Fréttablaðið - 11.08.2011, Blaðsíða 31
KYNNING − AUGLÝSING11. ÁGÚST 2011 FIMMTUDAGUR
Í meira en aldarfjórðung
hafa Opin kerfi séð
íslenskum tölvunotendum
fyrir hágæða HP-tölvum,
en þær njóta einmitt mestra
vinsælda heimsbúa.
Við erum afar stolt af því að selja HP-tölvur því þær eru leiðandi vörumerki á
tölvumarkaðnum,“ segir Ólafur
Tryggvason, vöru- og viðskipta-
stjóri neytendalausna hjá Opnum
kerfum sem hefur 26 ára reynslu
í innflutningi og þjónustu HP-
tölvubúnaðar.
„HP, eða Hewlett Packard, er
stærsti tölvuframleiðandi heims
og selur langmest allra af tölvu-
búnaði, ásamt því að vera stærsta
upplýsingatæknifyrirtæki heims.
Þróunarvinna þess er afar metn-
aðarfull og árlega setur fyrirtækið
í hana þrjá milljarða Bandaríkja-
dala, sem er meira en margir aðrir
framleiðendur velta á ári,“ upplýs-
ir Ólafur.
Vörulína HP er í senn fjölbreytt
og stór, og á einstaklingsmarkað
kemur nýr búnaður þrisvar á ári.
„Þá er þróun í innri búnaði tölu-
vert mikil þótt ytra útlit breyt-
ist hægar í takt við strauma og
stefnur. Almennt séð byggja tölv-
ur á búnaði sem kemur víðs vegar
að og mikil kúnst að láta hann
vinna óaðfinnanlega saman. Því
skiptir öflug þróunarvinna á vél-
búnaði miklu svo tölva virki sem
best. Þrotlaus vinna HP við að
gera tölvubúnað sinn sterkari,
ásamt því að tengja hann traust-
um fótum saman við önnur tengd
tæki, eins og prentara og net-
þjóna, tryggir að allt vinni óbrigð-
ult saman við ólíkar aðstæður,“ út-
skýrir Ólafur.
Vegna áratuga, farsælla sam-
skipta eru Opin kerfi í góðu sam-
starfi við framleiðendur HP ytra.
„Við verslum beint við HP
Nordic sem þjónustar Norður-
löndin. Það gerir okkur kleift að
hafa bein áhrif á hvaða búnað við
viljum fá. Íslenski markaðurinn
er gjarnan frábrugðinn öðrum og
þá afar dýrmætt að geta komið á
framfæri séróskum til HP, hvort
sem það er í tengslum við tölvu-
búnað fyrir einstaklings- eða fyrir-
tækjamarkað. Tveir samstarfsað-
ilar okkar hérlendis, Omnis og
TRS, eru einnig í góðu samstarfi
við HP Nordic og hafa beint sam-
band vegna fjölþættrar þjónustu
að utan, en sá aðgangur tryggir í
senn faglega þekkingu og miðlun
á upplýsingum,“ segir Ólafur.
„Í ár lögðum við áherslu á að
fá tölvur sem svara betur þörfum
námsmanna. Þess vegna bjóðum
við upp á nýjustu Intel-örgjörva,
umgjarðir úr áli, vökvavarin lykla-
borð, góða vörn fyrir harða diska
og praktíska þætti eins og talna-
borð og Microsoft Office Starter,“
segir Ólafur og bendir á að tölv-
ur, líkt og önnur raftæki, þurfi á
traustri þjónustu að halda og þar
búi Opin kerfi að áratuga reynslu.
„Okkar þjónusta er í föstum
skorðum þegar kemur að viðhaldi
og ábyrgðarviðgerðum. Það er
enda mikils virði fyrir tölvunot-
endur að vinna á tölvum sem eru
vel yfirfarnar af sérfræðingum sem
hafa gert búnaðinn eins góðan og
mögulegt er. Metnaður og ábyrgð
í hvívetna útskýrir vinsældir HP
og hvers vegna þær eru mest seldu
fartölvur veraldar. Fólk veit að þær
bregðast ekki.“
HP tölvur eru fáanlegar í öllum
landshornum og geta viðskipta-
vinir skoðað og keypt HP-tölvu-
búnað hjá samstarfsaðilum um
land allt.
HP eru mest seldu
tölvur í heimi
Ólafur Tryggvason vöru- og viðskipta-
stjóri neytendalausna.
Opin kerfi og OK-búðin eru til húsa í glæsilegu húsnæði að Höfðabakka 9.
Sölunet Opinna kerfa
nær um landið allt.