Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1976, Blaðsíða 19

Faxi - 01.12.1976, Blaðsíða 19
heimili aldraðra og heilsugæslustöð í þessu húsi var send þann 7. ágúst. Ráðuneytið vísaði umsókninni til um- sagnar landlæknis og þann 12. nóvem- ber 1975 ritar ráðuneytið bréf þar sem leyfi er formlega veitt fyryir stofnun dvalarheimilis fyrir aldraða og heilsu- gæslustöð í húsi Grímshóls í Garði. Eftir þetta hófust samningaviðræður milli Gerðahrepps og þeirra sveitarfé- laga sem hugsuðu sér þátttöku í reksr- inum. Varð niðurstaðan sú, að ákveðið var að taka húsnæðið fullbúið á leigu af Gerðahreppi og skuldbundu allir að- ilar sig til þess að leggja fram eða ábyrgjast vissa fjárupphæð til endur- bóta á húsinu, sem endurgreiddist að 5 árum liðnum með húsaleigu. Skipting reksturskostnaðar færi að öðru leyti eft- ir íbúatölu aðildar sveitarfélaganna. Fjárreiður fyrir rekstur heimilisins yrði í höndum rekstrarnefndar, en fjárreið- ur í sambandi við breytingu og viðhald á húsinu í höndum Gerðahrepps. um aðildarsveitafélaganna og sam- starfsmönnum mínum í samstarfsnefnd sveitarfélaga á Suðurnesjum fyrir ein- staka samstöðu og áhuga á málefninu. Margar dýrar og góðar gjafir hafa borist heimilinu m.a. frá Lionsmönnum í Njarðvík, sem gáfu litasjónvarp, Ki- wanismönnum á Keflavíkurflugvelli, sem gáfu snyrtiskápa í öll herbergi, GARÐVANGUR á hana sem dvalarheimili fyrir aldraða, heldur einnig sem stórt heimili fyrir fólk, hvað unir sér vel á síðasta ævi- skeiði sínu eins og samhent fjölskylda, glatt og ánægt með tilveruna. Til þess að það megi takast, verður að hlúa vel að heimilinu félagslega og þjónustulega. Að svo mæltu vil ég fyrir hönd Gerða- í maí 1976 var hafist handa af fullum krafti við breytingar og standsetningu á húsnæðinu og er þessu nú að ljúka að undanskilinni vinnu og skipulagn- ingu á lóð umhverfis húsið. Húsabygg- ing hf. tók að sér breytingar og smíða- vinnu og var Unnar Már Magnússon yfirsmiður. Raflagningaverkstæði Sig- urðar Ingvarssonar sá um rafmagns- vinnu og Jón Ásmundsson um pípulagn- ir. Teppi á gólfum eru frá Sverri Bern- höft hf. og innanstokksmunir frá Skeif- unni hf. og Bústofn hf. Málarameistari var Hjörleifur Mátthíasson. Vil ég sér- staklega færa þessum aðilum og öðrum, sem við þetta störfuðu þakkir fyrir einstaka lipurð og skilning á verkefn- inu. Frú Sólveig Óskarsdóttir var ráðin forstöðukona og vil ég þakka henni sérstaklega, svo og öðru starfsfólki fyr- ir mikinn áhuga oð ósérhlífni í starfinu undanfarið. Jafnframt vil ég nota tæki- færið til að þakka sveitarstjórnarmönn- reykskynjara í allt húsið og hljómflutn- ingstæki með inanhúskerfi í öll herbergi, sem áeftir að setja upp. Kiwanismenn í Garði hafa haft veg og vanda af stand- setningu heilsugæslunnar og gefið tæki í hana og til dvalarheimilisins. Einnig eru að berast gjafir frá kvenfélögum og ýmsum félögum öðrum á Suðurnesjum og mörgum einstaklingum. Landeig- endafélag Gerðahrepps hefur gefið land undir bygyginguna. Vil ég færa öllum þessum aðilum kærar þakkir fyrir rausnarlegar gjafir og jafnframt fyrir þann hug sem á bak við þær liggja. Ég vil biðja gesti að gera okkur þá ánægju að skoða híbýlin hér í dvalar- heimilinu og einnig heilsugæslustöðina í vesturálmu hússins. Að því loknu bjóðum við gestum upp á veitingar hér í salnum. Vistmenn býð ég velkomna til nýrra heimkynna og við skulum vona, að þessi stofnun eigi eftir að dafna og þróast á þann veg, að ekki verði einungis litið hrepps og jafnframt fyriry hönd sam- starfsnefndar sveitarfélaga á Suðurnesj- um afhenda rekstrarnefnd dvalarheim- ilisins húsið til ráðstöfunar um leið og ég óska þeim allra heilla í starfi. Samstarfsnefnd sveitarfélaga á Suður- nesjum: Haraldur Gíslason formaður, Jóhann Einvarðsson bæjarstjóri, Albert K. Sanders bæjarstjóri, Eiríkur Alexandersson bæjarstjóri, Alfreð Alfreðsson sveitarstjóri, Jóhann G. Jónsson sveitarstjóri, Jósef Borgarsson sveitarstjóri. Rekstrarnefnd dvalarheimilisins: Jón Ólafsson, skólastjóri, formaður, Sesselja Magnúsdóttir, Albert K. Sanders, Alfreð Alfreðsson, Jóhann G. Jónsson, Jósef Borgarsson. Forstöðukona; Sóveig Óskarsdóttir. FAXI — 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.