Fréttablaðið - 11.08.2011, Qupperneq 44
11. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR28
BAKÞANKAR
Sigríðar
Víðis
Jónsdóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Einn daginn þegar afi minn vaknaði var hrím í loftinu fyrir ofan hann. Hlutir
voru freðnir – inni hjá honum. Þetta var
árið 1918: Frostaveturinn mikla.
SAMA ár veiktist amma mín af spænsku
veikinni. „Stríðinu“ var þá um það bil að
ljúka (fyrri heimsstyrjöldina kallaði hún
aldrei annað en „stríðið“) og Katla nýbyrj-
uð að gjósa. Þetta var viðburðaríkt ár.
Amma lifði spænsku veikina af en hún
mundi alltaf endalausar hringingarnar í
kirkjuklukkunum – jarðarfarir þeirra sem
ekki höfðu það af.
AMMA var fædd árið 1897 í Suður-
Þingeyjarsýslu. Í Reykjavík bjuggu
þá einungis nokkur þúsund manns og
barnadauði var hæstur á Íslandi í allri
Evrópu. Amma lifði af kreppuna miklu
og sá valdasjúka menn æsa hver annan
upp í styrjöld á nýjan leik. Hún sá
útvarp og sjónvarp koma fram á
sjónarsviðið, upplifði að rafmagn
væri lagt í hvert hús og húsin tengd
saman með símalínum – hún sá
hringveginn opnaðan og Reykja-
vík breytast í borg. Þegar hún bjó
heima hjá mér á Akranesi sein-
ustu æviár sín hafði hún upplifað
svo margt að það var hálfskrýtið
að hugsa til þess að það rúmaðist
allt í einni mannsævi.
„ÉG er nú svo aldeilis hissa,“ sagði hún með
vissu millibili. Þá hafði hún heyrt eitthvað
sem kom henni reglulega á óvart. Sjálf hef
ég oft velt fyrir mér hver viðbrögð hennar
hefðu orðið við útblæstri bankanna, græðg-
inni, sukkinu, skammsýninni og efnahags-
hruninu sem fylgdi. Hefði hún ekki orðið
aldeilis hissa? Og hvernig hefði hún séð
kreppu dagsins í dag miðað við kreppuna
miklu?
STUNDUM hef ég líka hugsað um það
hvort hún amma mín hefði orðið aldeilis
hissa yfir því hvað reynsluleysi var upphaf-
ið í góðærinu. Hvernig reynsla var jafnvel
álitin til trafala – unga fólkið kunni, vissi
og gat. Nema að síðan stóðu margir alveg
á gati. Var ekki skeytingarleysið algjört
gagnvart þeim sem byggt höfðu upp landið
og safnað á langri ævi í reynslubankann?
Hafði sagan líka ekki kennt okkur að allt
sem fer upp kemur aftur niður – eða skipti
sagan engu máli lengur?
ÞAÐ hefði verið gaman að ræða þetta við
ömmu. Og ég veit að hún hefði laumað að
mér einum, litlum Síríus-súkkulaðimola
á meðan. Hún geymdi þá í fallegri skál.
Amma mín var ekki af þeirri kynslóð sem
gúffaði hömlulaust í sig sætindum – þeirri
sem varð á endanum að skammta sér
ákveðna nammidaga til að vera ekki stans-
laust í sykursjokki.
Spænska veikin í stofunni heima
Í alvöru! Held-
urðu að Andrés
hafi farið á Dolly?
Jói!
Þarftu að láta
skrýtna óra þína
eyðileggja allt?
Geturðu aldrei
setið á þér?
Ofurhetjur, Tarzan...
allt í góðu! En ekki
draga Andabæ inn
í þetta! Skamm-
astu
þín!
En
Hábeinn?
Ójá!
Hann
hefur
sko verið
þarna!
Kemur þessi
ógeðslega
lykt héðan?
Hvaða
ógeðs-
lega lykt?
Sú sem er eins og geita-
ostur sem staðið hefur úti
í sólinni í allan dag?
Eða sú sem er
eins og af íþrótta-
sokkum feits kalls
sem var að byrja
í ræktinni?
Ég er fimm-
tán. Ég er
mikið fyrir lykt.
Finnst þér ekkert að
því að mögulegt sé að
þessi lykt sé
hér inni?
Þú þarft ekki að fara í rándýrt frí
til að skemmta þér í sumar Solla.
Lestu bara góða
bók og þú getur
farið hvert sem
er í huganum.
Segir
náung-
inn sem á
enga ferða-
punkta.
Bókasafnskortið
þitt er aðgöngumiði
í ævintýralandið!
„Mér er sama hvað sagt er um mig“
Linda Björg Árnadóttir er á leiðinni í sjónvarpið
með hreinskilnina að vopni.
LÁRÉTT
2. hreinsiefni, 6. í röð, 8. gogg, 9.
rénun, 11. í röð, 12. miklu, 14. rófa,
16. klafi, 17. af, 18. skammstöfun, 20.
pfn., 21. svikull.
LÓÐRÉTT
1. elds, 3. utan, 4. ávaxtatré, 5. þak-
brún, 7. kæna, 10. stal, 13. skarð, 15.
rótartauga, 16. hluti verkfæris, 19.
bókstafur.
LAUSN
Leiðréttu mig ef
ég hef rangt fyrir
mér, þetta er
ekki fyrsta
innbrotið þitt
hr. Jólasveinn?
LÁRÉTT: 2. sápu, 6. áb, 8. nef, 9. lát,
11. rs, 12. stóru, 14. skott, 16. ok, 17.
frá, 18. rek, 20. ég, 21. flár.
LÓÐRÉTT: 1. báls, 3. án, 4. perutré,
5. ufs, 7. bátskel, 10. tók, 13. rof, 15.
tága, 16. orf, 19. ká.