Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1986, Blaðsíða 25

Faxi - 01.01.1986, Blaðsíða 25
Skúli Magnússon: Sjóslysaannáll Keflavíknr 11. hhlti Leiðrétting og viðauki 1942 Árekstur v.b. Græðis við tunduspilli í jólablaðinu síðasta slæddist missögn inn í frásögnina um Græð- isslysið. Þar segir, að 2 skipverjar hafi bjargast upp á akkeri tundur- spillisins og verið bjargað þaðan, en 4 hafi bjargast úr sjónum. Hið rétta er, að fjórir björguðust upp á tundurspiHinn, en tveir úr sjónum. (Sbr. fréttir í dagblöðum og Faxa.) í jólablaðinu er frásögnin að öðru leyti rétt, enda stuðst við vitna- leiðslur í sjóprófum. En dagblöð sögðu nánar frá árekstrinum sjálf- um og björgun mannanna. Skipstjóri á Græði var Guð- mundur Guðmundsson, Reykvík- ingur. Hann stóð við stýrið á útleið frá Reykjavik, hina örlagaríku að- faranótt 13. febrúar. Hjá honum í stýrishúsinu var Bjarni Thoraren- sen, háseti. Vélstjórinn var f vélar- húsinu, en fjórir hásetar frammi í lúkar. Skyndilega sáu þeir Bjarni og Guðmundur Ijósglampa fram undan bátnum sem stefndi á þá. Áttaði Guðmundur sig þegar á hættunni og hrópaði fram í til hásetanna i lúk- arnum. Vélamaðurinn varð og var við umganginn í stýrishúsinu, kom upp úr vélarhúsinu, en um leið varð áreksturinn. Allt gerðist þetta á sekúndubroti, með svo snöggum hætti, að mennirnir gerðu sér naumast grein fyrir hvernig þeir björguðust. Guðmundur hrópaði til þeirra, að ná tökum á akkerisfesti tundurspillisins, enda sáu þeir í stýrishúsinu stefni hans framundan sér. Er vélstjóri kom upp úr mótor- húsinu, sá hann, að stefnið var um það bil að rekast inn í stjórnborðs- síðu bátsins framan við stýrishúsið. Án umhugsunar stökk hann út og upp á rá, sem lá frá mastri (senni- lega hinu fremra) að stýrishúsi bátsins. Þaðan komst hann upp á tundurspillinn, annað hvort á vant- inum (vírum sem lágu úr mastri skipsins niður á borðstokk) eða var bjargað af akkeriskeðjunni. Á sama augnabliki komust þrír hásetar upp úr lúkarnum og náðu tökum á akker- iskeðjunni. Einn hásetinn, Lárus Marisson, hefur sennilega ekki Bræðurnir Friörik Karlsson, vélstjóri, til vinstri. (Sjá hrakningar m.b. Ægis i febr. 1942). Til hægri Snorri Sólon Karlsson, bifreiðarstjóri, sem drukknaði í Keflavíkurhöfn í mai 1944. (Sbr. Sjóslysaannál í jólablaði Faxa 1985). { vetur hefur ungur, keflvískur piltur, Falur Harðarson, dvalist vestur í Ameríku við nám. Falur er sonur hjónanna Ragnhildar Árnadóttur og Harðar Falssonar, en fyrir vestan hefur hann dvalist á heimili frænku sinnar Jönu Ólafsdóttur. Faxi hefur fengið þær fréttir af Fal, að honum líki skólavistin vel, ekki hvað síst sú ágæta aðstaða sem þar er til íþróttaiðkana. Sl. sumar lék Falur með skólaliðinu í amerískum fót- bolta, en í vetur hefur hann snúiö sér að sinni uppáhaldsíþrótt — körfuboltanum. Þeir sem fylgst hafa með körfunni hér í Keflavík vita, að Falur er með skemmti- legri leikmönnum í röðum hinna yngri. Hann hefur hlotið marga meistaratitla og hefur verið valinn í úrvalslið hjá KKÍ. Okkur hefur borist í hendur blaðaúrklippa, komist upp úr lúkarnum eða misst tök á keðjunni. Hann drukknaði. Lárus var liðlega sextugur, senni- lega elstur þeirra félaga. Þeir Guðmundur og Bjarni, sem voru í stýrishúsinu, lentu báðir í sjónum, er tundurspillirinn klauf bátinn. Bjarni náði tökum á band- stiga, sem kastað var niður af skip- inu. Hann hékk þar uns honum var bjargað upp í skipið. Guðmundur náði í akkeriskeðjuna, en fékk höf- uðhögg um leið og missti meðvit- und. Er hann rankaði við var hann í kafi, en skaut strax upp. Sá hann björgunarhring á floti skammt frá sér, en náði ekki til hans. Fleiri hringjum var þá kastað til hans og náði hann tökum á einum þeirra. Hélt honum við brjóst sér, þar til honum var bjargað um borð í létt- bát, sem var sjósettur. En er sjólið- arnir voru að draga Guðmund inn í bátinn, missti hann meðvitund á ný. Vaknaði hann upp við það, að verið var að skera utan af honum blaut Falur Harðarson þar sem segir frá því, þegar lið Fals, Camp Hill, vann góðan sigur á andstæðingum sínum, Mechan- icsburg. Við skulum gefa Bob Black, fötin, um borð í tundurspillinum. Guðmundur var a.m.k. hálftíma í sjónum áður en honum var bjargað. Skipverjar fengu hina bestu að- hlynningu um borð i tundurspillin- um. Þeir komu til Reykjavíkur á ní- unda tímanum, að morgni hins 13. febrúar. Græðir var gamalt skip, smíðaður í Assens (í Noregi eða Bretlandi) 1889. Endurbyggður 1939. Vél bátsins var tveggja ára gömul. Nokkrir menn í Keflavík keyptu Græði haustið 1941. Fram að jólum stundaði báturinn fiskitroll frá Reykjavík, en eftir áramót var bátur- inn þar til viðgerðar. Iðnaðarmenn voru þá í verkfalli og eitthvað dróst, að báturinn léti úr höfn. Viðgerð fór þó fram þrátt fyrir verkfallið. Er áreksturinn varð, var Græðir á leið til Keflavíkur, til að stunda veiðar á vetrarvertíð. Þetta var ævintýraleg björgun og sjálfsagt vildu fáir endurtaka hana, við þær aðstæður, sem þarna voru. Oft er stutt á milli lífs og dauða, ekki síst á sjó. Sannaðist hér, sem oftar, ,,að ekki verður feigum forðað né ófeigum í hel komið“. (Fréttir um slysið eru í dagblöðunum 13. til 15. febr. 1942. Hér er einkum stuðst við fréttir í: Alþ.bl. 14. febr. 1942: ,,Slys út af Gróttu. Frásögn skip- stjórans Guðmundar Guðmunds- sonar“. Vísir 13. febr. 1942: ,,Vélbátur sekkur eftir árekstur“. Mbl. 14. febr. 1942: ,,Sex sjómenn bjargast nauðuglega í árekstri undan Gróttu“. í Dagbók Mbl. 15. febr. 1942, er stutt athugasemd frá tveimur iðnaðar- mönnum, sem unnu að viðgerð Græðis í Reykjavík). fréttamanni Patriots News orðið: , ,Það eru aðallega tvær ástæður fyrir ósigri Mechaniceburg (66—49) gegn Camp Hill. í fyrsta lagi var hinn tæplega sjö feta mið- herji, Sean Muto, með hálsbólgu og gat ekki leikið með liðinu. í öðru lagi fékk Camp Hill liðið sér- staklega sterkan leik frá hinum ís- lenska innflutningi sínum, hinum 6 feta junior — Fal Harðarsyni. Fali tókst að hleypa miklum fít- onsanda í lið sitt. Ed Nugent, þjálfari Camp Hill, sagði engan vafa á, að slíkur sigurvilji smitar út frá sér. Falur skoraði 17 stig og tók 10 fráköst. Félagar hans O’Brien og Phillips skoruðu 13 og 12 stig. Faxi sendir bestu kveðjur til Fals og félaga hans með óskurn um áframhaldandi gott gengi. H.H. GOÐ FRAMMISTAÐA Fals Harðarsonar í Bandaríkjunum FAXI 25

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.