Faxi - 01.12.1976, Blaðsíða 29
Gleðileg jól!
Farsælt komandi ár!
HAFRENNINGUR hf.
Grindavík
Gleðileg jól!
Farsælt komandi ár!
VÍKURNESTI hf., Grindavík
Gleðileg jól!
Farsælt komandi ár!
FISKANES hf., Grindavík
Gleðileg jól!
Farsælt komandi ár!
SKIPANAUST hf., Grindavík
Gleðileg jól!
Farsælt komandi ár!
HELGI HJARTARSON
rafvirkjameistari, Grindavík
Gleðileg jól!
Farsælt komandi ár!
VÉLSMIÐJA GRINDAVÍKUR
Gleðileg jól!
Farsælt komandi ár!
VÍSIR sf., Grindavík
Gleðileg jól!
Farsælt komandi ár!
FISKIMJÖL OG LÝSI hf.
Grindavík
Gleðileg jól!
Farsælt komandi ár!
HÓPSNES hf., Grindavík
LEIKFÉLAG GRINDAVÍKUR:
Allir í verkfall
Höfundur: Duncan Greenwood
Þýðing: Torfey Steinsdóttir
Leikstjóri: Kristján Jónsson
Leiklistarbakterían sem hreiðraði um
sig í Grindavík í fyrrahaust lifir ,enn
góðu lífi og ekki er að sjá að henni verði
útrýmt á næstunni, ef dæma má eftir
þriðju uppfærslunni á rúmu ári. Uppselt
var á frumsýninguna og leikurum og
leikstjóra var fagnað með lófataki og
blómum í leikslok.
Eins og fram kom í fréttum hrjáði
,,karlmannsleysi“ leikfélagið er starf-
semin var að byrja í haust, svo erfið-
lega gekk að „manna' í hlutverkin svo
notað sé fiskibæjarmál. Einna tregast
gekk að fá einhvern í hlutverk verk-
stjórans, sem var í verkfalli, aðalhlut-
verk leiksins. Um síðir rættist úr vand-
anum. Sigurpáll Einarsson skipstjóri
brá sér úr hlutverki baráttumanns sjó-
mannastéttarinnar, sem hann hefur
staðið í að undanförnu, og í gervi land-
krabbans, sem berst fyrir bættum kjör-
um í verksmiðjunni. Að vísu er þar um
nokkuð ólíkar baráttuaðferðir að ræða
en þrátt fyrir að Sigurpáll hafi ekki
komið á fjalirnar áður stóð hann sig
með stakri prýði í hlutverki Alberts,
mátulega kærulaus í atburðarásinni,
sem leiddi af verkfallinu. Auðvitað naut
hann þar reynslu og hæfileika leikstjór-
ans, Kristjáns Jónssonar, sem óragur
teflir nýliðunum í Grindavík fram í stór
hlutverk án þess að bregðist. Það sann-
aðist einnig á öðrum nýliða, Svavari
Svavarssyni í hlutverki samviskusama
ríkisstarfsmannsins, Benjamíns, sem þó
verður hált á heiðarleikans braut og
lætur glepjast af Bakkusi. Gott gervi og
skýr persónusköpun öfluðu honum
mestra vinsældi meðal áhorfenda í Festi
þetta kvöldið.
Eiginkonuna og dótturina, sem lýstu
vanþóknun sinni á verkfallinu með því
að fara sjálfar í verkfall á heimilinu,
léku þær Þóra Júlíusdóttir, Klöru, og
Guðbjörg Ásgeirsdóttir, Elsie. Tengda-
soninn tilvonandi lék Lúðvík Jóelsson.
Öll gerðu þau hlutverkum sínum bestu
skil, enda sviðsreynd. Valgerður Þor-
valdsdóttir var gustmikil sem uppgjafa-
leikkonan glaðlynda og slóttuga, frú
Flannel, og örugg í fasi. Náði hún góð-
um tökum á persónunni og ekki var
síðri Rosie dóttir hennar leikin af Guð-
rúnu H. Jóhannsdóttur, eitt minnsta
hlutverkið en mjög vel af hendi leyst.
Erfiðar aðstæður, grunnt svið og lágt,
hefur vafalítið verið leikstjóranum erf-
itt viðureignar en furðu gegnir hvað
honum tekst að koma öllu haganlega
fyrir á sviðinu án þess að allt fari í
hnút í hraða leiksins og þrengslunum.
Grindvíkingarnir fóru á flakk með
„verkfallið", sýndu í Sandgerði við góð-
ar undirtektir, tvívegis ,og hyggjast ef
til vill sýna í Garðinum eftir áramótin
og víðar. emm
FAXI
29