Fréttablaðið - 11.08.2011, Page 30
KYNNING − AUGLÝSING FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2011
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.
is s. 512 5462 og Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is s. 512 5424 . Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
„Fartölvur eru í dag oft fyrstu hljómflutningsgræjur
unglinga, en hljómgæði þeirra hafa ekki verið full-
nægjandi. Því sérhannaði rapparinn og upptöku-
stjórinn Dr. Dre hljóðkerfið Beats, svo tónlistin gæti
notið sín sem best,“ segir Óskar sem í OK-búðinni
selur Beats-heyrnatól og HP-tölvur með Beats-hljóð-
kerfi sem gerir tónlistarflutning í tölvum að unaðs-
legri upplifun.
„Árið 2008 hóf Dr. Dre samstarf við Monster Cables
sem sérhæfir sig í framleiðslu kapla og annars bún-
aðar fyrir fagaðila í tónlistarbransanum. Fyrsta af-
urðin var Beats-heyrnartól, því eins og Dr. Dre orðaði
það sjálfur voru flott heyrnartól rusl og
gæðaheyrnartól eins útlítandi og gömlu
heyrnartólin hans pabba. Því hann-
aði hann töff heyrnartól með bestu fá-
anlegu hljómgæðum og fór tveimur
árum síðar í samstarf
við HP um að koma
hljómgæðum
sínum enn betur
fyrir í tölvum með
Beats-hljóðstýr-
ingu, hátölurum
og fleiru sem komið er í HP-tölvur síðan og
HP situr eitt að á fartölvumarkaði.“
Beats þykir einkar svalt og hafa gæði þess
fallið vel í kramið hjá tónlistarmönnum í
fremstu röð, eins og Lady Gaga og Black Eyed
Peas. Þá er ein tegund heyrnartóla Beats sérstak-
lega merkt Red, styrktarfélagi mannvinarins Bono
í írska bandinu U2.
Með draumatakti Dr. Dre
OK-búðin við Höfðabakka
er gimsteinn í krúnu
HP-búða Evrópu. Þar
mætir fólki notalegheit og
persónuleg þjónusta við val
á framúrskarandi tölvum.
Hún er stundum kölluð Ókei-búðin og það er líka alveg ókei,“ segir Óskar Sæ-
mundsson, rekstrarstjóri OK-búð-
arinnar, og slær á létta strengi,
enda allt með besta móti í OK-búð-
inni sem er stærsta og glæsilegasta
HP-sérverslun Evrópu.
„Við ákváðum að opna einstaka
tölvuverslun í tilefni 25 ára afmæl-
is Opinna kerfa í fyrra og setja þar
með HP-vörumerkið í þann virð-
ingarsess sem það á skilið,“ bætir
Óskar við.
Í OK-búðinni finnast lausnir
fyrir alla, jafnt einstaklinga sem
fyrirtæki. Þar mætast einnig tveir
ólíkir tölvuheimar, því ásamt HP-
tölvum selur verslunin alhliða
tölvu- og af þreyingarbúnað frá
Apple.
„Tölvunotendur skipast vanalega
í tvær fylkingar, eftir því hvort þeir
aðhyllast PC-tölvur eða Makka. Því
ákváðum við að gera Apple einnig
hátt undir höfði og sinna með því
ólíkum óskum viðskiptavina,“ út-
skýrir Óskar.
Þessa dagana er mikið um dýrð-
ir í OK-búðinni því skólavertíð er í
hámarki og úr mörgu að velja þegar
kemur að úrvali og fágætum kosta-
kjörum.
„Nú er afbragðs tími til að kaupa
tölvur því úrvalið hefur sjaldan
verið meira eða verðið hagstæðara.
Við bjóðum þrjá fjölbreytta kosti af
mest seldu fartölvum í heimi; ódýr-
ar og einfaldar tölvur sem eru til-
valdar til ritvinnslu, netnotkunar og
léttrar Microsoft Office-vinnslu, en
einnig sterkbyggðar, flottar skóla-
tölvur úr ProBook-fyrirtækjalínu
HP. Þá eru einnig á skólatilboði enn
öflugri tölvur, eins og Pavilion með
mikið vinnsluminni, stóran harðan
disk, öflugt skjákort og Beats-hljóð-
kerfi, sem þykir afar eftirsóknarvert
meðal unga fólksins sem vill hlusta
á tónlist í góðum gæðum í tölvunni
sinni,“ upplýsir Óskar.
Í bjartri og fallegri OK-búðinni
ríkir notalegt og afslappað and-
rúmsloft. Þar má því skoða tölv-
ur í rólegheitum með ráðagóðum
fagmönnum og óþarfi að fara sér
óðslega í tölvukaupum.
„Við leggjum mikið upp úr
persónulegri þjónustu og hér er
alltaf nýlagaður kaffisopi og gos-
drykkir í boði fyrir viðskiptavini.
Verslunin á bakland í stóru fyrir-
tæki með þrautreyndum sérfræð-
ingum og varla hægt að reka okkur
á gat með jafnvel flóknustu spurn-
ingum. Við tökum því hlýlega á
móti viðskiptavinum og förum
vel ofan í saumana á því hvað þeir
ætla að nota tölvur sínar í, því
okkur finnst mikilvægt að hver
og einn fái réttu vélina til þeirra
starfa sem hann ætlar sér með
hana,“ segir Óskar.
Tölvudjásn Evrópu
Óskar í fallegri OK-búðinni þar sem vöruúrval er ríkulegt og ávallt í samræmi við óskir markaðarins. MYND/STEFÁN
Rapparinn og upptökustjórinn Dr. Dre með tónlistarmanninum
Jay Z sem er einn margra í fremstu röð sem nota Beats-
hljóðkerfi doktorsins.