Fréttablaðið - 09.08.2011, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 09.08.2011, Blaðsíða 24
Sjá heildarframboð á www.opnihaskolinn.is eða hafðu samband við okkur í síma 599 6300 Nýttu þér fjölbreytt námskeið Opna háskólans í HR til að styrkja stöðu þína og stuðla að nýjum sóknarfærum. Hér má sjá brot af námsframboði vetrarins. ÞÚ! ÞETTA SNÝST UM ÞIG OG FRAMTÍÐ NÁMSBRAUTIR Verkefnastjórnun APME (Applied Project Management Expert) Nám samhliða vinnu, kennt í fjarnámi og sam- svarar 24 ECTS einingum. Lögð er áhersla á tölulegar greiningar við ákvarðanatöku og stjórn- un rekstrar og verkefna. Náminu lýkur með alþjóðlegu IPMA-prófi. Hefst 13. september. Markaðssamskipti og almannatengsl Kennd eru undirstöðuatriði öflugs markaðsstarfs. Námið er hagnýtt og miðar að því að dýpka skilning nemenda og efla faglega þekkingu á viðfangsefninu. Námið er byggt upp í samstarfi við ÍMARK, SÍA og Almannatengslafélag Íslands. Hefst 14. september. NÁMSKEIÐ Coaching Clinic Vinnustofa þar sem þátttakendum er veitt hagnýt þjálfun og innsýn í hugmynda- og aðferðafræði markþjálfunar (executive coaching). 18. – 19. ágúst. Business English Hagnýtt námskeið í viðskiptaensku fyrir þá sem vilja efla tungumálafærni sína og skilvirkni viðskiptasambanda. 23. ágúst – 20. september. Nýmiðlun - markaðssetning á Netinu Farið er yfir áhrifaríkar leiðir til árangurs í markaðsstarfi á Netinu. Samfélagsmiðlar, leitar- vélabestun, vefborðar, rafræn fréttabréf og árangursmælingar. 29. – 30. ágúst. NÁMSLÍNUR Mannauðsstjórnun – HRE (Human Resource Expert) Hagnýtt starfsmiðað nám fyrir sérfræðinga í mannauðsmálum. Sniðið að þörfum atvinnu- lífsins og býður upp á hagnýta innsýn í þróun mannauðsmála. Hefst 5. september. Þjónustustjórnun Hagnýtt starfsmiðað nám ætlað sérfræðingum á sviði þjónustu þar sem fjallað er um helstu áskoranir og tækifæri í þjónustu og hvernig má viðhalda samkeppnisforskoti á grunni þjónustu. Hefst 5. október. Rekstrar- og fjármálanám Hagnýtt nám fyrir þá sem vilja auka færni sína í fjármálum og rekstri lítilla og miðlungsstórra fyrirtækja. Hefst 20. september. Viðskipti um vefinn Námskeið fyrir þá sem stunda eða hafa hug á að stunda viðskipti á netinu og byggja upp farsælan rekstur (með sölu á vöru og þjónustu) á þessu öfluga markaðstorgi. Hefst 26. september. Lífsviðhorf – Lífsstíll (Wellbeing) Árangursmiðað nám fyrir þá sem vilja efla persónulega færni og viðhorf, m.a. á sviði fjár- mála, heilsu, samfélagsábyrgðar og árangurs í samskiptum. Hefst 13. september. Verðbréfamiðlun I. hluti Nám til undirbúnings prófa í verðbréfamiðlun. Hefst 7. september. Stjórnun og forysta í ferðaþjónustu Nám sem þjónar sérstöðu og tækifærum íslenskrar ferðaþjónustu. Einnig kennt á Egilsstöðum í október. Hefst 5. október. PMD – stjórnendanám HR Námið er hannað að alþjóðlegri fyrirmynd og lagað að íslenskum aðstæðum til að efla faglega þekkingu og færni stjórnenda. Kennt í Reykjavík og á Akureyri. Hefst 20. október. 7 venjur til árangurs Vinnustofan byggir á mest seldu stjórnunarbók allra tíma: 7 Habits of Highly Effective People, eftir Stephen Covey. 7. – 9. september. Samningatækni Þátttakendur fá hagnýta þjálfun í samninga- tækni sem höfðar til þeirra áskorana sem samningamenn standa frammi fyrir. 8. september. Excel grunnnámskeið Hagnýtt námskeið fyrir þá sem vilja bæta þekkingu sína og færni í notkun Excel. 15. september. Greining ársreikninga Hagnýtt námskeið fyrir þá sem vilja dýpka skilning sinn á greiningu ársreikninga. 12. – 26. september. Grunnatriði verkefnastjórnunar Farið er yfir aðferðir við gerð á góðri verkefna- áætlun og einkenni árangursríkra verkefna. 3. – 4. október. Fjármál – skilningur, greiningar, fjárfestingar Arðsemi og nýting fjármagns, verðmat fyrirtækja, sjóðstreymisflæði, greining ársreikninga o.fl. 3. – 17. október. Framkoma og tjáning Þátttakendur eru þjálfaðir í að tjá sig með skýrum hætti, tala af öryggi fyrir framan hóp af fólki, leggja áherslur á aðalatriði og auka þar með áhrifamátt sinn og útgeislun. 25. október. Ábyrgð og árangur stjórnarmanna Ítarleg kynning á lagalegum, fjárhagslegum og siðfræðilegum þáttum til að efla faglegan grunn og ábyrgð stjórnarmanna. 12. október – 9. nóvember.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.