Fréttablaðið - 11.08.2011, Page 58
11. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR42
golfogveidi@frettabladid.is
honum þyki það skemmtilegra en
að veiða á spún eða maðk. Hann
segir vatnið upplagt fyrir þá sem
séu að stíga sín fyrstu skref með
fluguveiðistöngina enda vatnið
oft verið kallað „háskóli flugu-
veiðimannsins“. Hann segist
bæði nota púpur og straumflug-
ur. Nobblerinn geti verið einkar
skæður í sefgresi þar sem urrið-
inn sé að leita sér að hornsílum.
En er einhver einhver veiðistað-
ur í sérstöku uppáhaldi hjá Geir?
„Já, ætli ég verði ekki að segja
að Engjarnar séu í uppáhaldi. Ég
veiði mikið þar enda getur maður
kastað í allar áttir þegar maður
er kominn út á þær, sem getur
verið sérstaklega hentugt ef það
er vindasamt.“
Geir hefur miðlað þó nokk-
uð af reynslu sinni í Elliða-
vatni og meðal annars gefið út
bæklinginn „Elliðavatn: Perlan
við bæjarmörkin.“ Hægt er að
nálgast þennan bækling á raf-
rænu formi á netinu með því á
slá nafnið inn í Google eða undir
veiðistaðalýsingum á arvik.is.
trausti@frettabladid.is
FL
U
G
A
N
NÓRA
300
Elliðavatn er lítil veiðiperla
innan borgarmarkanna. Þar
veiðist töluvert af silungi
á hverju ári sem og tugir
laxa. Bleikjan á undir högg
að sækja. Geir Thorsteins-
son veiðimaður hefur stund-
að veiði í vatninu í 56 ár.
Innan borgarmarkanna leynist
veiðiperla sem margir vita af
en tiltölulega fáir vita mikið
um. Elliðavatn er sannkölluð
paradís veiðimannsins og skipt-
ir þá engu hvort viðkomandi er
byrjandi eða þaulvanur flugu-
veiðimaður. Þar veiðist mest af
urriða og töluvert af bleikju. Á
hverju ári veiðast þar einnig
tugir laxa sem hafa náð að fikra
sig framhjá veiðimönnum í Ell-
iðaánum og upp í vatnið. Hrygn-
ingarstöðvar þessara laxa eru í
Suðurá og Hólmsá.
Töluverð umræða hefur verið
um Elliðavatn undanfarin miss-
eri. Sumir vilja meina að veið-
in hafi dvínað mikið, aðrir að
bleikjan sé að hverfa og svo eru
þeir sem segja að urriðinn sé að
verða stærri og Elliðavatn hægt
og rólega að breytast í stórfiska-
vatn.
Geir Thorsteinsson er einn
þeirra sem hefur farið í Elliða-
vatn um árabil, reyndar aðeins
lengur en það því hann veiddi
fyrst í vatninu sex ára gamall
með föður sínum. Geir er 62 ára
í dag sem þýðir að hann hefur 56
ára veiðireynslu í vatninu.
„Ef mig vantar í soðið þá fer ég
í Elliðavatn,“ segir Geir. „Ég er
ekki sammála því að veiðin hafi
minnkað eitthvað í vatninu en ef
svo er þá hefur fiskurinn stækk-
að og það er auðvitað miklu
skemmtilegra að veiða stærri
fisk á færi en smærri.“
Geir segist hafa farið svona
fimm sinnum upp í Elliðavatn í
sumar og alltaf fengið fisk.
„Margir eru bara að eltast
við bleikjuna en mér er alveg
sama þó ég fái urriða enda afar
skemmtilegt að kljást við þá. Ég
er alls ekki að eltast við laxinn
þó hann sé þarna. Ég hef reynd-
ar veitt nokkra laxa í Elliða-
vatni en mér finnst eiginlega að
menn eigi að láta hann vera og
leyfa honum að fjölga sér fyrst
hann er kominn alla leið þangað
upp eftir.“ Geir segist eingöngu
veiða á flugu. Einfaldlega af því
Sækir sér í soðið í Elliðavatn
... ætli ég verði ekki
að segja að Engjarnar
séu í uppáhaldi.
GEIR THORSTEINSSON
VEIÐIMAÐUR
Fyrir rúmum tuttugu árum var
svipað hlutfall af bleikju og urr-
iða í Elliðavatni en nú hefur það
breyst. Guðni Guðbergsson, fiski-
fræðingur hjá Veiðimálastofnun,
segir margt benda til þess að nú á
seinni árum sé bleikjan orðin ansi
fáliðuð í vatninu. Tilraunaveiðar
undanfarinna ára sýni að hlutfall
bleikju í vatninu sé tæplega 10
prósent og urriða um 90 prósent.
Hann segir að á þessu kunni
að vera nokkrar skýringar þó
telji menn nú að helsta skýring-
in sé svokölluð PKD-sýki en það
er nýrnasjúkdómur sem smærri
bleikja er mjög viðkvæm fyrir en
urriðinn ekki eins. Hann segir að
smittíðni bleikjunnar haldist í
hendur við hlýnun vatnsins en
sníkjudýrið sem veldur sýking-
unni þrífst best í hlýju vatni.
Guðni bendir samt á að þó veiði-
menn veiði sýkta bleikju þurfi
þeir ekki að hafa áhyggjur af því
leggja hana sér til munns því hún
sé áfram hinn besti matfiskur.
Sníkjudýrið, sem er einfrumung-
ur, hafi bara áhrif á fiskinn og sé
allsendis skaðlaust fólki.
Vanir veiðimenn í Elliðavatni
hafa komið með þá kenningu að
vatnið sé að breytast í stórfiska-
vatn og vilja meina að töluvert
meira veiðist af stórum urriða
en áður fyrr. Guðni segir að þó
Veiðimálastofnun hafi stundað
tilraunaveiðar í Elliðavatni frá
árinu 1987 og þær sýni ekki fram
á að urriðinn sé að stækka, vilji
hann ekki útiloka neitt í þessum
efnum. Tilraunaveiðarnar fari
fram á afmörkuðum svæðum og
hlutfallslega fáir fiskar séu á
bak við meðal tölin. Þróunin geti
því vel verið sú að urriðinn sé
að stækka. Það þurfi hins vegar
frekar gögn til þess að staðfesta
kenninguna.
„Við fáum mjög stopult af veiði-
skýrslum úr Elliðavatni og því
þarf veiðifélagið að koma í betra
horf því upplýsingarnar sem
þessar skýrslur gefa okkur eru
gríðarlega mikilvægar,“ segir
Guðni. - th
Fiskifræðingur hjá Veiðimálastofnun vill fá betri veiðiskýrslur úr Elliðavatni:
Bleikjan hefur látið undan vegna sýkingar
Jón Kristjánsson fiskifræðingur, sem
heldur úti vefsíðunni fiski.com, telur
að staðlaðar tilraunaveiðar Veiði-
málastofnunar gefi ranga mynd af
stofnstærð bleikju og urriða í Ell-
iðavatni. Stærri fiskur og kynþroska
fiskur virðist vanmetinn og hlutfall
tegundanna sennilega skakkt.
Á vefsíðunni segir Jón að tilrauna-
veiðarnar fari fram eftir að bleikja sé
farin að torfa sig og ganga á rið. Netin
séu lögð á dæmigerðum búsvæðum
urriða en útbreiðsla tegundanna sé mjög háð dýpi og botngerð.
Jón telur nýrnaveikina ekki fullnægjandi skýringu á fækkun bleikjunnar.
Hlutfallsleg fækkun hennar geti allt eins stafað af því að urriðinn hafi
sótt í sig veðrið og stofninn stækkað vegna breytingar á samkeppnisað-
stöðu. Þá telur Jón að bleikjan geti einnig hafa átt erfitt uppdráttar vegna
lítils vatnsmagns í Elliðavatni sem rekja megi til stíflunnar en riðstöðvar
(hrygning) bleikjunnar séu oft á litlu dýpi eða 10 til 50 sentimetra dýpi.
Samkvæmt mælingum Jóns frá árinu 2002 var bleikjustofninn um 9.000
fiskar en urriðastofninn um 25.000, samkvæmt því var hlutfall bleikju um
25 prósent í vatninu. Jón bendir á að skekkjumörkin í urriðamælingunum
séu mikil.
Röng mynd af stofnstærðum í vatninu
Veiðiperla innan borgarmarkanna
Laxatangi
Vatnsendi
Neshólmi
Kríunes
Vatnsvík
Þingnes
Dimma Rauðhólar
Suðurá
Bugða
Elliðavatnsengi
Þingneshólmi
Elliðavatn
Helluvatn
Elliðavatnsbær
Myllulækur
Myllulækjartjörn
Riðhóll
(Bleikjutangi)
Vinsælir veiðistaðir
Þó Elliðavatn sé rúmir tveir
ferkílómetrar að flatarmáli er það
ekki djúpt. Meðaldýpið er um einn
metri en dýpst er það um 2,30
metrar. Þegar Elliðaárnar voru stífl-
aðar á þriðja áratug síðustu aldar
breyttist vatnið gríðarlega enda fór
Elliðavatnsengi þá meðal annars
undir vatn.
Grunnt vatn
Veiðileyfi í Elliðavatn eru seld
á skrifstofu SVFR og á vefsíðu
félagsins, svfr.is. Fyrir félagsmenn
kostar dagurinn 960 krónur en
1.200 fyrir aðra. Börn yngri en 12
ára og ellilífeyrisþegar þurfa ekk-
ert að borga, en þurfa að skrá sig
á netinu og prenta út veiðileyfin
eins og aðrir.
Leyfi á netinu
URRIÐI Þessi þriggja punda urriði sem
veiddist í Elliðavatni í síðustu viku
mældist 47 sentimetra langur.
Skæð á björt-
um dögum
Laxaflugan Nóra er eftir einn
fremsta veiðimann landsins,
Ásgeir Heiðar. Nóra er einföld
fluga en um leið ótrúlega skæð
í laxveiði ekki síst á björtum
dögum í vatnslitlum ám líkt og
veiðimenn upplifa um þessar
mundir. Nóra er því ómissandi
í fluguboxið í laxveiðina næstu
dagana. Einföld og sterk fluga.
UPPSKRIFT
Öngull - Silfurþríkrækja í stærðum
10 til 14
Tvinni - Svartur UNI 8/0
Skegg - Fanir af blálitaðri hænu-
fjöður
Vængur - Hár af gullituðu íkorna-
skotti.
FORSÍÐA VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
ÞÚ ERT
MEÐ
FRÆGA
FÓLKIÐ
Í VASANUM
MEÐ VÍSI
m.visir.is
Fáðu Vísi í símann!
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 9-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín
GEIR THORSTEINSSON Hefur veitt í
Elliðavatni frá því að hann var sex ára,
eða í 56 ár.
LAXAR komu á land úr Eystri-Rangá frá fimmtudeginum síðasta til sunnudagsins. Alls hafa
1.550 laxar verið veiddir í ánni.