Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1986, Síða 7

Faxi - 01.01.1986, Síða 7
verið ófáanlegt, því menn vildu hækka hann frá því, sem verið hafði. dhngsl Hallgríms Péturssonar við kirkjuna voru honum mjög kær og vildi hann því gera veg hennar sem mestan. Safnaðarfulltrúi Hvalsnes- hirkju, Gísli Guðmundsson seg- ir svo frá er hann lýsir viðgerð og endurbótum á Hvalsneskirkju sumarið 1945, í blaðinu FAXÁ. begar hann hefur lýst í hverju viðgerðin hafi verið fólgin, segir hann:,, Ég vil geta þess að okkur hafði langað til að fá gylltar stjörnur í hvelfingu kirkjunnar, en þær kostuðu svo mikið fé í Reykjavík, að ráðamenn kirkj- unnar töldu frágangssök að leggja út í slík kaup, og hefði kirkjan orðið án þessarar skreytingar, ef henni hefði ekki borist óvænt hjálp. Það voru þeir 'lbrfi ogGuðni Magnússon, sem veittu hjálpina. Ibrli skar stjörnumótin út í tré, en Guðni steypti þau, og þannig atvikaðist það, að þrátt fyrir mikla erlið- leika, sem virtust um tíma tnundu hamla þessari iram- hvæmd, blasir nú við augum kirkjugesta í Hvalsneskirkju lögur og stjörnusett hvelfing." ibrfi lagði niður snu'ðaverk- stæði sitt vegna þess að hann bil- abi í baki. Var hann nú vigtar- ’Uaður við Keflavíkurhöfn skamma hríð uns hann tók við íorstjórastarfinu við Félagsbíó í veikindaforföllum Björns bróð- ur síns. Var það upphafiega aætlað í hálfan mánuð, en urðu 12 ár, frá 1957 til 1969. l’að kom í hlut i'orfa að sjá um byggingu FÉLAGSBÍÓS, ekki ehiu sinni heldur tvisvar, vegna þess að húsið brann að nóttu. Eigi var vitað um eldsupptök. Við uppbyggingu hússins í bæði skiptin sýndi ibrfi mikinn dugnað og hagsýni. Hann var af þeirri gerð, að hann lagði sig all- au fram við að gera verkið sem best úr garði, án óhófs kostnað- ar. Tbrfi var tengdur Verlealýðs- °g sjómannafélagi Kefiavíkur Irá stofnun þess. l lann var ritari þess í fjölda ára og skilaði þar ruiklu og góðu starfi, sem aldrei verður fullþakkað. Um leið og ég þakka vini mín- Urn ibrfa samstarf liðinna ára, sem aldrei bar skugga á, fiytjum vio hjónin konu hans, börnum, barnabörnum, svo og öðru lengdafólki okkar hjartanleg- ustu samúðarkveðjur. Ragna Guðleifsson Til INGIB JARGAR SIGURÐARDÓTTUR á 60 ára afmælisdegi, 17. ágúst 1985. I Við ysta haf á œsku vori hvar öldur stríðar að landi stefndu, horfðir þú oft á hrannir œða og hamrammar knýja bjargið trausta. Við unnir frammi á œskuvori undir þú hljóð er sólin bjarta laut sínu höfði, en Ijósar bárur lauguðust hennar geisla rúnum. III Megi þér auðnast um œvidaga óskadraumunum þínum að sinna listinni fögru í Ijóðsins böndum, og lífsins sögum er örlög tvinna. Megi þíns hjarta guðleg göfgi gceðunum œðstu lífs á vegi miðla svo geti mannleg meinin mildast, á vegferð lífs á jörðu. Við unnir frammi þá vorið vœna vakti af dvala blómin ungu, löngum undir þú lífs á morgni við Ijóma dags og ölduniðinn. Æskudaganna unaðsstundir innst þér í sálu gegmdar leynast. Uppspretta eru þœr andans snilldar og ótœmandi lista-brunnur. II Hlutverk var þér í heimi fengið hlúa þú skyldir með kœrleiks mundum að öllu sem á í vök að verjast í veröld, hvar svalur kuldinn nístir. Lítt því sinnt hefur eigin óskum, eigin högum né sjálfrar gengi, annarra hagur öllu réði í önnum ströngum lífs á vegi. Lyfti þér alheims Ijósið bjarta langt yfir svipul heimsins gœði, veiti þér styrk í stríði hörðu, strái á veg þinn gleði rósum. Pökkum við nú afheitu hjarta hugljúf kynni á liðnum árum. Vinátta þín og viðmótshlýja vissulega er gulli betri. Óskum við nú af heilum huga hér að enduðum sextíu' árum megir þú njóta heilla handa og hamingju fram að síðasta kvöldi. Með innilegum kveðjum, frá Aðalheiði Tómasdóttur og Ingvari Agnarssyni. Kálfshamarsnes og Kálfshamarsvík, œskustöðvar lngi- bjargar Sigurðar- dóttur FAXI 7

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.