Fréttablaðið - 11.08.2011, Blaðsíða 54
11. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR38
sport@frettabladid.is
Búdapest í Ungverjalandi
Ungverjaland Ísland
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 18–8 (10–1)
Varin skot Bogdán 1 – Stefán Logi 4
Horn 8–5
Aukaspyrnur fengnar 13–12
Rangstöður 3–2
ÍSLAND 4–3–3
Stefán Logi Magnússon 6
Birkir Már Sævarsson 4
(74., Arnór Sveinn Aðalsteinsson -)
Eggert Gunnþór Jónsson 5
Hermann Hreiðarsson 4
(68., Elfar Freyr Helgason 4)
Indriði Sigurðsson 3
(52., Hjörtur Logi Valgarðsson 5)
Aron Einar Gunnarsson 4
(66., Jón Guðni Fjóluson 4)
Eiður Smári Guðjohnsen 5
(83., Arnór Smárason -)
Birkir Bjarnason 5
Rúrik Gíslason 3
Jóhann Berg Guðmundsson 4
Heiðar Helguson 2
(46., Alfreð Finnbogason 4)
1-0 Vladimir Koman (32.)
2-0 Gergely Rudolf (45.)
3-0 Balázs Dzsudzsák (59.)
4-0 Ákos Elek (88.)
4-0
Stark, Þýskalandi (8)
STÆRSTA TAP Í VINÁTTULEIK SÍÐAN 2004 Íslenska karlalandsliðið hefur ekki tapað stærra í vináttulandsleik
síðan að liðið steinlá 6-1 á móti Englendingum á Manchester-mótinu 5. júní 2004. Wayne Rooney skoraði þá tvö markanna
en hin mörk þeirra gerðu Frank Lampard, Darius Vassell (2) og Wayne Bridger. Heiðar Helguson minnkaði muninn í 3-1.
KÖRFUBOLTI Helena Sverrisdóttir
verður ekki eina íslenska körfu-
boltakonan sem spilar í Evrópu í
vetur því þær Fanney Lind Guð-
mundsdóttir og Ragna Margrét
Brynjarsdóttir eru einnig á útleið.
Fanney hefur samið við franska
liðið Union Sportive de La Gla-
cerie sem spilar í NF2-deildinni
og Ragna Margrét ætlar að fylgja
kærasta sínum, Pavel Ermolinskij,
til Sundsvall í Svíþjóð.
„Ég er búin að vera að stefna
að þessu í ár. Ég er mjög spennt
fyrir þessu en líka smá stressuð.
Þetta verður öðruvísi enda í fyrsta
skiptið sem ég spila fyrir annað lið
en Hamar. Ég var lengi að hugsa
þetta því það var svolítið erfitt að
fara frá Hamri. Það er bara ekki
oft sem maður fær svona tæki-
færi og ég ákvað bara að slá til,“
sagði hin 22 ára Fanney sem er á
leiðinni til Cherbourg í Normandí-
héraði í Frakklandi. Fanney ætlar
bara að einbeita sér að körfunni úti
en hún verður ekki ein úti þar sem
fjögurra ára dóttir hennar, Máría
Líney Dalmay, verður með í för.
„Hún verður með mér úti en
kemur nokkrum vikum seinna
með mömmu. Ég verð síðan með
„au pair“ sem mun gæta hennar á
meðan ég er á æfingum og í leikj-
um. Þetta er algjör draumur og ég
er mjög ánægð,“ sagði Fanney sem
kvíðir því ekki að vera einstæð
móðir í atvinnumennsku.
„Það er allt hægt og ég ákvað
bara að prófa þetta,“ sagði Fanney
sem var lykilmaður í deildarmeist-
araliði Hamars á síðasta tíma-
bili. „Ég er mjög stolt af mínum
tíma í Hamri en þetta verður bara
ævintýri,“ sagði Fanney Lind sem
mun spila í sömu deild og Sigrún
Ámundadóttir gerði á síðasta tíma-
bili.
Ragna Margrét sem hefur leik-
ið með Haukum ætlar að spila
með KFUM Sundsvall í næstefstu
deildinni í Svíþjóð.
„Ég hafði samband við þjálfar-
ann og spurði hvort ég mætti ekki
vera með. Hann var mjög glaður
með það,“ sagði Ragna Margrét.
Telja má líklegt að Ragna verði
mikill liðstyrkur fyrir Sundsvall-
liðið enda spilaði hún mjög vel með
Haukum á síðustu leiktíð og var
valin í lið ársins.
- óój, ktd
Fanney Lind Guðmundsdóttir og Ragna Margrét Brynjarsdóttir ætla báðar að spila í Evrópu í vetur:
Einstæð móðir á leiðinni í atvinnumennsku
FANNEY LIND GUÐMUNDSDÓTTIR Í leik með Hamarsliðinu á síðasta tímabili.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Undankeppni EM 2012
C-RIÐILL
Norður-Írland - Færeyjar 4-0
Vináttulandsleikir
Úkraína - Svíþjóð 0-1
0-1 Tobias Hysen (90.)
Noregur - Tékkland 1-0
1-0 Moa (23.), 2-0 John Arne Riise (72.), 3-0
Moa, víti (89.)
Ítalía - Spánn 2-1
1-0 Riccardo Montolivo (11.), 1-1 Xabi Alonso, víti
(37.), 2-1 Alberto Aquilani (84.).
Skotland - Danmörk 2-1
1-0 William Kvist, sjálfsmark (23.), 1-1 Christian
Eriksen (31.), 2-1 Robert Snodgrass (44.).
Þýskaland - Brasilía 3-2
1-0 Bastian Schwinsteiger, víti (61.), 2-0 Mario
Götze (67.), 2-1 Robinho, víti (71.), 3-1 Andre
Schürrle (80.), 3-2 Neymar (90.).
Frakkland - Síle 1-1
1-0 Loic Remy (20.), 1-1 Nicolas Cordova (76.).
Portúgal - Lúxemborg 5-0
1-0 Helder Postiga (26.), 2-0 Cristiano Ronaldo
(44.), 3-0 Fabio Coentrao (46.), 4-0 Hugo
Almeida (58), 5-0 Hugo Almeida (73.)
Rússland - Serbía 1-0
Lettland - Finnland 0-2
Hvíta-Rússland - Búlgaría 1-0
Kýpur - Moldóva 3-2
Fílabeinsströndin - Ísrael 4-3
Albanía - Svartfjallaland 3-2
Liechtenstein - Sviss 1-2
Pólland - Georgía 1-0
San Marino - Rúmenía 0-1
Tyrkland - Eistland 3-0
Austurríki - Slóvakía 1-2
Írland - Króatía 0-0
Slóvenía - Belgía 0-0
Wales - Ástralía 1-2
Bosnía - Grikkland 0-0
ÚRSLIT
MARIO GÖTZE Þýska undrabarnið
skoraði í fyrsta sigri Þjóðverja á Brössum
í átján ár. MYND/NORDIC PHOTOS/BONGARTS
ALBERTO AQUILANI Livepool-maðurinn
tryggði ítölum sigur á heimsmeisturum
Spánverjar í Bari í gær. MYND/AFP
FÓTBOLTI Ólafur Jóhannesson þurfti
að horfa upp á eina verstu frammi-
stöðu íslenska landsliðsins undir
sinni stjórn í gærkvöldi þegar
Ungverjar unnu 4-0 stórsigur á
íslenska landsliðinu í vináttulands-
leik í Búdapest. Var þetta kannski
eins og gamla stórveldi Ungverja
væri að vakna úr dvala? Nei, svo
var nú ekki því lítið mótstaða og
ítrekuð mistök íslensku leikmann-
anna sáu til þess að heimamenn
litu út eins og ein af betri knatt-
spyrnuþjóðum Evrópu.
„Þetta var alls ekki gott. Okkur
var refsað grimmilega fyrir allt
sem við gerðum illa. Ég er ekki
viss um að segja að þetta hafi
verið versti leikurinn undir minni
stjórn en þetta var allavega versta
tapið. Tölurnar eru stórar,“ sagði
Ólafur eftir leikinn í gær.
Íslenska liðið mætir með
auman rassinn inn í lokaleiki
sína í undankeppninni og er víst
til að falla enn neðar á hinum
umtalaða FIFA-lista bætist
enn fleiri töp við á síðustu
vikum Ólafs Jóhannessonar í
landsliðsþjálfarastöðunni.
„Það vantaði í okkar hóp hérna
og þeir menn sem ég valdi fyrir
þetta koma líklega allir inn
aftur. Auðvitað verða einhverjar
breytingar eins og alltaf eru á
milli leikja.Það er slæmt að tapa
og það fer á sálina á mönnum
þegar hlutirnir ganga ekki upp.
Það er bara staðreynd. Þetta lítur
þetta ekki vel út og auðvitað fer
þetta líka á sálina hjá mér,“ sagði
Ólafur.
Ólafur Jóhannesson hefur mátt
þola harða gagnrýni í nokkurn
tíma enda hefur gengi liðsins verið
afar slakt. Ólafur gat þó oftast í
það minnsta borið fyrir sig að liðið
hafi verið að spila þokkalega en
svo var nú ekki í gær. „Ég spilaði
bara með einn varnarsinnaðan
miðjumann og það eru því ákveðin
vonbrigði að við skyldum ekki
skapa okkur fleiri færi,“ sagði
Ólafur.
Íslenska liðið átti nokkra ágæta
spilakafla í fyrri hálfleiknum með
þá Eið Smára Guðjohnsen og Birki
Bjarnason í fararbroddi en liðinu
gekk illa að skapa sér færi með
Heiðar Helguson algjörlega týnd-
an í fremstu víglínu. Heiðar gerði
að auki slæm mistök þegar Ung-
verjarnir komust yfir á 32. mínútu.
Heiðar átti þá slæma sendingu
sem reyndist vera fyrirtaksstoð-
sending á Vladimir Koman sem
lék upp að teignum og skoraði með
góðu skoti fyrir utan teig.
Ungverjar bættu síðan við öðru
marki á lokamínútu fyrri hálf-
leiksins þegar Gergely Rudolf
slapp í gegn eftir skyndisókn,
sólaði Stefán Loga Magnússon og
skoraði af öryggi.
Íslenska liðið byrjaði seinni
hálfleikinn af smá krafti en önnur
varnarmistök gáfu Ungverjum
þriðja markið og eftir það var
íslenska liðið sem lamað inn á vell-
inum á meðan heimamenn léku sér
og gátu bætt við nokkrum mörk-
um. Það var þó bara eitt mark sem
bættist við og er hægt að þakka
markverðinum Stefáni Loga Magn-
ússyni fyrir það.
Það munar 74 sætum á Ungverj-
um og Íslendingum á Styrkleika-
lista FIFA og það má lesa milli lín-
anna hjá forráðamönnum KSÍ að
staða íslenska landsliðsins á list-
anum gefi nú ekki rétta mynd af
styrk íslenska fótboltans. Í gær-
kvöld var gullið tækifæri til að
opinbera vankanta heimslistans
en þegar upp var staðið gengu
íslensku landsliðsmennirnir nið-
urlútir af velli vitandi það að það
er ekki tilviljun að íslenska lands-
liðið er í 121. sætinu.
Það er löngu orðið ljóst að Ólaf-
ur Jóhannesson er að stýra sínum
síðustu landsleikjum en í gærkvöld
læddist einnig að manni sá grunur
að nokkrir leikmenn liðsins væri
einnig komnir á endastöð. Heiðar
Helguson og Indriði Sigurðsson
hreyfðust varla á vellinum og fyr-
irliðinn Hermann Hreiðarsson var
örugglega manna fegnastur þegar
hann var tekinn út af í seinni hálf-
leik. ooj@frettabladid.is
Hversu langt getur liðið sokkið?
Íslenska landsliðið í fótbolta beið afhroð í vináttulandsleik á móti Ungverjum í Búdapest í gærkvöldi en
liðið steinlá 0-4 og hefur aldrei tapað stærra undir stjórn Ólafs Jóhannessonar. Ungverjar refsuðu íslensku
strákunum fyrir mistökin og brutu á endanum allan vilja og kraft úr íslenska liðinu.
LANDSLIÐIÐ OKKAR Í SLÆMUM MÁLUM Eiður Smári Guðjohnsen var einn skásti leikmaður íslenska liðsins í gær en mátti oft ekki
við margnum. NORDICPHOTOS/AFP
Stærstu töpin undir stjórn Ólafs Jóhannessonar:
0-4 á móti Ungverjum í Búdapest 10. ágúst 2011
0-3 á móti Dönum í Kaupmannahöfn 21. nóvember 2007
1-3 á móti Portúgölum á Laugardalsvelli 12. október 2010
0-2 á móti Makedóníu í Skopje 10. júní 2009
0-2 á móti Holland í Rotterdam 11. október 2008
0-2 - á móti Hvíta-Rússlandi á Möltu 2. febrúar 2008