Faxi

Årgang

Faxi - 01.01.1986, Side 13

Faxi - 01.01.1986, Side 13
MINNING Haraldur Kr. Magnússon verkstjóri — frá Hjörtsbæ í Keflavík FÆDDUR 11.08.1914 - DÁINN 26.12.1985 Við, sem komnir erum í seinni hálfleik æviskeiðsins megum alltaf eiga von á því að vinir og samferðarmenn heltist úr lestinni °g leggi upp í langferðina miklu og slíti samvistum a.m.k. um sinn. Okkur bregður þó alltaf við og stundum erum við lengi að átta okkur á þessum viðskilnaði. Gáta lífs og dauða mun víst flestum torráðin. Margir hafa spreytt sig á að leysa hana, en mér vitanlega hefur engum tekist það til fullnustu. Frammi fyrir dómi og lcalli dauðans standa a.m.k. allir jafnir °g enginn ræður sínum nætur- stað. bau sannindi urðu mér ljós þeg- ar vinur minn og frændi lést á annan dag jóla, eftir stutta en erf- ida sjúkrahúsvist. Haraldur Kr. Magnússon fædd- ist 11. ágúst 1914 í Keflavík, sonur hjónanna Guðríðar Ingibjargar dónsdóttur frá Akri og Magnúsar l’álssonar, skipstjóra frá Hjörts- bæ, en hann fórst með vélbátnum Huldu 1932. begar Haraldur var að alast upp 1 Keflavík voru íbúar hér nokkur hundruð talsins. Fólkinu hefur ijölgað hér á æviskeiði hans, risa- skref til framfara hafa verið tekin. Haraldur reyndist einn þeirra vösku manna, sem stuðluðu með starfi sínu og lífsviðhorfum að því að byggðin óx og dafnaði. Æskuheimili Haraldar var orð- lagt fyrir snyrtimennsku og myndarskap. Föðurmissirinn í msku setti sinn svip á æskuheim- ihð, sem Guðríður stjórnaði af festu og ósérhlífni og henni tókst að koma bræðrunum — Haraldi og Hauki til manns. Sú kynslóð, sem hverfur með Haraldi hefur unnið landi og þjóð okkar mikið gagn, sem við seint fáum fullþakkað. Lífið á uppvaxt- arárum þess fólks var mjög erfitt og fátækt og atvinnuleysi daglegt brauð. Engu að síður hefur þraut- seigja og dugnaður þess verið lyftistöng velmegunar síðari tíma. Er ég minnist Haraldar, þá kem- ur mér í hug, að hann er einmitt dæmigerður fulltrúi síns tíma og veit ég að sú minning mun lifa. Á bernskuárum Haraldar Kr. Magnússonar voru tækifærin til menntunar og fjölbreyttra athafna ekkijafn tiltæk og nú. Skólaganga unglinga takmarkaðist við barna- skólann, og að fáu var að snúa sér öðru en því að sækja sjóinn. Ungir menn sem vildu bjarga sér áfram urðu að afla fanga úr sjónum, og var það vissulega boð- legt viðfangsefni, en ekki heiglum hent. En margur hefur sjálfsagt kosið meira úrval verkefna. Haraldur hóf sjómennsku 15 ára eins og algengast var í þá daga, og var á ýmsum litlum mótorbátum, lengst af sem vélstjóri. 1 stríðsbyrjun stofnuðu nokkrir Keflvíkingar samvinnufélag um útgerð, og létu byggja stærsta fiskibátinn, sem þá hafði verið byggður hér syðra, m/b Keflvík- ing. Haraldur var einn af stofn- endum félagsins. Útgerð skipsins reyndist happa- drjúg og færði mikla björg í bú. Haraldur var vélstjóri á því skipi. Árið 1944 hætti hann sjó- mennsku og réðst til Rafveitu Keflavíkur, sem vélgæslumaður. Á þeim tíma var rafmagn hér framleitt með Diesel vélum, hafði svo verið frá stofnun Rafveitunnar 1933. Árið 1945 var Sogsrafmagni hleypt á fyrstu húsin í Keflavík, þá fór Haraldur í rafvirkjanám og lauk Iðnskólanámi 1950. í afmælisriti Rafveitunnar þegar hún varð 50 ára, er þess getið að Haraldur o.fl. hafi unnið að upp- byggingu kerfisins hér með mikl- um ágætum. Thlja má að starfsmenn gömlu rafveitunnar hafi unnið þrekvirki með því að halda hinu úr sér gengna véladrasli gömlu rafveit- unnar gangandi svo lengi sem raun varð á, og lengur en nokkur von var til. Með því forðuðu þeir neyðarástandi í bænum. Haraldur starfaði hjá Rafveitu Keflavíkur til dauðadags eða í 41 ár. Haraldur giftist eftirlifandi eig- inkonu sinni Sigrúnu Ingólfsdótt- ur, 20. des. 1941, ættaðri úr Þing- eyjarsýslu — mikilli sóma- og dugnaðarkonu, sem ávallt var þar sem Haraldur var, enda voru þau sérlega góðir vinir. Heimili þeirra bar þess vitni að samstilling, eindrægni og gagn- kvæm virðing ríkti á heimilinu. Undir harðri brynju leynist oft viðkvæmt hjarta og vissu allir sem Harald þekktu að þannig var Har- aldur. Þau hjón eignuðust þrjú börn: Magnús, skrifstofustjóra, kvænt- an Sigurbjörgu Halldórsdóttur, Ingibjörgu, gifta Hinriki Sigurðs- syni, verkstjóra, og Maríu gifta Sigmundi Ó. Steinarssyni, blaða- manni. Haraldur var tryggur vinur vina sinna. Hann var jafnan hressilegur í máli og hafði alltaf gamanyrði á reiðum höndum. Hið sama má segja um hans ágætu konu og var upplífgandi að koma á heimili þeirra, enda margar ljúfar æsku- minningar mínar tengdar heimili þeirra. Börnum sínum var Haraldur góður faðir og lét sér mjög annt um velferð þeirra. Hygg ég að mikil eindrægni hafi ríkt innan þessarar íjölskyldu. Guð blessi sporin og minning- arnar. Guð blessi ástvini hans og ætt- ingja. Farðu vel, gamli vinur. Hafðu þökk fyrir samfylgdina og tryggðina. Páll Jónsson. BÓKASAFN KEFLAVÍKUR OPIÐ: Mánudaga kl. 15—19 og 20—22, þriöjudaga kl. 15—19, miövikudaga kl. 15—22, fimmtudaga kl. 15—19, föstudaga kl. 15—20. MIKIÐ ÚRVAL ÍSLENSKRA OG ERLENDRA BÓKA. FAXI 13

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.