Fréttablaðið - 09.08.2011, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 09.08.2011, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 9. ágúst 2011 Í gúrkutíð sumarsins hófst duggunarlítil umræða um landbúnaðarmál. Ekkert er undan því að kvarta að menn hefji máls á því sem þeir telja brýnt, nema að því leytinu að í umræðunni var öllum hlutum snúið á haus. Þannig var það sem síst skyldi, gert tortryggi- legt og ósanngjörnum vopnum því beitt gegn íslenskum land- búnaði. Tilefni þessa greinar- korns er að bregðast við því. Í fyrsta lagi þetta. Fyrr í sumar birtust fréttir af því að stórverslunin Bónus vildi afnema svo kallaða skilaskyldu á íslenskum kjötvörum og jafn- vel líka öðrum landbúnaðar- afurðum. Þetta voru í sjálfu sér jákvæðar fréttir. Skilaskyldan hefur lengi verið þyrnir í augum íslenskra afurðastöðva og fram- leiðenda íslenskra matvara. Árið 2009 á 136. löggjafarþinginu flutti ég ásamt tíu öðrum þing- mönnum Sjálfstæðisflokksins þingsályktunartillögu um málið sem var svo hljóðandi: „Alþingi ályktar að fela efna- hags- og viðskiptaráðherra að móta reglur um skilaskyldu á ferskum matvörum í verslun- um, til þess að tryggja eðlilegt og sanngjarnt samkeppnis- umhverfi innlendrar matvæla- framleiðslu.“ Tillagan hlaut ekki afgreiðslu og höfum við flutt hana í tví- gang síðan. Nú síðast var henni dreift á Alþingi 4. október sl. en hefur ekki verið afgreidd. Málið fékk þó almennt jákvæðar undirtektir, svo sem í umræðum á Alþingi. Var það meðal annars sent til umsagnar sjávarútvegs og landbúnaðarnefndar, sem samþykkti einróma jákvætt álit þann 24. nóvember sl. Enn bólar ekki á afgreiðslu málsins, en þingið hefur þó möguleika á að ljúka því nú í september. Hvað er skilaskylda? Í greinargerð með tillögunni er skilaskyldan útskýrð með þess- um hætti: „Skilaskyldan felur í sér að kjósi verslunareigandi svo, getur hann sér að kostnað- arlausu krafist þess að framleið- andi taki til baka framleiðslu- vörur sem eru að nálgast síðasta söludag. Þetta á við um íslenskar matvörur en ekki þær erlendu.“ Þannig er skilaskyldan klárleg mismunun gagnvart íslenskri framleiðslu, en á það þarf þó að líta að í skilaskyldu getur falist trygging fyrir því að ekki verði óeðlileg birgðasöfnun í verslun, með tilheyrandi kostnaði og rýrnun sem að lokum falli á neytendur í hærra vöruverði. Þegar þetta er skoðað sjá allir hversu ósanngjarnt það er þess vegna að halda því fram, eins og gert hefur verið núna nýverið, að skilaskyldan sé til marks um sóun í íslenskum landbúnaði og að um sé að ræða nokkurs konar ríkisstyrk við að farga landbún- aðarafurðum sem komnar eru fram yfir söludag. Skilaskyldan er ekki það sem bændur eða afurðastöðvar hafa krafist. Öðru nær. Þeir aðilar hafa ályktað um að afnema hana. Jákvæðar fréttir af vaxandi útflutningi Hitt atriðið sem hér skal gert að umtalsefni er vaxandi útflutn- ingur á landbúnaðarafurðum. Í gegnum tíðina hafa menn af mikilli þrautseigju reynt að hasla íslenskri landbúnaðar- framleiðslu völl á erlendum mörkuðum. Sú viðleitni hefur gengið upp og ofan, en nú um stundir sjáum við merki um að betur horfi. Þessi útflutn- ingur veldur engum viðbótar útgjöldum fyrir ríkissjóð. Þvert á móti. Þessi útflutningur er til ábata fyrir samfélagið og ríkis- sjóð. Umsvifin aukast, tekjur bænda verða meiri, störf verða til hjá fólki sem ella væri án atvinnu. Þannig dregur frem- ur úr útgjöldum ríkisins og tekjurnar aukast með vaxandi útflutningsframleiðslu á landbúnaðarvörum. Margt veldur um betri horfur Það er margt sem leggst á eitt og veldur því að betur horfir nú um útflutning á ýmsum land- búnaðarafurðum en fyrr. Fyrst ber að nefna þrautseigju þeirra sem hafa unnið að þessum málum, með ærnum tilkostnaði, vöruþróun og markaðsvinnu. Sá kostnaður hefur að minnstu fall- ið á ríkissjóð, gagnstætt því sem látið hefur verið í veðri vaka. Þessi kostnaður lagðist ekki síst á bændur og afurðastöðvarnar. Núna erum við að sjá árangur erfiðisins. Þá eru aðstæður til útflutnings á dilkakjöti á alþjóð- legum mörkuðum betri en oft áður, af ýmsum ástæðum, meðal annars vegna minna framboðs frá hefðbundnum útflytjendum frá Nýja-Sjálandi og víðar. Loks er það augljóst að lágt gengi krónunnar styður við þennan útflutning, eins og annan, nú um stundir. Ábending Josephs Stiglitz Nóbelsverðlaunahafa Allt hefði þetta því átt að vera fagnaðarefni. Það er því í meira lagi ósanngjarnt að gera þennan útflutning tortryggilegan og jafna honum á einhvern hátt við útflutning sem stundaður var á landbúnaðarafurðum með útflutningsbótum, eins og átti sér stað fram að síðasta áratug síðustu aldar. Sé það hins vegar skoðun ein- hvers að stuðning við íslenska landbúnaðarframleiðslu eigi að minnka, er vitaskuld heiðarlegt að segja það hreint út, en ekki undir rós. Slíkt hefði ófyrirséð áhrif, sem mönnum ber þá að gera grein fyrir. Það er nefni- lega rétt sem Nóbelsverðlauna- hafinn í hagfræði, Joseph Stig- litz, segir í bók sinni Fair trade for all; menn eru flestir til- búnir til þess að gera tilkall til þess ávinnings sem þeir ætla af minni landbúnaðarstuðningi, en engir heimtingu á að bera kostn- aðinn sem af þeirri stefnumótun hlýst. Þversögn og ESB-umræðan Og svo er það eitt að lokum. Mál- efni landbúnaðarins er mjög á dagskrá í tengslum við aðildar- umsókn okkar að ESB. Það vekur athygli að þeir sem ákaf- astir eru í baráttunni fyrir aðild, þreytast ekki á því að segja okkur að með inngöngunni í ESB opnist miklir möguleikar til margs konar opinbers stuðnings við landbúnaðinn, ekki síst við sauðfjárframleiðsluna. Þeir sem þannig tala og vilja uppvægir halda þá leið, geta að minnsta kosti ekki í hinu orðinu gert það tortryggilegt að við séum að ná meiri árangri við útflutning landbúnaðarvara, án tilkostn- aðar af hálfu ríkissjóðs. Í því felst algjör þversögn, sem ekki gengur upp. Ósanngjörn landbúnaðarumræða Landbúnaður Einar K. Guðfinnsson alþingismaður Með auka gleri. Stærðir: M og XL AF NETINU ESB-umsókn lamar ríkisstjórnina Aðildarumsókn um Evrópusam- bandið var samþykkt naumlega á Alþingi 16. júlí 2009. Síðan þá hefur ríkisstjórn Íslands undirbúið aðild landsins að Evrópusambandinu. Önnur verkefni stjórnarinnar hafa setið á hakanum. Jóhönnustjórnin býður ekki upp á aðra framtíðarsýn en ESB-aðild með evruna sem lögeyri í landinu. Innganga í evruland, þ.e. inn í Evrópusambandið og í samstarf við þau 17 ríki ESB sem eru með evru sem lögeyri, er ómöguleg vegna þess að innan tíðar verður evruland ekki til. http://pallvil.blog.is Páll Vilhjálmsson

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.