Fréttablaðið - 11.08.2011, Side 1

Fréttablaðið - 11.08.2011, Side 1
veðrið í dag MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl - júní 2011 EFNAHAGSMÁL Ríkisstjórnin íhug- ar að selja um 18,7% hlut í Lands- banka Íslands. Hlutur þessi er sem stendur í vörslu skilanefndar gamla bankans og ætti að mestu leyti að renna til ríkisins, þegar væntan- legt uppgjör verður milli gömlu og nýju bankanna, segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Með þeirri eignaraukningu yrði Lands- bankinn nær eingöngu í ríkiseigu. „En þarna er á ferðinni umtals- verður eignarhlutur sem engin skuld stendur á móti, þannig að þar yrði um hreinan söluhagnað að ræða ef ríkið kysi að auka ekki hlut sinn í bankanum,“ segir Steingrím- ur, sem hefur reifað hugmyndir um að ríkið láti sér nægja 75% hlut í bankanum. Fram hefur komið að hugsanlega verði 13% hlutur ríkisins í Arion banka seldur, sem og 5% hlutur í Íslandsbanka. Þá er horft til þess að endurselja ýmsar fasteignir sem lent hafa í kjöltu ríkisins. Ekki stendur til að selja hluti ríkisins í sparisjóðum að svo stöddu. Næsta skref, segir Steingrím- ur, er að móta pólitíska stefnu um þessa hluti „með vönduðum og viður kenndum hætti“ og lítur hann þá sérstaklega til reynslu Norð- manna af ríkisbankarekstri. Hann ítrekar að málið sé á undirbúnings- stigi, best sé að anda rólega. Um hvort tryggja skuli dreifða eignaraðild, segir Steingrímur: „Í tilviki litlu bankanna erum við með svo hverfandi lítinn eignar- hluta að það hvernig honum yrði ráðstafað hefur ekki mikið vægi í sambandi við eignarhaldið þar. Ef þeir bankar seldust, sem skila- nefndirnar í sjálfu sér stefna að, þá væntan lega myndi hlutur ríkisins vera seldur þar með. Auðvitað er ekki útilokað að hann yrði seldur sjálfstætt, en það yrði alltaf í sam- ráði við meirihlutaeigendur.“ Um Landsbankann segir hann hins vegar: „Ég teldi auðvitað mjög gott að þegar að slíku kæmi yrði viðkomandi fyrirtæki skráð og það yrði verðmyndun á markaði og sú eign gæti þá mjög gjarnan orðið að einhverju leyti dreifð, en við erum bara ekki komin á þann stað að útlista nákvæmlega hvernig það yrði hugsað. Menn geta treyst einu: það verða ekki vinnubrögðin frá 2002 sem verða viðhöfð.“ - kóþ Fimmtudagur skoðun 16 2 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Allt Fartölvur 11. ágúst 2011 185. tölublað 11. árgangur Menn geta treyst einu: það verða ekki vinnubrögðin frá 2002 sem verða viðhöfð. STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON FJÁRMÁLARÁÐHERRA Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512-5465 Snorri Snorrason snorris@365.is Kvikmyndin Dirty Dancing hafði mikil áhrif á tískuheiminn þegar hún kom út árið 1987. Nú verður myndin endurgerð og Kenny Ortega mun leikstýra. Hvort nýja myndin nái jafn miklum vinsældum og hafi jafn víðtæk áhrif skal ósagt látið. Ugla Hauksdóttir er nýútskrifuð af virtri sjónlistabraut og er lærlingur hjá ljósmyndara fræga fólksins.Draumkennd ljósmyndun U gla Hauksdóttir útskrifaðist í vor af sjónlistabraut hins virta listahá-skóla The Cooper Union í New York. Lagði hún áherslu á ljós- og kvikmyndun. Námsbrautin þykir eftirsóknarverð en af nokkur þúsund umsækjendum fá 65 manns inngöngu og fullan námsstyrk ár hvert. 2 VERÐHRUN 60 - 80%AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM FRÁBÆRT ÚRVAL AF FATNAÐIOG SKÓM. STÆRÐIR 36-52 teg 50590 - mjúkar, frábærar, sjást ekki undir fötum, fást í S,M,L,XL,2X á kr. 2.990,- Laugavegi 178 - Sími: 551 3366 Opið mán.-fös. 10-18.Lokað á laugardögum í sumar.Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.www.misty.is Vertu vinur N Ý K O M N A R A F T U R - “Ó S Ý N I L E G U ” FARTÖ VURFIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2011 KynningarblaðFartölvurForrit Leikir Tilboð Skólatölvur Aukahlutir Launchpad er forrit með við- móti svipuðu iOS, en skjáborðið breytist þá í uppröðun á öllum innsettum forritum á tölvunni sama hvar þau eru staðsett. Hægt er að raða þeim saman í möppur eins og gert er í iOS 4 á iPad, iPhone og iPod Touch og fjar- lægja þau á auðveldan hátt eins og þekkist í því stýrikerfi. Resume, Auto Save og Versions eru mikilvægir eiginleikar en með hjálp þeirra þarftu ekki að opna alla glugga upp á nýtt eftir endurræsingu, þarft aldrei að smella á „Save“ eða Cmd-S og getur spólað til baka, skoðað fyrri útgáfur af skjalinu sem þú ert að vinna í og jafnvel afritað og límt á milli útgáfa. AirDrop er þægileg viðbót sem gerir fólki kleift að deila skjölum á mjög auðveldan hátt á milli tölva á sama þráðlausa neti. Þú sérð einfaldlega lista yfir tölvu- notendur sem eru nálægt þér og dregur skjalið til þeirra og þau fá tilkynningu um það til að taka á móti. Allt án nokkurrar upp- setningar. Mail hefur fengið veigamiklar endurbætur og útlitsbreytingar. Meðal nýjunga er að nú er hægt að hafa forritið í fullri stærð til þess að einblína betur á tölvu- póstinn í stað glugga. Leit hefur verið stórbætt d h BREYTINGAR MEÐ OS X LION Apple hefur nýverið kynnt nýja línu af MacBook Air-vélum sínum. A l fyrir skólafólk á Íslandi. „Nýju MacBook Air-tölvurnar eru hugs- aðar sem skólatölvur. Þær eru líka með nýja Lion-stýrikerfinu “ segir Hjá Epli.is fást einnig MacBook Pro-vélar en þær eru öflugar vélar að sögn Bjarna. „Við erum búin að lækk ðið á þ Ó að sögn Bjarna. „Þær hafa náttúru- lega verið rosalegar. Við afgreiðum bara það sem við fáum Það hefur Apple fyrir skólafólk Bjarni Ákason, framkvæmdastjóri Epli.is, segir að á laugardögum sé haldið ókeypis námskeið fyrir þá sem kaupa tölvur af fyrirtækinu. MYND/STEFÁN AFMÆLISTILBOÐ Opið til 21 í kvöld Kennedy fyrirmyndin Framboðsmynd Björns Jóns Bragasonar í formannskjöri SUS á allra vörum. fólk 46 Minnast Sigursveins Sigursveinn D. Kristinsson tónlistarmaður hefði orðið 100 ára í ár. tímamót 24 HÆGVIÐRI Í dag verður víðast hæg breytileg átt eða hafgola. Bjartviðri en skýjað með köflum V- og A-til. Hiti 10-18 stig. VEÐUR 4 14 14 14 12 13 EFNAHAGSMÁL Friðrik J. Arngríms- son, framkvæmdastjóri Landssam- bands íslenskra útgerðarmanna (LÍÚ) segir hugmyndir ríkisstjórn- arinnar um að sækja meira fé í hend- ur sjávarútvegsfyrirtækja vera atkvæðaveiðar. Tekjur greinarinn- ar skili sér í ríkissjóð. „Það er verið að hækka veiði- leyfagjaldið um 40 prósent og það er komið í 13,3 prósent af reiknaðri framlegð útgerðarinnar. Það þýðir miklu hærri tölu af hagnaðinum. Mér sýnist menn vera að gera sig góða í einhverjum atkvæðaveiðum með því að skattleggja sjávarútveg- inn sérstaklega. Að halda því fram að með því verði heimilin ekki skatt- lögð er auðvitað bara firra. Sjávar- útvegurinn er undirstaðan og allar tekjur sem við fáum renna meira eða minna til ríkisins.“ Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra sagði í samtali við Frétta- blaðið í gær að sækja ætti meira fé til stóriðju, banka og sjávarútvegs. Friðrik minnir á að nýverið hafi verið settur á olíuskattur, sem hjálpi sjávarútvegsfyrirtækjum lítt í háu olíuverði. „Við leggjum áherslu á það að ef sjávarútvegurinn gengur vel þá skilar það sér til þjóðarinnar.“ Friðrik gefur lítið fyrir tal stjórn- valda um að hlífa litlum og meðal- stórum fyrirtækjum við skatta- hækkunum. „Við erum með fullt af litlum og meðalstórum fyrirtækjum í sjávarútvegi. Raunar á það við um flest sjávarútvegsfyrirtækin.“ - kóp Útgerðarmenn óánægðir með áform um hækkun veiðileyfagjalds: Segja ríkisstjórn á atkvæðaveiðum OFURHUGI Á FLUGI Skúli Þórarinsson fallhlífarstökkvari hangir hér utan á væng Yak-flugvélar í fjögur þúsund feta hæð. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Skúli og Snorri Bjarnvin flugmaður leika þennan leik. Sjá síðu 10 MYND/BALDUR SVEINSSON Stór hluti Landsbanka seldur Fjármálaráðherra skoðar hvort skuldlaus fimmtungshlutur í Landsbanka verði seldur. Honum hugnast vel dreift eignarhald og að hluturinn verði seldur á markaðsverði. Sparisjóðirnir eru ekki til sölu sem stendur. Sekkur neðar og neðar Íslenska karlalandsliðið fékk rassskell á móti Ungverjum í Búdapest. sport 38 BRETLAND Yfirvöld í Bretlandi segjast munu taka af fullum krafti á óeirðarseggjum sem hafa valdið miklum skemmdum í borg- um víða um landið. Þrír ungir menn létust þegar ekið var inn í hóp fólks á götu í Birmingham aðfaranótt miðviku- dags. Málið er rannsakað sem morð og er einn í haldi. Alls hafa um 1.200 manns verið handteknir í óeirðunum sem geis- að hafa síðan um helgina. David Cameron sagði að einsk- is yrði látið ófreistað til að stöðva ólætin og hafa hendur í hári glæpamanna. „Ekkert er út af borðinu,“ sagði hann. Meðal annars hefur verið rætt um að nota háþrýstivatns- byssur til að dreifa fjöldanum, en slíkt hefur aldrei verið notað á meginlandi Bretlands. Hann sagði einnig að Bretar myndu ekki láta „hræðslumenn- ingu“ stjórna götum landsins. Boris Johnson, borgarstjóri í London, hefur kallað eftir því að stjórnin endurskoði áætlanir sínar um niðurskurði í löggæslu. - þj sjá síðu 4 Upplausn í Bretlandi: Allt gert til að stilla til friðar

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.