Faxi - 01.12.1976, Qupperneq 59
PJ dtopinn
Mólning, veggfóður, gólfdúkar,
gólfteppi, korkflísar.
Verið tímanlcgo með jólaundirbúninginn.
Fldfopinn
Hafnargötu 80 - Sími 2652
Gleðileg jól
við lestur góðra bóka.
BÓKABÚÐ KEFLAVÍKUR
Cmfuiftþjóniiitur urn fjátíJiírn
KEFLAVlKURPRESTAKALL:
i ar
N JARÐVí KURPRESTAKALL:
sem hafa gerst hluthafar í útgerð, þeir
byrja alltaf að spara, eftir því sem ég
hef heyrt. Annars þarf ég ekki að kvarta
undan lélegum veiðarfærum, þau hafa
verið góð hjá mér í gegnum árin, menn
fiska ekki í eitthvert drasl, enda er lífs-
spursmál að hafa gott í höndunum á
hvaða veiðiskap sem er.“
Skólarnir miðast meira
við framleiðsluna.
Eins og fram hefur komið er það
vissa Eggerts að íslendingar geti búið
mjög sómasamlega í landi sínu, á því
sem fiskiskipin afla. „Okkur vantar um-
byltingu í þjóðfélagið. Okkar unga efni-
lega fólk þarf að snúa sér meira að
raunvísindum, til þess að geta nýtt
sjávarafurðirnar meira í okkar þágu.
Skólarnir útskrifa of mikið af fólki sem
ætlar sér að lifa á andanum fremur en
efninu. Þessu verður að breyta til að
geta staðið upp úr. Við getum ekki
skapað andann nema hafa efnið. Skól-
arnir þurfa að miðast meira við fram-
leiðsluna. í aukinni nýtingu sjávar-
urða eru auðæfi okkar fólgin, sú stór-
iðja sem við eigum að reisa okkur, en
ekki álver, með ólífræn störf, innflutt
hráefni og sveiflukennda markaði."
„Við eigum að nýta orkuna sem við
eigum í landinu, hitann í jörðinni, fall-
vötnin, straumana, jafnvel vindinn, nýta
þetta sjálfir, en því miður eru flokka-
drættir miklir á íslandi og einn rífur
niður það sem annar vill byggja upp.
Einnig er fyrsta skilyrðið til að árang-
ur geti náðst, þess vegna megum við
ekki vinna hver gegn öðrum.“ emm
^ ^ w ^ ^ ^ w ^?r t?
Aðfangratlafrur:
Aftansöngur kl. 6 s.d. - Hreinn Líndal
syngur stólvers.
Aðfangadagskvöld:
„Kristið æskufólk sér um jólavöku kl.
23.00. Helgileikur o.fl.
Jóladagur:
Hátíðarguðsþjónusta kl. 2 s.d.
Annar í jóluin:
Skírnarguðsþjónusta kl. 2 s.d.
Gamlársdagur:
Aftansöngur kl. 6 s.d.
Nýársdagur:
Hátiðarguðsþjónusta kl. 2 s.d. Tómas
Tómasson, forseti bæjarstjórnar Keflavík-
ur, prédikar.
Aðf angadagur:
Aftansöngur í Innri-Njarðvíkurkirkju
kl. 18.00
Aðf angadagskvöld:
Miðnæturguðsþjónusta í Stapa kl. 23.30
Jóladagur:
Hátíðarguðsþjónusta í Innri-Njarð-
víkurkirkju kl. 14.00
Annar f jólum:
Barnaguðsþjónusta i Stapa kl. 11.00
Ganilársdagur:
Messa í Innri-Njarðvikurkirkjukl. 18.00
Nýársdagur:
Hátíðarguðsþjónusta í Stapa kl. 14.00
FAXI — 59