Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.12.1976, Qupperneq 49

Faxi - 01.12.1976, Qupperneq 49
MINNING Fimmtudaginn 22. júlí 1976 fór fram frá Keflavíkurkirkju útför Einars Norð- fjörðs, húsasmíðameistara, en hann lézt í Borgarspítalanum 13. júli eftir langt og mjög erfitt sjúkdómsstríð. Einar Norðfjörð var fæddur í Innri- Njarðvík 23. marz 1915. Foreldrar hans voru þau hjónin Guðrún Einarsdóttir og Jón Jónsson, er lengi bjó í Stapa- koti í Innri-Njarðvík og var ávallt við þann bæ kenndur síðan. Systkini Einars voru 14, þar var einn albróðir, Margeir Jónsson, útgerðar- maður í Keflavík, en hann var hálfu öðru ári yngri. í Stapakoti ólst Einar upp. Þegar hann var fjögra ára missti hann móður sína. En faðir hans kvæntist aftur, Ragnhildi Ilelgu Egilsdóttur, ágætis- konu, sem gekk honum og albróður hans, Margeiri, nú i móður stað. Um 14 ára aldur fluttist Einar með fjölskyldu sinni til Keflavíkur, og skömmu síðar vistaðist hann hjá frænda sínum, Einari Guðbergi Sigurðs- syni, skipstjóra og útgerðarmanni og konu hans Maríu Guðmundsdóttur. Átti Einar þar gott heimili þar til hann stofnaði sitt eigið. Einar var kvæntur Sólveigu Guð- mundsdóttur, hj.úkrunarkonu, frá Lönd- um á Miðnesi. au genÞgu í hjónaband 24. ágúst 1940. Bjuggu þau fyrst í hús- inu nr. 45 við Suðurgötu, sem Einar hafði byggt. Seinna byggði hann húsið nr. 5 við Mánagötu og bjó þar nokkur ár. En síðasta húsið, sem hann byggði og bjó i sjálfur er húsið nr. 1. við Mánagötu. Þar bjuggu þau hjónin þar til þau fluttu til Reykjavíkur árið 1965. Sólveig var samhent manni sínum í Einar Norðfjörð HÚSASMÍÐAMEISTARI F. 23. MARS 1915 — D. 22. JÚLÍ 1976 að gera heimilið vistlegt og aðlaðandi. Hún var einnig traust stoð manns síns í öllum hans sjúkdómserfiðleikum og stríði. Þar átti Einar sannarlega trausta verndarvætt, sem aldrei brást. Þau hjónin eignuðust þrjú börn. Þau eru Einar Guðberg, tæknifræðingur, kvæntur Kristínu Þórðardóttur, eiga 3 börn; Guðrún gift Steinari Árnasyni, meinatækni, eiga 1 barn; Sigurbjörg gift Þorgeiri Valdimarssyni, veggfóðr- ara, eiga 1 barn. Öll búa þau í Reykja- vík. Einar hóf nám í húsasmíði árið 1936, hjá Skúla heitnum Skúlasyni trésmið i Keflavík. Iðnskólanámi Iauk hann í Reykjavík 1939 og tók sveinspróf í húsasmíði 1940. Næstu árin vann hann í iðngrein sinni. Teiknaði og byggði þá mörg hús hér í Keflavík. Hann var eft- irsóttur byggingameistari vegna dugn- aðar og vandvirkni. Þær byggingar allar, sem Einar stóð fyrir sem meistari, verða ekki taldar hér, þó vil ég nefna nokkrar. Við Mána- götu í Keflavík eru 6 hús og það vill svo til. að öll þeirra, nema eitt, hefur Einar byggt, og hann hefur teiknað 3 þeirra. — Hann var byggingameistari við byggingu barnaskólahússins við Sól- vallagötu, þegar það var reist, 1950 til ’52. Þá var tækni öll skemmra á veg komin en nú. Eigi var heldur ákvæðis- vinna við smíðar þekkt hér. — Það kom i minn hlut að fylgjnst með þessu verki á vegum bæjarins, og þess minnist ég enn eftir 24 ár hve þangað var ávallt ánægjulegt að koma. Þar var unnið með einum huga og var byggingameistarinn þar ávallt leiðandi. Með Einari var gott að vinna. Hann var sérstakt ljúfmenni, sem vildi hvers manns vanda leysa. Um tíma var Einar byggingafulltrúi í Keflavík og leysti það starf sem önn- ur með ágætum. Áður en Einar hóf húsasmíðanám sitt vann hann eins og allir aðrir, sem unnið gátu, við sjóinn. Hann vann við vélbáta í landi á vetrarvertíðinni og var á síld á sumrin. — Hann var þvi öllum hnútum kunnugur, þegar hann vorið 1946 myndaði útgerðarfélag með bróður sínum Ólafi B. Ólafssyni, skipstjóra, sem nú er nýlátinn og mági sínum Hreggviði Guðmundssyni, og keyptu þeir vélbát frá Svíþjóð. Þeir gáfu bátn- um nafnið Nonni og gerðu hann út í nokkur ár. Fyrir 22 árum hóf Einar störf hjá Sameinuðum verktökum á Keflavíkur- flugvelli, og hann hélt þar störfum áfram eftir að ísl. Aðalverktakar tóku þar við. Eigi er mér kunnugt um hvers konar störf hann vann þar síðari árin, en það munu hafa verið eftirlitsstörf með byggingum á vegum ísl. Aðalverk- taka. Einar var á tímabili félagi í Mál- fundafélaginu Faxa. Faxafélagar minn- ast góðra stunda, er þeir áttu með hon- um þar og fylgja honum kveðjur þeirra og þakkir. Nú þegar leiðir skilja að sinni, er mér, sem þessar fátæklegu línur rita, efst í huga þakklæti til ykkar hjónanna beggja, og minnist ég þá sérstaklega löngu liðinna ára. Með hjartanlegri samúðarkveðju okk- ar hjónanna til eiginkonu, barna, barna- barna, tengdabarna, svo og annarra ætt- ingja og vina. Ragnar Guðleifsson FAXI — 49
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.