Fréttablaðið - 11.08.2011, Síða 24
11. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR24
timamot@frettabladid.is
Magnús Róbert
Ríkarðsson Owen
flugstjóri.
Minningarathöfn um Magnús sem lést á heimili sínu
í Fort Lauderdale, USA, sunnudaginn 31. júlí, æsku-
heimili: Krosseyrarvegur 7, Hafnarfirði, fer fram í
Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 12. ágúst
kl. 19.00.
Útför hans fer fram á sama tíma í Bandaríkjunum.
Þeim sem vilja heiðra minningu Magnúsar er bent á
bankareikning nr. 0327-13-000049 kt. 060975-3379,
sem notaður verður til að styðja eiginkonu hans og
börn í Bandaríkjunum.
Dorothy Butler Owen
Róbert Leó Magnússon Owen
John Magnússon Owen
Jacob Magnússon Owen
Magnus Liam Magnússon Owen
Ríkarður Owen Alda S. Björnsdóttir
Magni Ríkarðsson Owen
Guðrún Sólveig Ríkarðsdóttir Owen
Sylvía Rós Ríkarðsdóttir Owen
Hildur Margrét Ríkarðsdóttir Owen
Hulda Cathinca Guðmundsdóttir Stefán Heimir
Finnbogason
Jón Sigurður Magnússon
Marteinn Helgi Þorvaldsson
Elín Guðlaug Stefánsdóttir
Hanna Guðrún Stefánsdóttir
Stefán Huldar Stefánsson
og fjölskyldur þeirra.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Hulda Tómasdóttir
Smáragrund 21, Sauðárkróki,
lést þriðjudaginn 2. ágúst. Útförin fer fram frá
Sauðárkrókskirkju laugardaginn 13. ágúst kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem
vilja minnast hennar er bent á Heilbrigðisstofnunina
Sauðárkróki.
Kári Valgarðsson
Ragnar Þór Kárason Freyja Jónsdóttir
Linda Dröfn Káradóttir Ragnar Grönvold
Kári Arnar Kárason Kristín Inga Þrastardóttir
og barnabörn.
MOSAIK
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Unnur Stefánsdóttir
leikskólakennari,
Kársnesbraut 99, Kópavogi,
andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánu-
daginn 8. ágúst. Útför fer fram frá Hallgrímskirkju
föstudaginn 19. ágúst kl 13.00.
Hákon Sigurgrímsson
Finnur Hákonarson Rósa Birgitta Ísfeld
Grímur Hákonarson Halla Björk Kristjánsdóttir
Harpa Dís Hákonardóttir
Ísadóra Ísfeld Finnsdóttir
Elskuleg dóttir mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Margrét Loftsdóttir
Hjaltabakka 14, Reykjavík,
lést sunnudaginn 7. ágúst á Landspítalanum í Fossvogi.
Útför fer fram í Grafarvogskirkju þriðjudaginn
23. ágúst kl. 13.00.
Ólöf Hjálmarsdóttir
Ólöf Leifsdóttir Atli Bragason
Loftur Ólafur Leifsson Júlíana Hauksdóttir
Ingibjörg Leifsdóttir Halldór Jón Theodórsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Tónlistarhátíðin Berjadagar verður
haldin í þrettánda skipti í Ólafsfirði
um helgina en að þessu sinni verð-
ur hluti hennar sérstaklega tileink-
aður Sigursveini D. Kristinssyni,
stofnanda Tónskóla Sigursveins, sem
hefði orðið hundrað ára fyrr á þessu
ári. Hann ólst upp og bjó í Ólafsfirði
fram á fullorðinsár.
„Upphafstónleikarnir í Ólafsfjarð-
arkirkju á föstudagskvöldið verða
helgaðir minningu Sigursveins. Við
ætlum að flytja eftir hann sönglög,
sem verða gefin út á geisladiski innan
tíðar, auk þess sem við höfum tekið
saman frásagnir af honum, uppvexti
hans og æsku og þeim áhrifum sem
fötlunin hafði á hann,“ segir Sigur-
sveinn Magnússon, systursonur Sig-
ursveins og núverandi skólastjóri
Tónskóla Sigursveins. Sigursveinn
Kristinsson veiktist af lömunarveiki
ungur að árum. Hann fékk aftur mátt
í fingur, hendur og arma en ekki í fæt-
urna. Hann fékk fljótlega í hendurn-
ar fiðlu, liti og bækur og varð ansi fær
í höndunum. „Hann lýsir því sjálfur
hvernig hann lá í rúminu spilaði eina
rödd á fiðluna og söng aðra og hafði
fjarskalega gaman af,“ segir Sigur-
sveinn og heldur áfram: „Hann ætlaði
til náms í Tónlistarskólann í Reykja-
vík árið 1931 en var talinn af því og
frestaði því um fimmtán ár. Hann
notaði tímann engu að síður vel og
hellti sér út í félagsmál og afskipti af
stjórnmálum. Þá málaði hann olíumál-
verk, skar út hillur og myndaramma,
málaði á gler, skrautritaði og batt inn
bækur. Hann vann í raun hörðum
höndum og listmunirnir urðu vinsæl-
ir. Hann seldi vel og fyrir afrakstur-
inn hannaði hann og byggði hús sem
hann nefndi Garðshorn sem við telj-
um að sé fyrsta húsið á Íslandi sem
var byggt með þarfir fatlaðra í huga.
Árið 1951 flutti Sigursveinn til
Reykjavíkur og stofnaði fljótlega eftir
það bæði Lúðrasveit verkalýðsins og
Söngfélag verkalýðssamtakanna í
Reykjavík. Síðan hélt hann til Berl-
ínar til náms og þaðan á Siglufjörð
þar sem hann gerðist skólastjóri Tón-
skóla Siglufjarðar. Eftir það lá leiðin
til Reykjavíkur þar sem hann stofnaði
Tónskóla Sigursveins. „Sigursveinn
skipaði sér ávallt í sveit með þeim
sem áttu undir högg að sækja. Hann
lét sér jafnréttismál fatlaðra varða og
átti stóran þátt í því að Sjálfsbjörg var
stofnuð. Með stofnun Tónskólans vildi
hann leggja sitt af mörkum til að auka
alþýðumenningu. Hann taldi lífsgæði
ekki einungis fólgin í peningum held-
ur að geta iðkað eitthvað sem hefði
gildi og innihald,“ segir Sigursveinn.
Fleiri dagskrárliðir á Berjadögum
eru krílasamkoma á Hornbrekku,
dvalarheimili aldraðra, heimsókn-
ir á vinnustofur myndlistarmanna,
tónleikar kammerkórsins Hymnodiu
Í Ólafsfjarðarkirkju og leiksýningin
Tenórinn eftir Guðmund Ólafsson í
Tjarnarborg. Sjá nánar á berjadagar.
fjallabyggd.is. vera@frettabladid.is
BERJADAGAR Í ÓLAFSFIRÐI: ALDARAFMÆLI SIGURSVEINS KRISTINSSONAR FAGNAÐ
Listamaður fram í fingurgóma
MINNST MEÐ ÝMSUM HÆTTI Sigursveinn Magnússon við Ólafsfjarðarkirkju með hillu, sem er
skorin út af Sigursveini D. Kristinssyni árið 1933. MYND/ÚR EINKASAFNI
PERVEZ MUSHARRAF er 68 ára í dag
„Íslam kennir umburðarlyndi ekki hatur, bræðralag ekki
óvináttu, frið ekki ofbeldi.“
Merkisatburðir
117 Hadríanus verður keisari Rómar.
1580 Katla gýs.
1794 Sveinn Pálsson og maður með honum ganga á Öræfajök-
ul. Var þetta önnur ferð manna á tindinn. Talið er að Sveinn
hafi fyrstur manna gert sér grein fyrir eðli og hreyfingum
skriðjökla í þessari ferð.
1951 Minnisvarði um Pétur J. Thorsteinsson og konu hans Ást-
hildi er afhjúpaður á Bíldudal, en Pétur rak þar verslun og
þilskipaútgerð og gerði síðar út frá Reykjavík.
1960 Tsjad hlýtur sjálfstæði frá Frakklandi.
1979 Flak af Northrop-flugvél sem nauðlenti á Þjórsá og sökk
þar 1943 er dregið upp og gefið safni í Noregi.
2006 Síðustu þrjár F15-þoturnar yfirgefa Keflavíkurstöðina og
þar með var Ísland herþotulaust í fyrsta skiptið síðan 1953.
Baden-Powell, hinn eini sanni upphafsmaður
skátastarfs í heiminum, kom til Reykjavíkur
þennan dag árið 1938. Hann kom siglandi
á bresku skátaskipi sem hét Orduna ásamt
eiginkonu sinni og dóttur og auk þess 464 skáta-
foringjum frá Englandi.
Reykvískir skátar tóku virðulega á móti skáta-
höfðingjanum og fylgdarliði hans og að móttöku
lokinni stigu gestirnir upp í bifreiðar sem fluttu
þá að náttúruperlunum Gullfossi og Geysi.
Baden-Powell hafði hrifist af uppeldismálum
og vildi leysa börn og unglinga úr viðjum
stórborganna og kynna þeim náttúruna. Hann
vildi einnig efla sjálfstraust og ábyrgðartilfinningu
þeirra. Þar taldi hann að það frelsi og sjálfs-
ábyrgð sem felst í skátastarfi skilaði meiri árangri
en strangur skólaagi.
Hann taldi enn fremur að flestir væru bara
áhorfendur í lífinu en ekki virkir þjóðfélags-
þegnar. Það þótti honum varhugavert.
ÞETTA GERÐIST 11. ÁGÚST ÁRIÐ 1938
Skátahöfðingi heimsækir Ísland