Fréttablaðið - 11.08.2011, Page 46
11. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR30 30
menning@frettabladid.is
Málþing helgað Guðrúnu
frá Lundi og öðrum sagn-
firskum sagnaskáldum
verður haldið í Ketilási í
Fljótum laugardaginn 13.
ágúst.
Þetta er annað árið í röð sem mál-
þing um Guðrúnu Árnadóttur, sem
kenndi sig við Lund í Fljótunum, er
haldið í Ketilási. Málþingið í fyrra
var haldið að áeggjan heimamanna
sem vildu efla menningartengda
heimaþjónustu. Á fjórða hundrað
gesta sóttu málþingið og varð því
ekki undan því vikist að endurtaka
leikinn í ár.
„Í fyrra var yfirskrift málþings-
ins: „Er enn líf í Hrútadal?“, sem
er sögusvið Dalalífs. Það reynd-
ist svo sannarlega vera og því
er yfirskriftin í ár: „Það er líf í
Hrútadal,“ segir Guðjón Ragnar
Jónasson einn af skipuleggjend-
um málþingsins en Hrútadalur er
sögusvið Dalalífs sem dregur dám
af Fljótunum og Stíflunni. Guðjón
segir sjónar-
horn dagskrár-
innar víðara í
ár en í fyrra.
„Við beinum
sjónum okkar
einnig að öðrum
sagnaskáldum í
Skagafirði, þótt
Guðrún og verk
hennar séu enn
þungamiðjan.“
Guðjón segir verk Guðrúnar frá
Lundi alls ekki gleymd. Miðað við
útlán á bókasöfnum er Guðrún frá
Lundi enn einn vinsælasti rithöf-
undur þjóðarinnar; á bókasafninu
í Skagafirði hafi til að mynda þurft
að binda bækur hennar inn til að
forða þeim frá sliti.
„Ég held að fólk sæki í bækur
hennar því sjónarhorn hennar er
svo sérstakt. Hún fangar tíðarand-
ann afskaplega vel og gegnum verk
hennar birtist andblær hins liðna
manni ljóslifandi. Fyrirmyndum
Hrútadals, Fljótunum og Stíflu,
var sökkt 1945 en Dalalíf kom út
árið eftir og þegar maður lítur yfir
svæðið sér maður fyrir sér bæina
sem Guðrún skrifar um.“
Svandís Svavarsdóttir mennta-
málaráðherra setur málþingið á
laugardag. Að því loknu flytur
Baldur Hafstað prófessor erindi
um skagfirska sagnamenningu.
Hallgrímur Helgason rithöfund-
ur og Álfdís Þorleifsdóttir, meist-
aranemi í íslensku, flytja erindi
um verk Guðrúnar, auk þess sem
Hallgrímur heldur spurninga-
keppni, Flettu betur. Fluttur
verður leikþátturinn Brot úr degi
Guðrúnar frá Lundi, eftir Ingi-
björgu Hjartardóttur.
Þá verður efnt til landsmótsles-
hópanna, þar sem almennir les-
endur geta lagt orð í belg um höf-
undarverk Guðrúnar. Um kvöldið
verður slegið upp harmoníkuballi
þar sem andi Hrútadals svífur
yfir vötnum.
„Við leggjum áherslu á að þetta
er alþýðleg bókmenntahátíð, þar
sem allir geta tekið þátt,“ segir
Guðjón. „Við keyrum þetta áfram
á léttleikanum og gleðinni.“
bergsteinn@frettabladid.is
Hrútadalur lifnar við
Mörg tónskáld hafa verið samkyn-
hneigð. Corelli var hommi, líka
Saint-Saens, Tsjajkovskí, Leonard
Bernstein, John Cage og ótal fleiri.
Sjálfsagt hafa allnokkrir tónleikar
verið haldnir á Íslandi þar sem ein-
göngu klassísk tónlist eftir samkyn-
hneigð tónskáld hefur verið á dag-
skránni. En það hefur aldrei verið
yfirlýst þema tónleikanna fyrr en
nú. Alltént man ég ekki eftir því.
Í tilefni Hinsegin daga í Reykja-
vík var efnt til slíkra tónleika í
einum af minni sölum Hörpunnar,
Norðurljósum. Þetta eru aðrir tón-
leikarnir sem ég fer á í Norðurljós-
um, hinir fyrri voru rafmagnaðir.
Það var allt í lagi með þá. Sömu
sögu er ekki að segja nú. Tónlist-
in var órafmögnuð, hljóðfæraleik-
urinn og söngurinn. Hvorugt kom
nægilega vel út í hljómburði salar-
ins. Strengir virkuðu flatir og lit-
lausir, Gunnhildur Daðadóttir á
fiðlu, Guðný Jónasdóttir á selló og
sjálf Sigrún Eðvaldsdóttir. Mér
heyrðist Sigrún reyna að bregðast
við þessum aðstæðum með óhóf-
legu víbratói, en það virkaði ekki
sem skyldi.
Þess ber að geta að bæði Guðný
og Gunnhildur eru fremur óreynd-
ir spilarar. Og það er ekki auðvelt
að gera sitt besta á tónleikum þar
sem efnisskráin er bland-í-poka.
Hver flytjandi hefur aðeins nokkr-
ar mínútur. Það er enginn tími til
að komast almennilega í gang. Þetta
var fremur áberandi galli á tónleik-
unum. Flytjendur týndu sér aldrei í
tónlistinni.
Söngurinn kom ekki betur út í
hljómburðinum. Í minningunni um
frábæra tónleika í Salnum í vetur
var hin bráðefnilega Herdís Anna
Jónasdóttir aðeins skugginn af
sjálfri sér. Bergþór Pálsson var líf-
legur og skemmtilegur að vanda, en
rödd hans hefur notið sín betur ann-
ars staðar. Fallegar raddir þeirra
Eyjólfs Eyjólfssonar og Hafsteins
Þórólfssonar hljómuðu ekki heldur
nægilega vel. Sömu sögu er að segja
um klarinettuleik Einars Jóhannes-
sonar og píanóleik Önnu Guðnýjar
Guðmundsdóttur. Og fleira.
Í rauninni hefðu þetta verið leið-
inlegir tónleikar ef Árni Heimir
Ingólfsson, sem sá um langmestan
meðleikinn, hefði ekki verið svona
skemmtilegur. Hann spilaði prýði-
lega, og svo var hann einstaklega
líflegur þegar hann talaði á milli
atriða og sagði frá músíkinni sem
var næst á dagskrá. Þetta gerði að
verkum að sjálfur tónlistarflutn-
ingurinn varð aukaatriði. Allt sem
fólk fékk að vita UM tónlistina – það
var málið. Árni Heimir reytti af sér
brandarana og maður skellihló hvað
eftir annað. Tónskáldin, líf þeirra
og verk, sögulegur bakgrunnur
– þetta varð ljóslifandi í hugskoti
manns.
Hljómburðurinn í Norðurljósum
er vissulega vonbrigði. En eins og
kom hér fram að framan virðist raf-
mögnuð tónlist þar hljóma vel. Og
veggirnir geta skipt litum, sem er
einstakt á Íslandi. Þetta gerir Norð-
urljósin að ákjósanlegum vettvangi
fyrir rafmagnaða, „nýgilda“ tónlist.
En klassíkin ætti sennilega að vera
annars staðar. Jónas Sen
Niðurstaða: Fremur misjafnir
tónleikar sem liðu fyrir slappan
hljómburð. En kynningin á verkunum
og tónskáldunum var frábær.
Flott kynning en fátt annað
Tónlist ★★★
Á hinsegin nótum
Tónlist eftir samkynhneigð tón-
skáld í Norðurljósum Hörpu.
Flytjendur: Ýmsir Kynnir: Árni
Heimir Ingólfsson
GUÐJÓN RAGNAR
JÓNASSON
BALKÖNSK SVEIFLA FYRIR NORÐAN Hljómsveitin Skuggamyndir frá Býsans leikur á Listasumri á Akureyri í kvöld
og á Café Haiti í Reykjavík á morgun. Báðir tónleikarnir hefjast kl. 21.30. Efnisskrá hljómsveitarinnar er samsett úr þjóðlegri tónlist
frá Balkanlöndunum. Hljómsveitina skipa Haukur Gröndal á klarínett, Ásgeir Ásgeirsson á tamboura, bouzouki og saz, Þorgrímur
Jónsson á rafbassa og Erik Qvick á trommur og slagverk.
LJ
Ó
SM
YN
D
/B
EN
M
AT
H
IS
1
3
5
7
9
2
4
6
8
10
Frelsarinn - kilja
Jo Nesbø
Íslenskur fuglavísir - nýr
Jóhann Óli Hilmarsson
Hefndargyðjan
Sara Blædel
Skindauði - kilja
Thomas Enger
Einn dagur - kilja
David Nicholls
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT
03.08.11 -09.08.11
Ófreskjan
Roslund & Hellstrom
Ég man þig - kilja
Yrsa Sigurðardóttir
Nemesis - kilja
Jo Nesbø
Sokkaprjón
Guðrún S. Magnúsdóttir
10 árum yngir á 10 vikum
Þorbjörg Hafsteinsdóttir
STÍFLA FYRIR VIRKJUN Stífla í Fljótum er fyrirmynd Hrútadals í Dalalífi Guðrúnar frá Lundi. Árið 1940 var ákveðið að virkja Stífluá
til að sjá Siglfirðingum fyrir rafmagni. Fór þá ein fegursta sveit landsins undir vatn en hún lifir áfram í verkum Guðrúnar.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 11. ágúst
➜ Tónleikar
20.00 Sænsku tónskáldin Eva Sidén
og Jens Hedman verða með tónleika í
Norræna húsinu. Aðgangur er ókeypis.
21.30 Hljómsveitin Skuggamyndir
frá Býsans leika í Deiglunni, Akureyri.
Aðgangseyrir er kr. 2.000 en kr. 1.000
fyrir félaga í Djassklúbbi Akureyrar.
22.00 Hljómsveitin Coral með útgáfu-
tónleika á Faktorý. Hljómsveitin Cater-
pillarmen sér um upphitun. Aðgangur
er ókeypis.
22.00 Hljómsveitin Prinspóló
heldur tónleika á Café Riis, Hólmavík.
Aðgangseyrir er kr. 1.000.
22.00 Pétur Ben og Eberg halda
útgáfutónleika á Sódómu. Hljómsveitin
Ourlives sér um upphitun. Aðgangseyrir
er kr. 1.500.
➜ Söfn
20.00 Minjasafn Reykjavíkur, Ljós-
myndasafn Reykjavíkur, Borgarbókasafn
og Listasafn Reykjavíkur standa fyrir
sameiginlegri kvöldgöngu um Laugaveginn
og nágrenni. Gangan tekur um klukku-
stund og er lagt af stað milli Tryggvagötu
15 og 17. Þátttaka er ókeypis.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is