Faxi - 01.12.1976, Side 5
n
&
$8
&
$
&
&
&
$8
3*
Hp
&
$
&
&
&
&
&
1$
Sfc
$$
SÞ
$8
&
$®
SÞ
$35
§Þ
$®
fc
&
&
fav
&
^ w ^ ^ w ‘n wtí w ^ ^ ^
Páll Þórðarson, sóknarprestur í Njarðvikurprestakalli
Jólaguðspjall, lwað er nú það? Er það nokk-
uð annað og meira en fallegt ævintýri úr aust-
urlöndum, sem dregið er fram í dagsljósið á
þeirri tíð, sem sólargangur er hve skemmstur?
Hvað gagnar stutt saga af barnsfœðingu við
heldur nöturlegar aðstæður í lieimi veruleikans,
í brauðstritsheiminum, þar sem mennirnir eru
að keppast við að koma sér áfram, flestir að
byggja og tyggja. Til eru þeir, sem telja það
algjöran óþarfa að gera lítið úr tiðindunum frá
Betlehemsvöllum, en telja að sama skapi úti í
hafsauga að taka mark á þeim.
Ágústus keisari var valdamikill maður, eins
og þeir segja i sjónvarpinu, en hvar er veldi
hans i dag? Það var vissidega raunverulegt á
sinni tið, en livar er það nú? Rómaveldi er látið
fyrir löngu. Ágústus keisari lifir á snjáðum
spjöldum sögunnar, eingöngu vegna þess að Jes-
ús Kristur er enn i dag lifandi veruleiki milljóna
manna. Ágústv.s var dæmigerður fulltrúi þeirra
sem koma og fara. Sól hans skein mjög sterkt
um stund, en settist siðan út við sjóndeildar-
liring tímans. Hann minnir á flugeld á gaml-
árskvöld, sem þýtur upp á næturhimininn og
springur þar með f jölskrúðugri litadýrð, en er
að morgni nýs árs útbrunnið prik á frosnum
sverði.
Dagar mannsins eru sem grasið
liann blómgast sem blómið á mörkinni.
Þegar vindur blæs á hann er hann horfinn
og staður hans þekkir hann ekki framar.
Þ-annig er saga okkar dauðlegra manna. Hún
greinir frá fálmkenndu brambolti í fallvöltum
heimi. Hún lýsir þvi, hvernig við grípum
krampakenndu taki á lifinu sjálfu og kreistum
það eins og sítrónu, í þeim tilgangi að fá sem
allra mest út úr því fyrir okkur sjálf. Og sagan
segir ennfremuf frá fyrirgangi okkar vegna
þeirra manna, sem við teljum að búi yfir mögu-
leikunum; hæfileikum. til stjórnunar og getu til
þess að gera vegferð okkar sem glœsilegasta.
Það var enginn smákvellur lijá þeim grönnum
okkar i vestri núna á dögunum, er þeir völdu
sér nýjan Ágústus. Keisaraefnin, Carter og
Ford, lofuðu gulli og grænum skógum og fyrir-
heit þeirra gætu vafalítið leyst vandamál lieilla
sclkerfa, kæmust þau einhverntíma i fram-
kvæmd. En sá sem. fæddist i húmi heilagrar
nætur i Brauðhúsum hafði ekki á að skipa. fjöl-
mennu liði afkastamikilla kosningasmdla. Veg-
ferð hans hófst ekki með fyrirgangi þessa heims
og mxnnlega séð, þá benti flest til þess að lífi
hans væri búin harla möguleikálítil framtíð.
Fréttasnatar allra tima og staða spara svo
sannarlega sporin að svo hversdagslegum tið-
indum, sem fæðing umkomulauss barns er. Þar
grípa þeir ekkert það kvak, sem hljómar sæt-
lega í eyrum fréttarþyrstrar heimsbyggðar-
innar.
Á jólunum viljum við helst kveikja á kerta-
Ijósum og fá að borða jólasteikina í friði með
fjölskyldunni. Okkur þykir þau kærkomin til-
breyting, þegar norðanáttin lemur gluggann og
ekki er hundi út sigandi. Og þá leggur ilminn úr
eldliúsinu, Siggi er á síðum buxum og Solla á
bláum kjól. En til eru þær nöldurskjóður, sem
spyrja á slíkum stundum: „Er þetta vegna Guðs,
eða gjafanna; Jesú eða jólasvemsins?“ Týnist
innilialdið i öllu umbúðaflóðinu? Eru jólin inni-
haldslítil hátíð barna og kaupmanna?
/ Betlehem snertust himinn og jörð. Á því
augnábliki urðu skilin miklu í mannkynssög-
Framliald á bls. 1/8
?r
ðf
flöf
45
af
45
45
flöf
at
45
ftf
45
aj
45
45
45
45
flöí
45
áöf
45
ftf
áöf
45
ftf
45
flfc?
45
fif
45
fif
45
45
áöf
45
45
^fr n ir ir *? ir *? n *? tr *? tr *? ^ «? ir *? tr <? *r *? :<r *? tr w v
FAXI — 5