Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1976, Blaðsíða 22

Faxi - 01.12.1976, Blaðsíða 22
r Ávarp á árshátíð Iðnaðarmannafélags Suðurnesja, EGILL JÓNSSON, tæknifræðingur: Iðnaðarmaðurinn á að vinna með hug og hönd Sjúkrahúsid í Keflavík óskar starfsfólki sínu og sjúkl- ingum gleðilegra jóla og gæfuríks komandi órs. Gleðileg jól! Farsælt komandi ór! Kiwanisklúbburinn Hof, Garði Gleðileg jól! Farsælt komandi ór! Þökkum viðskiptin ó liðna órinu. Rafborg sf., Grindavík Grindvíkingar Gleðileg jól! Farsælt komandi ór! Þökkum viðskiptin á liðna árinu. Kaupfélag Suðurnesja Gleðileg jól! Farsælt komandi ár! Verkalýðs- og sjómannafélag Gerðahrepps Óskum viðskiptavinum okkar gleðilegra jóla og gæfuríks kom- andi árs. Verzlunin Lyngholt Gleðileg jól! Farsælt komandi ár! Þökkum viðskiptin á liðna órinu. Húsabygging hf., Garði Sandgerðingar Gleðileg jól! Farsælt komandi ár! Þökkum viðskiptin á liðna árinu. Kaupfélag Suðurnesja Gleðileg jól! Farsælt komandi ár! FAXI Um þessar mundir eru 42 ár liðin síðan Iðnaðarmannafélag Suðurnesja var stofnað. Þá voru tímarnir allt aðrir og málin, sem vinna þurfti að önnur. Ég mun ekki fjölyrða um það, þar sem hér eru aðrir félagar mér mun hæfari, sem þekkja sögu félagsins af eigin raun, öll þau ár sem það hefur starfað. En eitt er víst, að félagið hefur verið eitt öflugasta iðnaðarmannafélag landsins í gegnum árin og notið frábærra starfs- krafta. 1 dag hugsum við með þaklæti til brautryðjendastarfsins og munum byggja á þeim trausta grunni, sem kominn er og horfa á veginn framundan. Ég vil því drepa á nokkur atriði sem framundan eru: — Fyrst ber að nefna Iðnskóla Suðurnesja. Hann var lagður niður í haust sem slíkur og iðnnám að hluta til tekið í hinn nýja Fjölbrauta- skóla Suðurnesja. Hér verðum við að vona, að svo vel takist til, að þetta nýja fyrirkomulag verði til að lyfta náminu upp á hærra plan, en hingað til hefur verið og sporið sé fram á við, en ekki öfugt. Um Iðnskóla Suðurnesja mátti þó margt gott segja og stjórn hans var í góðum höndum Ingólfs Halldórssonar, en hann var einn aðalhvatamaður að sameiningu iðnskólans og fjölbrauta- skólans í trausti þess, að um framför sé að ræða. Ég mun því ræða nokkuð um námið í minum nýja fjölbrauta- skóla. Ég á von á, að fjölbrautaskóli skili vel bóklegu námi, enda verður minna um endurtekningu í námi, frá því sem var, er iðnskólanemndur end- urtók oft og tíðum sama námsefni og þeir höfðu áður lært í gagnfræðaskóla. I f jölbrautaskóla stendur iðnnám jafnfætis öðru námi og þar með mun það fá fulla viðurkenningu sem slíkt á bóklega sviðinu. Vonandi verður því ekki sagt í framtíðinni: „hann eða hún fór bara í iðnskóla, en þessi eða hinn gekk menntaveginn". Þetta almennings- áliti var að vísu óþolandi snobb, sem íslenska þjóðin á sennilega eftir að súpa seyðið af. Vonandi verður reyndin einn- ig sú í frrmtíðinni að verklegt nám og viðhorf til þess verði almennt á öllum skólastigum metið ekki síður en bók- legt nám. —Fjölbrautaskóli hefur einn- ig kosti, sem slíkur, þar sem lífsstarf nemandans er að mótast og getur hann skipt um námsbrautir án þess að lenda á blindgötu eða þurfa að endurtaka fyrra nám, ef hugurinn beinist að öðru. Við fögnum því, að nú hefur í fyrsta sinni verið settur á stofn hér á Suður- nesjum, með tilkomu fjölbrautaskólans, skóli með verklegri kennslu. Eru málm- iðnaðarmenn þeir fyrstu sem njóta þess og hefur tekist vel til að afla skólanum húsnæðis, á sjálfu athafnasvæði Slipp- stöðvarinnar í Njarðvík. Eru nemendur þar undir handleiðslu góðra kennara. Aðrar greinar munu væntanlega fylgja á eftir. Augljóst er, að allt verklegt nám getur ekki farið fram inni í kennslu- FAXI — 22
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.