Faxi - 01.01.1986, Síða 16
Jónas HaUgrímsson
kvað
Á engum stað ég uni
eins vei og þessum mér.
ískaldur Eiríksjökull
veit allt, sem talað er hér.
Pálmi Hannesson skrifar í einni af
bókum sínum að Eiríksjökull sé
eitt fegursta fjall á íslandi. Ég er
sammála Pálma um það, að Ei-
riksjökull er fegurstur þeirra
ijalla, sem ég hefi séð. Snjór var
mikill, þegar fram á heiðina kom,
enda einum snjósþyngsta vetri
nýlokið. Sólin skein glatt og lækir
og lindir streymdu fram. Það var
leysing á öræfunum.
Nú tók að halla að kvöldi, og var
nú stigið á bak reiðskjótunum og
haldið til byggða. Mér fannst
Jarpur eins og liprari í spori á
heimleiðinni, en nú var farin önn-
ur leið. Ég var orðinn syijaður
þegar við lögðum af stað heim á
leið. En þá gerist það að Jarpur
hnýtur í spori um einhverja mis-
hæð í götunni og ég sveif í boga og
lenti utan við götuna í gjótu, sem
var full af vatni. Ekki batnaði líð-
an mín við þetta áfall. Satt að
segja man ég lítið af ferðalaginu
framan af heiði og þangað til
stoppað var. Þá vorum við komnir
að bæ þeim er heitir Fljótstunga í
Hvítársíðu.
Ekki get ég með nokkru móti
munað eftir ferðalaginu, ofan af
heiði og niður að Fljótstungu.
Sennilega hefi ég dottað mestalla
leiðina á bakinu á þeim Jarpa.
Fólk var gengið til náða, og þeir
bræður guðuðu á glugga. Eftir
skamma stund var gengið til
dyra. Það var húsbóndinn sem út
kom, og heilsaði upp á komu-
menn. Þeir bræður orðuðu gist-
ingu og var hún heimil. Ég vildi
gjarnan að ég væri svo ritfær að ég
gæti lýst heimilinu í Fljótstungu,
eins og það kom mér fyrir, þessar
fáu stundir sem ég dvaldi þar.
Húsfreyjan fór á fætur og innan
stundar var kominn heitur matur
á borð. Þegar við vorum að borða
kom þarna maður, nokkuð við
aldur, og heilsaði öllum. Um
morguninn fékk ég að vita að
þetta var fyrrverandi bóndi í
Fljótstungu, faðir bóndans. Hann
hét Jón Pálsson. Mér varð strax
hlýtt til þessa gamla manns. Ég
fann það fijótt að hann vildi hygla
mér. Efalaust hefur hann verið
vinur lítilmagnans.
Eitt atvik man ég vel. Um morg-
uninn, þegar við vorum að kveðja
gestgjafa okkar, heyrði ég barns-
grát og þegar ég lít í Borgfirskar
æfiskrár sé ég, að fyrsta barn
SAMÁBYRGÐ ÍSLANDS
Á FISKISKIPUM
LÁGMÚLA9
SÍMI81400
P.O. BOX 5213
SAMÁBYRGÐIN TEKST Á HENDUR
EFTIRFARANDI:
Slysatryggíngar
Afla- og veiðarfæratryggingar
ábyrgðartrygging útgerðarmanna
og skipshafna
Farangurstrygging fiskiskipa
Endurtrygging fiskiskipa undir 100
smálestum
Skrifstofa Samábyrgðarinnar og eftirtaldir
umboðsmenn vorir veita allar nauðsynlegar
upplysingar varðandi tryggingar þessar og
taka á móti tryggingarbeiðnum:
Vélbátafélagið Grótta, Reykjavík Vélbátatrygging Eyjafjarðar, Akureyri
Bátatrygging Ðreiðafjarðar Skipatrygging Austfjarða, Höfn
Vélbátaábyrgðarfélag ísfirðinga Vélbátatrygging Reykjaness, Keflavík
Trygging skipa yfir 100 smál.
Aldurslagasjóður fiskiskipa
Nýsmíðatryggignar og
ábyrgðartryggingar fyrir
skipasmíðastöðvar
r
STOFNSETT
1909
16 FAXI