á Akureyri og Heimahlynningar.
Sigurveig María Sigvaldadóttir
Friðrik Sæmundur Sigfússon Unnur Arnsteinsdóttir
Jónas Sigurþór Sigfússon Jórunn Karlsdóttir
Halldór Jóhann Sigfússon Hanna Lára Ásgeirsdóttir
og barnabörn
Eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
Guðríður Káradóttir
Grænlandsleið 30, Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut 13. júlí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Jónas Jónsson
María Jónasdóttir Þorsteinn Þorsteinsson
Arnar Jónasson Jóhanna Karitas Traustadóttir
Daníel Snær, Elísabet Mjöll, Davíð Eyfjörð.
Ungmennafélagið Vaka í Villingaholtshreppi er 75 ára í dag.
Félagið ber nafn með rentu þar sem ungt fólk heldur uppi
starfseminni. Félagið hefur verið brautryðjandi í félagslífi
sveitarinnar og hvert einasta ungmenni sem þar hefur alist
upp hefur tekið þátt í einhverjum störfum þess. „Í raun-
inni eru þetta sömu grundvallarmarkmiðin sem félagið
hefur nú og fyrir 75 árum,“ segir Guðmunda Ólafsdóttir,
formaður félagsins. „Markmiðið er að halda uppi félagslífi
í sveitinni og iðka íþróttir. Hins vegar er meiri markaður
fyrir afþreyingu núna heldur en hérna áður fyrr. Þar sem
við búum svo nálægt Selfossi eru margir sem sækja þang-
að í afþreyingu og íþróttir. Hér áður fyrr voru samveru-
stundir fólks í félagsheimilinu einu menningarviðburðirnir
sem það hafði,“ segir Guðmunda og á þar við félagsheimilið
Þjórsárver, sem var byggt í sjálfboðavinnu á sínum tíma og
svo vígt árið 1959.
Á stofnfundinum 19. júní árið 1936 voru 40 manns en í dag
eru félagsmenn 134 talsins. Íþróttir og menningarlíf eru
viðamiklir þættir í starfinu. „Við erum helst í frjálsíþrótt-
um og glímu. Við erum það fá að við náum ekki að stofna
nein lið og þeir sem stunda hópíþróttir gera það á Selfossi,“
segir Guðmunda.
Vaka hélt ótrautt áfram starfsemi sinni sem sjálfstætt
félag þó að Villingaholtshreppur hafi sameinast Gaulverja-
bæjarhreppi og Hraungerðishreppi undir nafninu Flóahrepp-
ur árið 2006. „Þetta er náttúrulega að breytast með nýrri
kynslóð. Nú eru til krakkar sem muna ekkert annað en að
þetta hafi alltaf verið Flóahreppur en eldra fólkið er jú alltaf
úr Villingaholtshreppi og verður það áfram. Ungmennafélög-
in þrjú eru líka farin í meira samstarf. Sumir krakkarnir
eiga erfitt með að skilja að þeir séu óvinir á íþróttavellinum
á meðan þeir eru saman í skóla,“ segir Guðmunda.
Þó að hrepparígurinn eigi kannski undir högg að sækja
er mikill eldhugur í Ungmennafélagi Villingaholtshrepps.
Félagið stendur fyrir fjölmörgum skemmtunum, ferðalögum
og samkomum. Síðastliðinn sunnudag fór félagið í fjallgöngu
og á ári hverju heldur það stóra skötuveislu sem mettar tvö
hundruð manns. „Félagið ætlar ekki að halda neina afmælis-
veislu í þetta skiptið af því svo stutt er síðan stórveisla var
haldin á 60 ára afmælinu. En við ætlum að gefa út afmælis-
rit síðar á árinu, flott blað með alls konar umfjöllun um störf
félagsins,“ segir Guðmunda. nielsg@365.is
UNGMENNAFÉLAGIÐ VAKA: 75 ÁRA
Sömu mark-
miðin nú og þá
ELDHUGARNIR FJÖRUTÍU Frá stofnfundi Vöku í Villingaholtshreppi.
ERRÓ MYNDLISTARMAÐUR er 79 ára.
„Mínar bestu minningar eru í fram-
tíðinni.“
79