Fréttablaðið - 11.08.2011, Side 26

Fréttablaðið - 11.08.2011, Side 26
11. ágúst 2011 FIMMTU-2 Ugla hefur áhuga á öllum hlið- um ljósmyndunar. Skólinn legg- ur hins vegar ríka áherslu á list almennt. „Ég hlaut enga kennslu í að taka tískuljósmyndir og port- rett en finnst það mjög spenn- andi,“ segir Ugla sem hefur æft sig í að taka slíkar myndir sjálf. Um þessar mundir vinnur hún að ferilmöppu og getur þess: „Ég hef aðallega unnið ferilmöppuna mína með sjálfstæðum verkefnum og fengið með mér ungt og óreynt fólk.“ Þessa möppu mun hún nota til að koma sér á framfæri í borg tækifæranna, New York. Hjólin eru þó strax farin að snúast því nýlega seldi hún fjórar bókarkápur í Bandaríkjunum og er komin með tvo umboðsmenn á þeim markaði. Lillian Bassmann hefur haft mikil áhrif á Uglu síðustu tvö ár. „Hún var þekktur tískuljósmynd- ari á árunum 1940 til 1960 og vinn- ur mikið með kvenlega fegurð.“ Hún hefur einnig sótt innblástur til ljósmyndaranna Sally Mann og Juliu Margaret Cameron. Hún segir það heilla sig þegar ljós- myndarar skapa annan veruleika innan ljósmynda sinna og lýsir ljósmyndum sínum sem draum- kenndum og rómantískum. „Ég hef gaman af gamaldags myndum og hef beitt gömlum aðferðum við að festa á filmu.” Ugla hefur verið lærlingur hjá ljósmyndaranum Kirk Edwards undanfarin tvö ár. „Hann er tískuljósmyndari og tekur mynd- ir af tónlistarmönnum á borð við Rihönnu og The Black Eyed Peas. Við tökur á tónlistarmyndbandi Rihönnu sat ég alla nóttina út í bíl að vinna myndir af henni,“ segir Ugla sem heldur aftur út á vit ævintýranna í lok mánaðarins. Vert er að benda á vefsíðu henn- ar www.uglahauks.com. hallfridur@frettabladid.is Halldóra Eydís Jónsdóttir skó- hönnuður sýnir fyrstu línu sína á tískuvikunni í Boston í septem- ber. Leitað var til hennar og henni boðið að sækja um þátttöku í sýn- ingunni The Emerging Trends þar sem upprennandi hönnuðir sýna línur sínar. Halldóra Eydís var valin úr hópi alþjóðlegra hönn- uða sem sóttu um. Sýningin hefur reynst stökkpallur fyrir marga hönnuði sem hafa í framhaldinu meðal annars tekið þátt í sjón- varpsþættinum Project Runway og sýnt í tímaritinu Glamour. Halldóru Eydísi finnst mikill heiður að hafa verið valin til þátt- töku. „Ég hef verið í sambandi við skóhönnuð sem heitir Zack Lo sem sýndi fyrstu skólínuna sína þarna. Honum hefur gengið mjög vel,“ segir hún með áherslu. „Hann sagði mér að þessi sýning hefði verið stökkpallur fyrir hann. Hann fékk fljótlega boð um að taka þátt í fleiri sýningum í New York og segir að þetta sé frábært tæki- færi,“ segir Halldóra Eydís og bætir við að Zack Lo hafi mælt hiklaust með því að hún tæki þátt. F immtán hönnuðir sýna alklæðnað á sýningunni og flestir þeirra hafa áður sent frá sér línur. Halldóra Eydís frumsýnir fyrstu línu sína. Hún mun sýna fimm gerðir af alklæðnaði. „Allt sem ég geri er innblásið af náttúru Íslands og íslensku þema. Kjólarnir verða í hátískustíl en þeir verða ekki til sölu nema sérpantaðir. Skórnir eru allir unnir úr hágæða íslensku leðri, roði og hráum náttúruefnum, eins og hraunkristöllum og hross- hárum,“ segir Halldóra Eydís sem einnig verður með bás á sýning- unni. Halldóra Eydís, sem útskrifað- ist frá London College of Fashion á síðasta ári, einbeitir sér að skó- hönnun. Í línunni verða sex mis- munandi gerðir af skóm, flatbotna og með háum hælum ásamt stíg- vélum. Hún stefnir á að taka þátt í sýningu Handverks og hönnunar í Ráðhúsinu í byrjun nóvember. „Ég hlakka mikið til að sýna þar. Það er sýning sem ég hef alltaf sjálf farið á og fundist frábær.“ martaf@frettabladid.is Boðið að sýna í Boston Halldóra Eydís Jónsdóttir skóhönnuður var beðin um að sýna fyrstu línu sína á tískuvikunni í Boston. Hún var valin úr hópi alþjóðlegra hönnuða til að taka þátt í sýningu upprennandi hönnuða. Halldóra Eydís segir að þátttaka í sýningunni sé mikill stökk- pallur. Í línu Halldóru Eydísar eru sex mismunandi gerðir af skóm, flatbotna og með háum hæl ásamt stígvélum. Skórnir eru unnir úr hágæða íslensku leðri, roði og náttúru- efnum.Lína Halldóru Eydísar er innblásin af náttúru Íslands og íslensku þema. Halldóra Eydís Jónsdóttir segir að heiður sé að taka þátt í sýningunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Framhald af forsíðu Heidi Klum mun ekki stjórna þáttunum Project Runway All Stars sem sýndir verða á sjónvarpsstöðinni Lifetime síðar á árinu. Í hennar stað verður fyrir- sætan Angela Lindvall. Í stað dómaranna Michaels Kors og Ninu Garcia verða þau Isaac Mizrahi og Georgina Chapman frá Marchesa. Milljón dollara ilmvatn GIMSTEINUM PRÝDD ILMVATNS- FLASKA AÐ VERÐMÆTI MILLJÓN DOLLARA VERÐUR SELD OG ANDVIRÐI HENNAR GEFIÐ TIL GÓÐGERÐAMÁLA. Tískufyrirtækið DKNY hefur í sam- starfi við skartgripasmið stjarn- anna, Martin Katz, látið framleiða dýrasta ilmvatnsglas heims. Glasið er úr 14 karata gulli með um þrjú þúsund gimsteinum sem fengnir eru hvaðanæva að úr heiminum. Gimsteinarnir mynda útlínur Man- hattan. Ilmvatnsflaskan verður sýnd víða um heim áður en hún verður boðin upp. Ágóðinn mun renna til góðgerðamála. Sími 694 7911 Eikjuvogur 29, 104 Rvk. Opið mán.fim 12–18, fös. 12–16, Síðustu dagar útsölunnar Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460 www.belladonna.is Stærðir 40-60. Flott föt fyrir flottar konur, Útsölu- lok 25% aukaafsláttur af úts öluvörum reiknast við kassa 30 - 50% afslaáttur af útsöluvöru

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.