Fréttablaðið - 09.08.2011, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 09.08.2011, Blaðsíða 21
KYNNING − AUGLÝSING Skólar & námskeið9. ÁGÚST 2011 ÞRIÐJUDAGUR 5 Menntastoðir. Dag- og kvöldnám (400 klst.). Hefst 22. ágúst 2011 Markmið Menntastoða er að stuðla að jákvæðu viðhorfi námsmanna til áframhaldandi náms. Námið í Háskólastoðum tekur um sex mánuði (staðnám) og 10 mánuði (síðdegisnám) og gefur um 50 einingar inn í Háskólabrú Keilis. Helstu námsgreinar eru stærðfræði, íslenska, upp- lýsingatækni, enska og danska. Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum (200 klst.). Hefst í september 2011 Um er að ræða 200 klukkustunda námsleið sem tekur mið af námskrá framhaldsskólanna. Námsgreinar eru íslenska 102, enska 102, danska 102 og stærðfræði 102 og 122. Skrifstofuskólinn. Dag- og kvöldnám Hefst í september 2011. Skrifstofuskólinn er ætlaður fólki sem hefur stutta, formlega skólagöngu að baki. Tilgangur námsleiðarinnar er að takast á við almenn skrifstofustörf og tölvunotkun og stuðla að jákvæðu viðhorfi þeirra til áframhaldandi náms. Sterkari starfsmaður. Dagnám (100 klst.). Hefst í september 2011 Sterkari starfsmaður – upplýsingatækni og samskipti er ætlað fólki á vinnumarkaði sem vill auka færni til að takast á við breytingar í starfi og auka færni sína í upplýsingatækni og tölvum. Tilgangur námsleiðarinn- ar er að auka færni námsmanna til að takast á við breytingar, stuðla að jákvæðu viðhorfi námsmanna til starfa, nýjunga, upplýsingatækni, sam- skipta og símenntunar og gera þá að eftirsóknarverðari starfsmönnum. Fagnámskeið 2 (40 klst.). Hefst í október 2011 Nám fyrir ófaglærða starfsmenn í heilbrigðis- og félagsþjónustu. Tilgangur námsins er að stuðla að jákvæðu viðhorfi námsmanna til áframhaldandi náms, auðvelda þeim að takast á við ný verkefni í vinnu og auka gæði í starfi. Skref til sjálfshjálpar í lestri og ritun (40 klst.). Hefst í október 2011 Námsleiðin er ætluð starfandi fólki með stutta skólagöngu sem á við lestrar- og ritunarerfiðleika að stríða. Félagsliðabrú. Hefst 22. ágúst 2011 Nám og kennsla á félagsliðabraut – BRÚ fer fram í síðdegis- og í dreifnámi. Námið er skipulagt fyrir einstaklinga sem eru orðnir 22 ára og hafa að minnsta kosti þriggja ára starfsreynslu. Að auki þurfa þeir að hafa lokið starfstengdum námskeiðum á vegum stéttarfélaga, sveitar- félaga eða annarra aðila sem sjá um námskeiðahald. Innihald námsins er félags-, sál- og uppeldisgreinar sem og sérgreinar á sviði fötlunar og öldrunarþjónustu. Stuðningsfulltrúa-, leikskóla- og skólaliðabrú. Hefst 23. ágúst 2011 Námið í BRÚ er kennt eftir námskrá frá menntamálaráðuneytinu og gefur einingar á framhaldsskólastigi miðað við aðalnámskrá framhalds- skóla. Það er skipulagt fyrir einstaklinga sem eru orðnir 22 ára og hafa að minnsta kosti þriggja ára starfsreynslu og hafa lokið starfstengdum námskeiðum eða sí- og endurmenntun í allt að 220-230 klukkustundir. Þátttakendur útskrifast með viðurkennd starfsheiti að námi loknu. Í námsverinu á Dalvík verða eftirtaldar námsleiðir í boði: • Skrifstofuskólinn – kvöldnám • Grunnmenntaskólinn • Landnemaskólinn Tilgangur skólans er að auðvelda fólki af erlendum uppruna að aðlagast íslenskum vinnumarkaði og samfélagi. Í náminu er lögð áhersla á íslenskt talmál og nytsama samfélagsfræði. Námið er ætlað fullorðnu fólki á vinnumarkaði, sem ekki hefur íslensku að móðurmáli. SPENNANDI LENGRI NÁMSLEIÐIR Náms- og starfsráðgjöf Þeir sem vilja efla sig með frekara námi, en eru kannski óvissir um hvar það sé best þá býður SÍMEY upp á þjónustu náms- og starfs- ráðgjafa miðstöðvarinnar. Allir geta nýtt sér hana að kostnaðarlausu og fengið aðstoð við að ákveða næstu skref. Hlutverk náms- og starfsráð- gjafa er að veita fólki upplýsingar um nám og störf og aðstoða við að finna nám, sí- og endurmenntun og starfsvettvang við hæfi. Einnig aðstoð við að meta stöðuna, áhuga og hæfni og gera heildstæða áætlun um mögulegar leiðir. Góð hvatning sem getur haft úrslitaáhrif þegar tekist er á við ný verkefni. Fyrir atvinnuleitendur Vinnumálastofnun má styrkja atvinnuleitanda sem er tryggður innan atvinnuleysistrygginga- kerfisins vegna þátttöku hans í starfstengdu námi eða nám- skeiði sem viðurkennt er sem vinnumarkaðs úrræði, sbr. a- og d-lið 1. mgr. 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir. Styrkurinn skal að hámarki nema 50% af námskeiðsgjaldi en þó aldrei hærri en 70.000 kr. á önn eða á hverjum þrettán vikum. Skilyrði fyrir veit- ingu styrks skv. 1. mgr. er að hið starfstengda nám eða námskeið nýtist atvinnuleitandanum beint við atvinnuleit að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og er til þess fallið að skila honum árangri við að finna sér starf. Styrkir Styrkjamöguleikarnir eru með mismunandi hætti eftir félögum. Ákveðin stéttarfélög styrkja félags- menn sína sem eru í 100% vinnu um allt að 75% af námskeiðs- kostnaði eða að hámarki 60.000 kr. á ári. Dæmi: Enska fyrir konur. Námskeiðsgjald er 29.500 kr. Stéttarfélag greiðir allt að 75% sem jafngildir 22.125 krónum og eftir standa 7.375 krónur sem einstaklingurinn greiðir sjálfur. NÁMS OG STARFSRÁÐGJÖF OG NIÐURGREIÐSLA Á NÁMSKEIÐUM Rosalega góður félagsskapur „Ég var síðast í námi í öldungadeild Gaggans fyrir 25 árum þannig að það var mikið átak fyrir mig að stökkva aftur af stað.“ segir Ágústína Söebech, sem unnið hefur í Frístund í Síðuskóla í rúm tíu ár. „Við erum þrjár þaðan í skólaliðabrúnni hjá SÍMEY og auk þess sem þar er einn skólaliði úr Síðuskóla. Við sáum námið auglýst og stöppuðum stálinu hver í aðra.“ Hún segist hafa farið af stað með hálf- um huga og oftar en einu sinni verið við að gefast upp. „En Valgeir og Betty hjá SÍMEY hvöttu mig til dáða og studdu mig á alla lund og ég get ekki hugsað mér að hætta úr þessu! Þetta er rosalega góður félagsskapur og hér eru allir svo jákvæðir,“ segir Ágústína. Alltaf gaman að koma í SÍMEY „Ég átti í dálitlum lesvandræðum í grunnskóla og var lengi búinn að hugsa um að gera eitthvað í málinu. En það tók mig sem sagt 30 ár að hafa mig af stað og ég sé ekki eftir því,“ segir G. Einar Svanbergsson. „Ég fór í lesblinduleiðréttingu hjá Lamba, síðan í Skref til sjálfshjálpar hjá SÍMEY og er núna í Námi og þjálfun í bóklegum greinum. Ég er líka búinn að fara í raunfærnimat hjá SÍMEY í stáls- míði. Það er alltaf gaman að koma í SÍMEY því maður finnur að maður er velkominn. Valgeir og Betty og annað starfsfólk vill allt fyrir mann gera og hefur veitt mér frábæran stuðning og hvatningu.“ Frábær andi í Háskólabrúnni „Ég útskrifast úr Háskólabrú í vor og það aldrei að vita nema maður skelli sér í háskólanám innan tíðar. Námið í SÍMEY er frábær kostur fyrir fólk eins og mig sem hættir námi ungt en vill taka upp þráðinn aftur,“ Ásta Heiðrún Stefánsdóttir. „Vinkona mín var í Grunnmennta- skólanum og mælti eindregið með honum. Það kveikti í mér og ég skellti mér þangað, síðan í Menntastoðir og svo í Háskólabrúna. Það er vissulega krefjandi að taka þetta allt á svona stuttum tíma en á móti kemur að starfsfólkið er til þjón- ustu reiðubúið, andinn innan dyra er frábær og félags- skapurinn ekki síðri. Ég mæli hiklaust með SÍMEY.“ Umsagnir nemenda Ágústína Söebech G. Einar Svanbergsson Ásta Heiðrún Stefánsdóttir Símenntunarmiðstöð Eyja-fjarðar, SÍMEY, var stofnuð árið 2000 og hefur gegnt mikil- vægu hlutverki í að efla símennt- un og auka samstarf milli atvinnu- lífs og skóla og styrkja þannig sam- keppnishæfni fyrirtækja og skóla á svæðinu. SÍMEY stuðlar að því að einstaklingar á Eyjafjarðarsvæðinu hafi aðgang að hagnýtri þekkingu á öllum skólastigum. SÍMEY býður upp á lengri námskeið en einnig upp á fjölbreytt úrval styttri námskeiða á hverri önn. Þeim námskeiðum má skipta í sex flokka: Persónuhæfni, starfsnám, almenna þekkingu, tóm- stundir, tungumál og tölvur. Lengd námskeiða er frá einni klukkustund upp í 20 klukkustundir. Allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi og eru frekari upplýsingar birtar á www. simey.is. Höfuðstöðvar SÍMEY eru á Akureyri en einnig er rekið náms- ver á Dalvík, sem sinnir utanverðum Eyjafirði, auk Siglufjarðar. Síðastlið- in þrjú ár hefur orðið mikil aukn- ing á starfsemi stofnunarinnar og ljóst að almenningur og at- vinnulífið hefur mikinn áhuga á uppbyggingunni. SÍMEY - skref til framtíðar Á Eyjafjarðarsvæðinu er fjöldi námskeiða í boði, bæði styttri og eins lengri námskeið sem veita starfsréttindi eða rétt til náms á hærri skólastigum. SÍMEY stuðlar að því að einstaklingar á Eyjafjarðarsvæðinu hafi aðgang að hagnýtri þekkingu á öllum skólastigum. MYND/HEIÐA.IS Háskólabrú Keilis í samvinnu við SÍMEY – Enn er tekið við skráningum Háskólabrú Keilis er aðfararnám að háskólanámi og er það nú kennt í staðnámi á Akureyri. Námið veitir nemendum góðan undirbúning undir háskólanám og er þróað í samstarfi við Háskóla Íslands. Nám á Háskólabrú í staðnámi er fullt nám og er því lánshæft samkvæmt reglum Lánasjóðs ís- lenskra námsmanna (LÍN). Námið hefst 22. ágúst og lýkur ári síðar. Að loknu námi uppfylla nemendur almenn inntökuskilyrði innlendra háskóla og telst námið sambærilegt stúdentsprófi samkvæmt samningi Keilis, HÍ og mennta- málaráðuneytisins. Skráning fer fram í síma 460-5720 eða 578-4020.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.