Faxi - 01.12.1976, Side 45
$00fi
Aðalsteinn Sigurjónsson — Alli frá
Litla-Hólmi — er maður fáskiptinn en
skjótur til svars ef svo ber undir, og
hnyttinn. Því miður kunnum við aðeins
fátt af tilsvörum hans, en þiggjum með
þökkum allt það sem lesendur geta bætt
í okkar litla safn af Alla og annarra
orðsnjallra manna. Vinsamlega sendið i
Pósthólf 115, Kefalvík, merkt Tímarit-
ið Faxi.
★
Aðalsteinn var staddur austur við
Laugarvatn ásamt fleira fólki af Suð-
urnesjum. Þá vindur sér að hinum kona
ein úr Garðinum, Marta að nafni, og
spyr: „Hvernig heldur þú að veðrið
verði á morgun?“
„Ég skal segja þér það hinn daginn,
góða.“
Alli starfar í kaupfélaginu og einn
dag kom lögreglumannsfrú inn í versl-
unina, ásamt manni sínum í fullum
skrúða. „Ég kom nú bara með lögregl-
una, til að hirða þig“, sagði konan í
glettni.
,,Hún hlýtur þá að hirða allt, fyrst
hún hefur einhverntíma hirt þig.“
★
Maður að nafni Ormur keypti sement
í kaupfélaginu, en gat ekki tekið það
strax, og kvaðst ætla að koma rétt fyrir
lokun en lét ekki sjá sig, fyrr en morg-
uninn eftir. Þegar hann framvísar af-
greiðslunótunni, pírir Alli augunum á
blaðið og spyr: „Hvað heitir þú góði
minn?“ ,,Ég heiti Ormur.“
„Já, ert það þú sem ætlaðir að koma
í gær — ég leit einmitt í bókina og
hugsaði með mér, ætlar bölvaður orm-
urinn ekki að koma.“
★
Alli fór eitt sinn austur i Hveragerði
með frænda sinum til að sækja farm.
Á leiðinni bað frændinn Alla um að gæta
þess að minnast ekkert á biblíuna við
afgreiðslumanninn, því hann væri ein-
mitt kenndur við þá merku bók. Alli
lofar því og þegar austur kemur, ræða
þeir saman góða stund, þar til af-
greiðslumaðurinn segir: „Ljómandi er
veðrið gott, logn og sólskin.“
,,Já, það fjúka þá ekki blöðin úr bibl-
íunni á meðan.“
★
Maður einn spurði Alla: „Hvað ætlið
þið að gera við Litla-Hólminn, Alli?“
„Ætli hann verði ekki kyrr þar sem
hann er.“
★
Alli var eitt sinn ökumaður á vöru-
bíl, sem var á leið um Reykjanesbraut-
ina með fiskfarm. Vigtarmenn frá Vega-
gerðinni, svonefndir „pundarar" könn-
uðu öxulþunga vörubifreiðanna. „Nú
máttu ekki hreyfa bílinn“, sagði pund-
arinn“ við Alla eftir að hann hafði ekið
vörubílnum á vigtina. Alli læsti þá bíln-
um vandlega og gekk spölkorn í burtu.
Þegar „pundarinn" hafði lokið verki
sínu og Alli gerði sig ekki líklegan til
að aka bílnum af vigtinni kallaði hann:
„Ætlarðu ekki að færa bílinn?“
„Hva, þú sagðir að ég mætti ekki
hreyfa hann.“
★
Alli kom þjótandi inn á símstöðina á
Siglufirði á síldarárunum miklu. Spari-
klæddir útgerðarmenn og síldarsaltend-
ur, með harða hatta, biðu þar eftir sím-
tali suður. Alli, sem var í vinnufötunum
mátulega kámugum, að vélstjóra hætti,
bað um Leiruna með, forgangshraði.
Grósserarnir spertu eyrun, forgangs-
hrað, hvað var að gerast? „Já, halló,
mig langaði bara til að vita hvernig
veðrið væri í Leirunni, pabbi???“
Sparkaup
Hefur jófamatinn á góðu verði
FAXI — 45