Faxi - 01.01.1986, Side 12
,A E auðlegð tun gunnar er
iregg þjóðari: nnar falið“
í haustblöðum Faxa var getið
jólabóka 4 Suðurnesjamanna,
þeirra er sent höfðu eintak til
skoðunar, en þeir eru: Séra Jón
Thorarensen — Innnesjamenn,
Karvel Ögmundsson — Sjómanns-
ævi, Guðmundur A. Finnbogason
— í bak og fyrir og ljóðabók Atla
Ingólfssonar — Ljóstur. Þá er
ljóðabókar Kristins Reyr gerð
nokkur skil í þessu blaði.
En fleiri Suðurnesjamenn munu
hafa verið virkir höfundar í haust.
T.d. mun Ingibjörg Sigurðardóttir
hafa sent frá sér bók — Höll ham-
ingjunnar, sem kvað hafa selst
upp hjá forlaginu.
Guðbergur Bergsson er mikil-
virkur höfundur. Bækur frá hans
hendi eru taldar vera tvær, Leitin
að landinu fagra og Froskmaður-
inn en hún ber höfundar heitið
Hermann Másson.
Flest eru skáld þessi fædd og
uppalin á Suðurnesjum, hin alið
megin hluta manndómsára sinna
hér.
Þrátt fyrir mikið veraldar vafst-
ur og válegt vélaglamur virðist því
hér vera hagstætt umhverfi til
hugsmíða.
Bóksalar og aðrir þeir eru hag-
sældar njóta af góðri bóksölu, þar
á meðal fréttamenn íjölmiðla, láta
vel af þeirri vertíð er jólabókaflóð-
ið færði hlutaðeigendum í haust.
Kristinn Reyr
Ingibjörg Sigurðardóttir Guðbergur Bergsson
Fræðimenn létu að því liggja að ís-
lendingar væru bókelskasta og
fróðleiksfúsasta þjóð f heimi.
Raunsæismenn töldu hinsvegar
að mikil og aukin bóksala í stór-
straum bókaflóðsins nú fyrir jólin
hafi stafað af hagkvæmu verði
bóka til jólagjafa.
Kannske hefur allt þetta stuðlað
að mikilli bókaútgafu og líflegum
bókamarkaði. Suðurnesjamenn
reyndust afkastamiklir að vanda.
Þriggja höfunda og bóka þeirra
var getið í jólablaði Faxa. Bók
Kristins Reyr, Gneistar til grips,
barst hinsvegar eftir að jólablaðið
var komið út — líklega nokkuð
síðbúin jólabók, hafi hún átt að
vera það.
Annars er Kristinn hreint eng-
inn viðvaningur í bókabransan-
um, var kunnur bóksali í áratugi
hér í Keflavík og á 50 ára höfunda-
Keflavík -
Skrifstofustarf
Laust er starf á skrifstofu embættisins við vélrit-
un og fleira. Góð vélritunarkunnátta nauðsyn-
leg.
Laun samkvæmt launakerfi BSRB.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf óskast sendar undirrituðum fyrir 10.
febrúar.
Bæjarfógetinn í Keflavík, Njarðvík og
Grindavík.
Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu
Jón Eysteinsson
ferli hans á hann nú 26 útgefin
verk að baki. Þar kennir margra
grasa, enda eðlisþættir hans í list-
Syndir feðranna
um margir. Leikrit, ljóð og laga-
smíð eru á þeim lista. Lista yfir
málverk hans hef ég ekki séð, en
veit að þau eru mörg, og prýða
mörg heimili víðsvegar um land-
ið. Línur og litir fara haganlega úr
höndum hans. Eins og í fyrri
ljóðabókum Kristins gneistar á
milli ádeilu og gamansemi.
Adeilan er gjarnan í spariklæð-
um en getur þó klæðst líklíni, en
jafnan er skop og glettni ívaf í orð-
fimi Kristins.
Syndir feðranna, sem hér fer á
eftir er gott sýnishorn af ljóðagerð
Kristins.
Ekki er vitaö með vissu
um vistina á öðrum stjörnum
í alheimi ellegar hvort
framliðna fýsi þaðan
í ferðalag til þess eins
að endurholdgast á Fróni
og afplána syndir feðranna
í erlendum skuldum.
Þrengist óðum í búi
með þjóðkjörna ómegð
svo fjármálaráðherra hlýtur
að fela biskupi landsins
hið fyrsta að láta presta
kalla eftir kraftaverki
við kistu hins látna
skilvísa skattpínda manns
sem ranki þá við sér áður
en rekunum verði kastað
og rykki lokinu upp
hypji sig kaldur fram úr
með hnefann á lofti
í hvítri skikkjunni
og aflýsi hreint með öllu
erfisdrykkjunni.
J.T. tóm saman
12 FAXI