Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1976, Page 8

Faxi - 01.12.1976, Page 8
VJkX.1 Otgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavik Bitstjóri: Magnús Gislason Blaðstjóm: Jón Tómasson, Kristján Gu6- laugsson, Ragnar Guðleifsson Augiýslngastjóri: Ágúst Matthíasson Setning, umbrot og offsetprentun: Setjarinn hf. og Fjarðarprent Utgreining, offsetfllmur og plötur: Prisma sf. afr -paeRa okkciR frzfö - sannan fxzffr Öll okkar hafa ákveðnar tilfinningar varðandi jólin. Fyrir sumum er þetta e. t. v. aðallega verslunar- og gjafahátíð. Aðrir kvarta yfir því, að þetta sé aðeins matar- og drykkjuhátíð. Enn öðrum finnst jólin vera tími amsturs og armæðu. En sennilega á það við um okkur öll, hvernig svo sem við lítum á jólin að öðru leyti, að friður er hugtak, sem við teljum náskylt þessari hátíð skammdegisins. Sennilega mætti einnig segja, að ein af grundvallaróskum okkar sé óskin um frið — frið úti í heimi, frið í landinu okkar, frið í fjölskyldunni, já, og frið í hjörtum okkar. En er ekki þetta tal um frið í hjarta eitthvða sem er nógu fallegt í sjálfu sér, en utan alls raunveruleika? IMei, alls ekki. Mikið af böli okkar orsakast vegna skorts á friði í hjarta og huga einstaklingsins. Stofnanir af ýmsu tagi eru fylltar einstaklingum, sem væru þar ekki hefðu þeir þennan frið. Kjarni jólaboðskaparins er einmitt um þetta — frið í lífi einstaklingsins; frið við umhverfið; frið við meðbræðurna; frið við Guð. Boðskapur jólanna snýst ekki aðeins um barn í jötu, heldur þennan frið okkur til handa. Jesús Kristur fæddist í þennan heim til að frelsa okkur, og að gefa okkur fullvissu um eilíft líf, og þetta líf öðlumst við, þegar við snúum okkur til Guðs í trú. Lífið og framtíðin verður þá ekki lengur hulið óvissu og vonleysi. Mætti boðskapur jólanna ná til hjartna okkar allra, þannig að við verðum ekki einungis minnt á lítið barn, sem fæddist fyrir tæpum 2000 árum, heldur og á það, sem átti að verða hlutverk þessa einstaklings — að færa okkur frið, sannan frið. Með innilegustu óskum um ánægjulega hátíð. Gleðileg jól. Einar Arason Óskum sjómönnum og starfs- fólki voru gleðilegra jóla og farsæls komandi órs. Þökkum samtarfið ó liðna órinu. Rafn hf., Sandgerði Gleðileg jól! Farsælt komandi ór! Þökkum viðskiptavinum og starfs- mönnum gott samstarf á liðna árinu. Hlutaféiagið Röst Gleðileg jól! Farsælt komandi ár! Þökkum viðskiptin á liðna árinu. Verzlunin Aldan, Sandgerði Gleðileg jól! Farsælt komandi ár! Heimir, fél. ungra Sjálfstæðismanna Oska öllum sjómönnum, nær og fjær, gleðilegra jóla og far- sæls komandi árs, með þök'k fyrir árið, sem er að líða. Sónar hf. Verkalýðs- og sjómannafélag Miðneshrepps óskar öllum félagsmönnum og velunnurum gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs. Ljósmynddstofa Suðurnesjd Hdfnarsötu 79 - Sími 2930 FAXI — 8

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.