Fréttablaðið - 11.08.2011, Blaðsíða 2
11. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR2
Sævar Freyr, er ekki mikil
samkeppni á þessum nám-
skeiðum?
„Jú, það er mikil samkeppni og það
er eins gott að enginn falli.“
Starfsmenn Símans eru sendir á sérstök
samkeppnisnámskeið eftir að Sam-
keppniseftirlitið sektaði fyrirtækið fyrir
brot á samkeppnislögum. Sævar Freyr
Þráinsson er forstjóri Símans.
VEITINGAREKSTUR Félag kráareigenda
leggur til að veitingastaðir fái bjór
og léttvín á sérkjörum svo að hægt
verði að bjóða upp á slíkar veigar á
hagstæðu verði. Arnar Þór Gíslason,
sem rekur Enska barinn, Dönsku
krána og Oliver, segir að með þessu
móti mætti bæta vínmenningu land-
ans og minnka álag hjá lögreglunni.
„Með þessum breytingum myndi
kúnninn fara fyrr út og þá fyrr
heim líka,“ segir hann. „Þar að auki
myndi ungt fólk
læra að drekka
þessa drykki
í stað þess að
drekka landa, en
neyslan á honum
eykst með hækk-
andi áfengis-
verði. Þá myndi
líka ungt fólk
drekka minna af
sterku áfengi.“
Hann segir, líkt og Óli Már Óla-
son, annar eigenda Vegamóta, að
eftir að áfengisverð hækkaði í kjöl-
far efnahagshrunsins komi fólk
síðar á veitingastaðina og krárnar
og sé jafnframt ölvaðra þar sem
það sitji lengur við drykkju í heima-
húsum.
ÁTVR heyrir undir fjármálaráðu-
neytið og segir Steingrímur J. Sig-
fússon fjármálaráðherra að hann
hafi ekki heyrt neinar hugmyndir í
þessum toga og myndi vilja fá frek-
ari rökstuðning fyrir þeim áður en
hann tjái sig um þær. Ívar J. Arndal,
forstjóri ÁTVR, vildi heldur ekki tjá
sig um þessar hugmyndir.
Arnar Þór er vongóður um að
þessi breyting nái fram að ganga
jafnvel þó að hingað til hafi ekki
verið tekið mikið tillit til óska veit-
ingamanna.
Vilja lægra bjórverð
svo gestir komi fyrr
Félag kráareigenda vill fá yfirvöld í samstarf um að bjóða bjór og léttvín á
lægra verði með það fyrir augum að fá gesti til að koma fyrr á öldur- og veit-
ingahús og fara fyrr. Fjármálaráðherra tjáir sig ekki að svo stöddu um það.
GULLIÐ FLÆÐIR Á ENSKA BARNUM Elva Dröfn Sigurjónsdóttir dælir hér Gulli í
hádeginu í gær á Enska barnum. Eigandinn segir að með hækkandi áfengisverði
komi gestir seinna og jafnvel ölvaðri en áður. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ARNAR ÞÓR
GÍSLASON
EVRÓPUMÁL Nú telja 79% íbúa
Evrópusambandsins að aukin
samþætting efnahagsstefnu ESB-
ríkja yrði árangursrík í glím-
unni við yfirstandandi fjárhags-
vanda, en 13 prósent telja að svo
yrði ekki, að því er kemur fram í
Eurobarometer-skoðanakönnun,
er kynnt var á dögunum.
Þar kemur og fram að um 77%
telja það bæri árangur ef ESB
fylgdist nánar með framferði
stærstu fjármálastofnana og 73%
telja árangursríkt að ESB setji
fjármálaþjónustu skýrari mörk.
Vilji íbúa til samræmdra
aðgerða í efnahagsmálum hefur
því aukist milli ára og er hreinn
meirihluti í öllum aðildarríkjum
fyrir þeim. - kóþ
Evrópubúar sammála:
Vilja aukna
samþættingu
fjármála
Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tekur ekki vel í hugmyndir
Félags kráareiganda heldur verði að snúa sér að rót vandans. „Þessar glóru-
lausu hækkanir ríkistjórnarinnar á áfengissköttum skila í raun lægri tekjum í
þjóðarbúið en síðan valda þær líka siðrofi þar sem verið er að lokka fólk til
lögbrota, þar á ég við brugg og smygl.“ Hann segir arðbærara að skattleggja
áfengi, sem og aðrar vörur, hóflega.
Engar undanþágur bara lægri gjöld
SLYS Franskur ferðamaður féll í
hver í Reykjadal upp af Hvera-
gerði rétt eftir hádegi í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá
varðstjóra hjá lögreglunni á Sel-
fossi var ferðamaðurinn að taka
ljósmyndir og rann til. Hann
endaði með báða fætur ofan í
hvernum.
Hann hlaut fyrsta og annan
stigs bruna á báðum fótum og
upp á kvið. Hann leitaði sér
sjálfur aðstoðar á heilsugæslu-
stöðinni í Hveragerði en var
fluttur þaðan með sjúkrabíl á
Landspítalann í Fossvogi þar
sem hann dvelur nú.
Frakki féll í hver í Hveragerði:
Brenndist á
fótum og kviði
TÍSKA Halldóra Eydís Jónsdótt-
ir, skóhönnuður var beðin um
að sýna fyrstu
línu sína á
tískuvikunni
í Boston. Hún
var valin úr
hópi alþjóð-
legra hönnuða
til að taka þátt
í sýningunni
The Emerg-
ing Trends
þar sem verk
fimmtán upprennandi hönnuða
um víðan heim eru sýnd.
Sýningin hefur reynst ágæt-
ur stökkpallur fyrir þá hönn-
uði sem fengið hafa að taka þátt
í henni. Þátttakendum hefur
meðal annars gengið vel í sjón-
varpsþættinum Project Runway
og fengið hönnun sína birta
á síðum lífsstílstímaritsins
Glamour. - mmf / sjá Allt
Sýnir fyrstu línu sína:
Beðin um að
sýna í Boston
HALLDÓRA EYDÍS
JÓNSDÓTTIR
REYKJAVÍK Skólastarf er að hefj-
ast í 37 almennum grunnskólum
í Reykjavík, tveimur sérskólum
og fimm einkaskólum. Um 14
þúsund nemendur á grunnskóla-
aldri setjast á skólabekk, þar af
eru um 1.400 börn sem hefja nám
í 1. bekk.
Undirbúningsstarf fyrir skóla-
byrjun er nú í fullum gangi og
verður skólasetning mánudag-
inn 22. ágúst í öllum almennum
grunnskólum borgarinnar en
verður auglýst nánar þegar nær
dregur.
Samkvæmt tilkynningu frá
Reykjavíkurborg má finna frek-
ari upplýsingar um upphaf skóla-
halds og innkaupalista á heima-
síðum skólanna.
Skólastarf að hefjast:
1.400 börn að
byrja í 1. bekk
Hann segir enn fremur að Reykja-
víkurborg mætti hafa meira samráð
við kráareigendur áður en ákvarð-
anir séu teknar, til dæmis hafi
Félag kráareigenda verið tilbúið til
að stytta afgreiðslutímann um eina
klukkustund á föstudags- og laugar-
dagskvöldum gegn því að fá að hafa
opið til klukkan tvö á fimmtudögum.
„Við vorum ekkert að falast eftir því
að fá að selja áfengi eftir klukkan
eitt en við töldum það gæfulegra ef
gestir gætu fengið að sitja inni hjá
okkur til klukkan tvö, þá gæti þeir
klárað í rólegheitunum án þess að
þurfa að skvetta þessu í sig áður en
þeim er gert að yfirgefa staðinn.
Þessi breyting hefði líka komið sér
vel fyrir lögregluna en vegna vakta-
skipulagsins hentar þeim illa að fá
holskefluna klukkan eitt.“
jse@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Hlutabréfamarkaðir í Frakklandi og
Þýskalandi féllu um meira en fimm prósentustig
í gær eftir að orðrómur um mögulega lækkun á
lánshæfismati franska ríkisins komst á kreik.
Verulegur ótti er enn á fjármálamörkuðum og
lítið þarf til að hræða fjárfesta.
Helstu matsfyrirtækin þrjú, Moody‘s, Standard
& Poor‘s og Fitch, tilkynntu seinna í gær að engin
breyting yrði gerð á lánshæfiseinkunn franska
ríkisins, hún væri enn AAA.
Hlutabréf franska bankans Societe Generale
lækkuðu um rúm 20 prósent. Við lokun nam
lækkunin tæpum 15 prósent.
Bandaríska hlutabréfavísitölur fylgdu þeim
evrópsku eftir. Dow Jones-hlutabréfavísitalan
lækkaði um 4,63 prósent eða 520 stig, S&P 500
lækkaði um 4,42 prósent og Nasdaq um 4,09 pró-
sent.
Bandaríski seðlabankinn tilkynnti í fyrradag
að hann ætlaði að halda stýrivöxtum sínum í núll
prósentustigum til ársins 2013 til að styðja við
bandarískt efnahagslíf. Vonast var til að yfirlýs-
ingin myndi róa markaðina en það dugði ekki til.
Gríðarleg spenna á hlutabréfamörkuðum beggja vegna Atlantshafs:
Mikil lækkun á mörkuðum
WALL STREET Mikil spenna er á hlutabréfamörkuðum þessa
dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
REYKJANES
Dýragarði lokað
Landnámsdýragarðinum á Fitjum í
Reykjanesbæ hefur verið lokað, að
því er fram kemur á vef Víkurfrétta.
Samkvæmt blaðinu var aðsókn í
garðinn góð í sumar.
REYKJAVÍK Fulltrúar minnihlutans
í borgarstjórn deildu hart á meiri-
hlutann þegar þriggja ára áætlun
Reykjavíkurborgar var lögð fyrir
á aukafundi borgarstjórnar í gær.
Meirihlutinn segir að lengi hafi
legið fyrir að áætlunin yrði ekki
lögð fram fyrr en fjármögnun
nýrra málaflokka lægi fyrir.
Sjálfstæðismenn deildu á meiri-
hlutann vegna áminninga og fjár-
sekta sem innanríkisráðuneytið
lagði á borgina vegna vanskila á
þriggja ára áætluninni.
Hanna Birna Kristjánsdóttir,
oddviti sjálfstæðismanna sagði í
ræðu sinni að seinkunin væri óvið-
unandi fyrir stærsta sveitarfélag
landsins.
„Það virðist einfaldlega sem
meirihlutinn ráði ekki við verk-
efnið, ráði ekki við algjöra grunn-
þætti í rekstri borgarinnar,“ sagði
Hanna Birna.
Hún sagði nóg komið af ráðaleysi
borgaryfirvalda „og löngu kominn
tími til að forystufólk meirihlut-
ans taki á málum af meiri metnaði,
ábyrgð og alvöru“.
Dagur B. Eggertsson, formað-
ur borgarráðs, segir í samtali við
Fréttablaðið að honum finnist „upp-
hlaup“ vegna
þessa vera hálf
vandræðalegt.
Minnihlutanum
hefði átt að vera
ljóst frá upp-
hafi árs að áætl-
unin yrði ekki
afgreidd fyrr en
kostnaður vegna
yfirfærslu mál-
efna fatlaðra til
sveitarfélaga yrði skýrður. Það hafi
verið rætt reglulega í borgarráði.
Dagur segir þriggja ára áætlan-
ir frá hruni hafa verið „í skötulíki“
vegna óvissuþátta. Þær hafi í raun
verið framreikningar og ekki mjög
upplýsandi um framtíðarhorfur.
„Ef þetta væri svona stórt mál
hefðu fulltrúar minnihlutans getað
kallað eftir þessari einföldu áætlun
löngu fyrr. Að minnsta kosti áður
en þeir fóru í sumarfrí.“
Áætlunin verður tekin til síð-
ari umræðu og afgreiðslu í borg-
arstjórn í næstu viku, en Dagur
segir fimm ára áætlun fyrir fjár-
mál borgarinnar vera í burðarliðn-
um. Þar verði betur tekið á óvissu-
þáttum og er stefnt að því að hún
verði fullbúin í haust. - þj
Deilur í borgarstjórn Reykjavíkur vegna seinkunar á skilum þriggja ára áætlunar:
Segir upphlaup minnihlutans vandræðalegt
DAGUR B.
EGGERTSSON
SPURNING DAGSINS
lengra
geymsl
uþol
nú með
tappa
Ljúffengar uppskriftir með matreiðslurjóma
er að finna á www.gottimatinn.is