Fréttablaðið - 11.08.2011, Side 17
FIMMTUDAGUR 11. ágúst 2011
Nú fer hver að verða síðastur að kynnast kommúnisman-
um af eigin raun. Norður-Kórea
er lokuð öllum nema örfáum
ferðamönnum, en Kúbu er hægt
að heimsækja. Landið er sem
aldrei fyrr á hvínandi kúpunni.
Kreppan er djúp, og hún er tví-
þætt. Annars vegar er efna-
hagskreppan, sem öldungarn-
ir í ríkisstjórninni reyna ekki
lengur að leyna. Fídel Kastró
er hálfníræður, og Raúl bróðir
hans, sem er nú forseti lands-
ins, er að verða áttræður. Hins
vegar er stjórnmálakreppan,
sem engum leyfist að nefna á
nafn að viðlagðri refsingu. Þess-
ir tveir angar kreppunnar tengj-
ast. Raunverulegar efnahagsum-
bætur eru ekki í sjónmáli, þar
eð stjórnmálaforustan er lömuð,
og öfugt.
Á annarra framfæri
Þegar kalda stríðinu lauk, varð
Kúba af erlendri efnahagsaðstoð,
sem hafði haldið landinu gang-
andi í 70 ár. Fyrir og eftir síðari
heimsstyrjöldina studdi kaninn
Kúbu með því að hleypa innflutt-
um sykri frá Kúbu til Bandaríkj-
anna framhjá háum verndartoll-
um, en bandarísk fyrirtæki höfðu
þá sykurekrur Kúbu í hendi sér.
Eftir að Kastróbræður héldu inn-
reið sína í Havana á nýársdag
1959, tóku Sovétríkin við keflinu
og studdu Kúbu með því að flytja
inn þjóðnýttan sykur á yfirverði
auk annarrar aðstoðar. Þegar
Sovétríkin hrundu á jóladag 1991,
hætti fjárstuðningur þeirra við
Kúbu eins og hendi væri veifað,
og 11.000 sovézkir hernaðarráð-
gjafar og tækniráðunautar voru
kallaðir heim. Bara sykurút-
flutningurinn á yfirverði hafði
skilað Kúbu um fimm milljörð-
um Bandaríkjadala á ári, eða um
500 dölum á hvert mannsbarn í
landinu.
Smám saman fylltu Kínverj-
ar að hluta skarðið, sem Rúss-
ar skildu eftir sig, og Venesúela
undir stjórn Hugos Chavez for-
seta hefur selt Kúbu olíu á undir-
verði, olíu, sem Kúbverjar hafa
síðan selt öðrum á heimsmark-
aðsverði og hirt muninn. Efna-
hagslífið á Kúbu snýst því enn
um yfirverð og undirverð. Landið
geldur fyrir, að rétt verð, mark-
aðsverð, kemur sízt til álita. Talið
er, að brotthvarf Rússa frá Kúbu
hafi skert tekjur landsmanna um
40 prósent. Kúbverjar í Banda-
ríkjunum senda heim um tvo
milljarða Bandaríkjadala á ári.
Við þetta bætast fullar ferðatösk-
ur fjár, kannski annað eins, eftir
að ríkisstjórn Obamas forseta
heimilaði Bandaríkjamönnum af
kúbverskum uppruna nýlega að
ferðast heim til Kúbu.
Hvað er stóll?
Kúba var og er eins og Rússland
var: fyrirtækin þykjast borga
verkafólkinu, og fólkið þykist
vinna. Eftir brotthvarf Rússa
frá Kúbu fundu ríkisfyrirtækin
(nær öll fyrirtæki landsins) fyrir
því, að þetta er dýrt sport. Ríkis-
stjórn Kúbu byrjaði því skömmu
eftir 1991 að leyfa einkarekstur
í smáum stíl. Eitt leiddi af öðru.
Raúl Kastró tilkynnti í fyrra,
að einkavæðing ríkisfyrirtækja
kallaði á uppsögn einnar millj-
ónar ríkisstarfsmanna (íbúafjöldi
Kúbu er um 11 milljónir). Skila-
boðin voru skýr: ríkisstjórnin
getur ekki lengur séð um sína.
Atvinnuleysisbætur eru rýrar og
renna út eftir þrjá mánuði. Skiln-
ingur Kastróbræðra á einka-
rekstri ristir þó ekki dýpra en
svo, að einkafyrirtækjum er gert
ókleift að taka við nema litlum
hluta þeirra, sem missa vinn-
una hjá ríkinu. Til dæmis eru
einkamatstaðir nú leyfðir, en þeir
mega ekki hafa nema tuttugu
stóla og mega ekki ráða óvanda-
bundið fólk í vinnu, heldur aðeins
fjölskyldumeðlimi.
Nærri má geta, hvort ekki er
reynt að fara í kringum reglurn-
ar. Hvað er stóll? Hvað er fjöl-
skylda? Lögreglan eyðir ómældu
púðri í að girða fyrir sniðgöng-
una. Fyrstu skref Kúbverja á
leið sinni til markaðsbúskapar
lofa því ekki góðu. Eitt helzta
einkenni markaðsbúskapar er, að
nýjum fyrirtækjum gefast færi
á að leysa óhagkvæm fyrirtæki
af hólmi í heilbrigðri samkeppni.
Leiðin að því marki er að efla
samkeppni frekar en að halda
henni í skefjum. Mikil samkeppni
er líklegri en lítil samkeppni til
að halda hagnaði í skefjum svo
sem Kastróbræðrum er mjög í
mun.
Allt í niðurníðslu
Allt er í niðurníðslu: húsin, bíl-
arnir, vélakosturinn, mannaflinn.
Árum saman hefur ein bygging
hrunið á hverjum degi allan árs-
ins hring. Sykurmyllurnar standa
óbreyttar frá 1959. Bílaflotinn er
kafli út af fyrir sig: gömlu banda-
rísku kaggarnir bera kúbversk-
um bifvélavirkjum fagurt vitni
eftir meira en hálfa öld. Fátæktin
er mikil og sár. Ungir og gamlir
betla á götum úti. Læknar og lög-
fræðingar hafa meira upp úr sér
sem leiðsögumenn en við störfin,
sem þeir lærðu til. Mánaðarlaun
lögreglumanna og hermanna eru
28 til 34 Bandaríkjadalir, lækna
21 til 25 dalir og verkamanna
17 dalir. En músíkin er góð. Fátt
bendir til, að fólkið muni rísa upp
gegn þeim bræðrum í bráð. Þegar
þeir eru horfnir af sjónarsviðinu,
getur þó allt gerzt. Svo fallegu
landi leyfist ekki að halda fólkinu
sínu föstu í fátæktargildru mann
fram af manni.
Hvínandi Kúba
Í DAG
Þorvaldur Gylfason
prófessor
Landið geldur fyrir, að rétt verð, markaðs-
verð, kemur sízt til álita. Talið er, að
brotthvarf Rússa frá Kúbu hafi skert
tekjur landsmanna um 40 prósent.
Alþingi taki boði stjórnlagaráðs
Föstudaginn 29. júlí afhenti stjórnlagaráð Alþingi frum-
varp að nýrri stjórnarskrá. Ekki
aðeins tók Alþingi við vel unnu
verki heldur fylgdi viturlegt boð
allra fulltrúa í stjórnlagaráði
um að þeir væru reiðubúnir að
vinna, sameiginlega, úr athuga-
semdum þingsins við frumvarp-
ið, ef einhverjar væru. Þung rök
mæla með því að Alþingi þiggi
boðið.
Hvorki fyrr né síðar hefur
frumvarp að lögum verið unnið í
jafnopinni og víðtækri samvinnu
við almenning í landinu og það
sem stjórnlagaráð hefur nú fært
Alþingi.
Vinnulag stjórnlagaráðs er
önnur meginskýringin á vel-
heppnuðu verki þess. Hin er
sú að stjórnlagaráð er skipað
almennum borgurum. Þeir létu
sig engu varða sérhagsmuni
stjórnmálaflokka og hagsmuna-
hópa þeim tengdum. Stjórnlaga-
ráð smíðaði frumvarp að nýrri
stjórnarskrá aðeins með hags-
muni fólksins, vítt og breitt um
landið, að leiðarljósi. Halda þarf
til streitu vinnulagi og afstöðu
stjórnlagaráðs.
Stjórnlagaráð svaraði ákall-
inu um gagngerar breytingar
á stjórnarháttum í landinu. Nái
frumvarp þess fram að ganga
verður lagður grunnur að heil-
brigðara og réttlátara samfélagi
á Íslandi.
Varaformaður helsta valda-
flokks landsins sagði nýlega,
að skýrsla rannsóknarnefndar
Alþingis myndi ekki þvælast
fyrir nema stutta stund.
Það er glámskyggni. Gleym-
um ekki því, að hér var „van-
hæfri ríkisstjórn“ ýtt frá völd-
um af almennum borgurum í
mestu og víðtækustu mótmæl-
um sem gengið hafa yfir landið.
Enginn ætti að láta framhjá sér
fara kröfuna um breytingar sem
í mótmælunum fólst eða telja sér
trú um hægt sé að bíða hana af
sér. Slík afstaða er ábyrgðarlaus
og ávísun á enn meiri ógöngur.
Stjórnlagaráð áttaði sig blessun-
arlega á þessu, en stjórnmála-
flokkarnir eiga enn langt í land.
Alþingi þarf að taka mið af
ástandinu í landinu og samhengi
hlutanna.
Á Íslandi varð ekki aðeins
fjármálahrun, heldur einnig sið-
ferðilegt og pólitískt hrun. Rann-
sóknarskýrsla Alþingis staðfesti
verstu grunsemdir almennings
um íslenska stjórnmálastétt,
stjórnmálaflokka og stjórnsýslu,
og óheilbrigt samkrull viðskipta-
lífs og stjórnmála.
Alþingi verður einnig að taka
mið af því að alþingiskosning-
ar hafa ekki farið fram eftir að
hin hrikalega skýrsla kom út. Af
þessum ástæðum er núverandi
þing mjög vanbúið að fást við
frumvarp stjórnlagaráðs.
Heildarendurskoðun stjórnar-
skrárinnar var vanrækt í ára-
tugi, til stórskaða fyrir land og
þjóð. Höfuðástæðan var sú að
stjórnmálaflokkarnir tóku sér-
hagsmuni sína fram yfir hags-
muni almennings og létu óbreytt
ástand gott heita. Það var ekki
fyrr en almennir borgarar fengu
verkið í hendur að endurskoð-
unin tókst. Öðrum var reyndar
ekki til að dreifa. Við núverandi
aðstæður hefði þjóðin aldrei
treyst fulltrúum stjórnmála-
flokkanna til að semja frumvarp
að nýrri stjórnarskrá, og engum
kom slíkt til hugar eftir hrunið.
Þegar Alþingi tekur frumvarp
stjórnlagaráðs til meðferðar,
þá býr það enn við sömu tor-
tryggni.
Stjórnlagaráð hefur áunnið
sér traust með verkum sínum.
Alþingi nýtur ekki trausts en
þarf að endurheimta það. Að
sýna auðmýkt og þiggja boð
stjórnlagaráðs, sem nefnt var í
upphafi þessarar greinar, gæti
orðið mikilvægt skref í þá átt,
en afdrifaríkt að hafna því.
Nú ríður á að þingmenn,
meiri hluti Alþingis og réttsýnir
stjórnmálamenn þekki sinn vitj-
unartíma.
Ný stjórnarskrá
Hjörtur
Hjartarson
sagnfræðingur
VANILLU ÍSPINNAR MEÐ SÚKKULAÐI 120 ML
298 KR. 3 STK.
VANILLU ÍSPINNAR MEÐ SÚKKULAÐI 60 ML
398 KR. 12 STK.
VANILLU ÍSTOPPAR MEÐ SÚKKULAÐI 120 ML
498 KR. 8 STK.
SPARAÐU MEÐ
EURO SHOPPER
SPARAÐU Í
BÓNUS