Fréttablaðið - 11.08.2011, Qupperneq 62
11. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR46
SUNDLAUGIN
„Mín uppáhaldssundlaug er
gamla góða Varmárlaugin í
Mosfellsbæ.“
Íris Hólm söngkona.
„Þetta er bara ég við skrifborðið
heima og bókasafnið mitt á bak
við,“ segir Björn Jón Bragason,
sagnfræðingur og laganemi.
Björn Jón gefur kost á sér til
formennsku í Sambandi ungra
sjálfstæðismanna. Hann sendi
tilkynningu þess efnis til fjöl-
miðla í vikunni og vakti myndin
sem fylgdi mikla athygli. Þar sést
Björn sitja við skrifborð í smekk-
legum jakkafötum með gleraugu í
höndunum. Fyrir framan hann er
blekbytta, stimpill og fleiri tól sem
ungt fólk í dag notar eflaust ekkert
sérstaklega mikið. Þrátt fyrir það
segir Björn að uppstillingin hafi
ekki krafist mikils undirbúnings.
„Góður félagi minn, sem er
reyndar kvikmyndatökumaður, tók
myndina. Hann heitir Ingvar Guð-
mundsson. Þetta er bara skrifborð-
ið heima og ég er í nokkuð eðlilegu
umhverfi,“ segir Björn. „Hann rað-
aði dótinu þannig að þetta harmón-
eraði vel saman. Hann var búinn
að pæla í uppstillingum og skoða
myndir af Kennedy, en ég var voða
lítið inni í þeim pælingum. Ég held
að hann hafi verið að hugsa eitt-
hvað svoleiðis. Það er verið að búa
til einhvern virðuleika, en þetta
eru mjög eðlilegar aðstæður. “
Blekbyttan á borðinu vakti sér-
staka athygli, en þær eru sjaldgæf-
ar í dag – ekki síst á skrifborðum
manna sem eru rétt að skríða yfir
þrítugt.
Er blekbyttan í notkun?
„Já, ég skrifa alltaf með sjálf-
blekungi. Ég vandist á það fyrir
mörgum árum og finnst það þægi-
legra.“
Myndirðu þá segja að þú værir
af gamla skólanum?
„Ég er nú mjög frjálslyndur í
skoðunum, er formaður Frjáls-
hyggjufélagsins og er langt frá því
að vera íhaldssamur í stjórnmála-
skoðunum.“
En notar það sem virkar í rit-
föngum?
„Já, akkúrat.“
atlifannar@frettabladid.is
BJÖRN JÓN BRAGASON: ÉG ER Í NOKKUÐ EÐLILEGU UMHVERFI
Kennedy var fyrirmyndin
EÐLILEGAR AÐSTÆÐUR Framboðsmynd Björns Jóns Bragasonar hefur vakið talsverða athygli. Myndin krafðist ekki mikils undir-
búnings, enda er hún tekin heima hjá Birni Jóni.
„Björn Thors og Gísli Örn eru með glæsilegri
leikurum sem Ísland hefur upp á að bjóða í
dag,“ segir sjónvarpsmaðurinn Níels Thibaud
Girerd, best þekktur sem Nilli.
Eins og Fréttablaðið greindi frá í júní þá
vinnur Nilli að fyrstu stuttmynd sinni ásamt
Daníel Gylfasyni og Einari Karli Gunnars-
syni. Til stóð að Gísli Örn Garðarsson færi
með aðalhlutverkið í myndinni, sem fjallar
um hugarheim fíkils. Hann forfallaðist hins
vegar vegna anna við leikstjórn Hróa hattar í
London, en Nilli á ráð undir rifi hverju og fékk
annan stórleikara í stað Gísla, engan annan en
Björn Thors.
„Ég er alveg í skýjunum yfir þessu,“ segir
Nilli og bætir við að Björn hafi tekið vel í bón
sína. „Mér finnst Björn Thors alls ekkert síðri
leikari en Gísli Örn, enda hafa þeir
leikið saman í verkinu Hamskipt-
in eftir Kafka.“
Nilli leitar nú að dökk-
hærðum drengjum á aldr-
inum 6, 12 og 17 ára (innsk.
Nilla: Plús mínus eitt ár) til að
fara með hlutverk í myndinni.
Áheyrnarprufur fara fram í félags-
miðstöðinni Selinu á Seltjarnarnesi
næstkomandi laugardag klukkan 13.
Áhugasömum er bent á að senda póst
á villa.kvik@gmail.com. - afb
Björn fyllir skarð Gísla í mynd Nilla
LEIKUR Í MYND NILLA Björn Thors fer með
hlutverk í fyrstu stuttmynd Nilla, sem fer í
tökur í september.
„Markmið sýningarinnar er
að kenna útlendingum að vera
Íslendingar,“ segir leikarinn
Bjarni Haukur Þórsson og hlær.
Bjarni skrifar nú handrit að
leikritinu How to Become Ice-
landic in 60 Minutes. Eins og tit-
ill verksins gefur til kynna er
það nokkurs konar leiðarvísir
fyrir túrista sem vilja fræðast
um hegðun og atferli Íslendinga.
„Eins og við vitum erum
Íslendingar stórkostlegustu
mannverur sem ganga á jörðinni.
Það er fáránlegt að allur þessi
fjöldi sem kemur til Íslands læri
það ekki. Þetta er eitthvað sem
við kunnum upp á tíu sem Íslend-
ingar. Mér finnst nauðsynlegt að
miðla þessu,“ segir Bjarni léttur.
How to Become Icelandic in 60
Minutes verður sýnt í Hörpu og
frumsýnt á næsta ári. Verkið er
enn þá í mótun og Bjarni íhugar
nú hvort hann fari sjálfur með
hlutverk eða fái annan eða aðra
leikara til flytja verkið.
„Það er af nægu að taka,“ segir
Bjarni um efnistök verksins.
„Sem þjóð erum við búin að fara
í gegnum sjálfskoðun undanfar-
in ár. Ég hef hitt marga útlend-
inga þegar ég hef verið erlendis
að selja sýningarnar mínar og
þeir spyrja um Íslendinga. Hug-
myndin kom út frá því og sýning-
in fjallar um hvernig við erum í
samskiptum við hvert annað, álit-
ið sem við höfum á okkur, matar-
venjur og samskipti kynjanna –
hvernig karlmenn koma fram við
konur.“ - afb
Kennir túristum á Íslendinga
LEIÐARVÍSIR Bjarni Haukur vinnur nú að
sýningu sem kennir túristum að haga
sér eins og Íslendingar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Dæmi um það sem
tekið er fyrir í náminu:
Lita- og línufræði
Tónalgreining
Vaxtarbygging
Heitt og kalt rými
Stórt og lítið rými
Uppröðun hluta
Stílistun á:
Baðherbergi
Svefnherbergi
Barnaherbergi
Eldhúsi
Garðhýsi
Stofu
Og margt fleira.
The Academy of Colour and Style býður nú upp á nám í
innanhússtílistun. Farið er í helstu grunnþætti í lita- og
línufræði. Einnig er kennt að meta stíl út frá persónunni
sjálfri. Þá er hún greind út frá vaxtarbyggingu og
litgreiningu en þær upplýsingar segja mikið til um hvernig
einstaklingur vill hafa sitt nánasta umhverfi eins og liti og
stíl. Nemendur vinna svo verkefni í hverri viku og taka þá
fyrir stílistun á stofu, baðherbergi, barnaherbergi o.fl.
Gestafyrirlesarar koma í tíma og kynna fyrir nemendum
ýmis atriði sem koma þeim til góða.
Hver önn tekur þrjá mánuði. Kennsla fer fram í
Tækniskólanum einu sinni í viku frá 18-22.
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 533 5101
Anna F. Gunnarsdóttir
Stílisti
Helga Sigurbjarnadóttir
Innanhúsarkitekt
Þorsteinn Haraldsson
Byggingafræðingur
INNANHÚSSTÍLISTANÁM
Meiri Vísir.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir,
meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf,
meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á Vísi.
Fylgstu með Pepsideildinni í Boltavaktinni á Vísi. Beinar textalýsingar
allra leikja, útvarpslýsing á leik í hverri umferð í Boltavarpinu og
umfjöllun strax að loknum leik. Myndbönd með viðtölum öll
mörkin í sjónvarpi Vísis. Vertu á Boltavaktinni með Vísi í sumar.