Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1986, Síða 28

Faxi - 01.01.1986, Síða 28
RÆKJUVEIÐI er mikið stunduð og heimild til þeirra veiða er eftirsótt — eins og raunar allra veiða á kvótaöld. Síðastliðið veiðitímabil var 21 bátur úr verstöðvum Skagans á þessum veiðiskap. Það voru bátar frá 12 til 38 tonna að stærð. Úthlutaður kvóti var ýmist 50 eða 100 tonn á bát. Ekki var ljóst, þegar F'axi fór í prent- un, hvemig aflaskiptingin verður í ár. PRÓFKJÖR HJÁ SJÁLF- STÆÐISMÖNNUM í KEFLAVÍK Prófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum í Keflavík vegna væntanlegra bæjar- stjómarkosninga var haldið dagana 18. 19. og20. jan. sl.. Frambjóðendur vom alls 14, þar af 3 konur. Atkvæði greiddu 772. Helstu úrslit urðu þessi: 1. Ingólfur Falsson samt. 481 atkv. (þar af 255 í 1. sæti). 2. Garðar Oddgeirsson samt. 516 atkv. (þar af 281 í 1. og 2. sæti). 3. Jónína Guðmundsdóttir samt. 584 atkv. (þar af 375 í 1—3. sæti). 4. Kristinn Guðmundsson samt. 469 atkv. (þar af 345 í 1—4 sæti). 5. Stella Baldvinsdóttir samt. 385 atkv. (þar af 337 í 1—5. sæti). Aðrir frambjóðendur fengu færri at- kvæði, en kosningin fyrir ofantalda fimm frambjóðendur er bindandi. Alþýðuílokkurinn mun viðhafa prófkjör 22.-23. febrúar a.m.k. 10-12 frambjóðendur munu taka þátt í því. Alþýðubandalagið hefur ákveðið sinn framboðslista til bæjarstjómar- kosninganna, en fyrstu fimm sætin skipa 1. Jóhann Geirdal 2. Jóhann Bjömsson 3. Alma Vestmann 4. Bjargey Einarsdóttir 5. Alda Jensdóttir. • Frá Framsóknarflokknum hefur ekki fréttst, en ekki er talið að þar verði viðhaft prófkjör. • GISTIHEIMILI AÐ VATNS- NESVEGI 12 Jón William Magnússon einn aðal eigandi Ofnasmiðju Suðumesja hf. hefur hafið byggingu Gistiheimilis að Vatnsnesveg 12. Gistiheimilið verður á þremur hæðum, á tveim neðri hæðunum verða 22 eins manns her- bergi með baði, en á efstu hæðinni verða flmm litlar íbúðir. Stefht er að því að húsið verði fokhelt 1. apríl nk. PÓSTUR OG SÍMI í FRAMTÍÐAR HÚSNÆÐI Á fundi byggingarnefndar Keflavíkur 15. jan. sl. var samþykkt að veita Pósti og síma lóð við Hafnargötu á móti nr. 86 og 88 (Hafnargötu 89). Verður hér um stóra og myndarlega byggingu að ræða sem á að þjóna afgreiðslu sam- eiginlega fyrir Keflavík og Njarðvík. Er staðsetningin meðal annars höfð með það í huga. Einnig er á þessu svæði mikill þjónustukjarni. Bygging þessi verður eins og fyrr segir af- greiðslubygging fyrir stofnunina en eftir sem áður mun gamla símstöðin þjóna sínu hlutverki með tækjabúnað símstöðvarinnar, en 50 ár eru síðan símstöðvarhúsið var tekið í notkun með síðari tíma breytingum og viðbót- um. Með tilkomu þessarar byggingar munu leysast hin miklu bflastæðis- vandamál sem eru við núverandi af- greiðslu að Hafnargötu 40. NÝR VATNSTANKUR Nýr vatnstankur var tekin í notkun í Keflavík í nóvember sl. er hann stað- settur vestan Eyjabyggðar, og kemur í stað tanks sem settur var upp í Eyja- gosinu 1973 og átti að vera til bráða- byrgða. Nýi vatnstankurinn tekur 800 m3 af vatni og stendur hann á níu metra súlum. Boraðar hafa verið þrjár Fimm ættliðir - tvíburafæðing Að aftan frá vinstri: Þorgerður Þorbjömsdóttir, Magnea Friðriksdóttir, amman Guðríður Hauksdóttir heldur á Hrafnhildi og móðirin Gerður Gunnlaugsdóttir heldur á Brynhildi. Faðirinn er Tyrfmgur Andrésson sjómaður og búa þau hjónin að Heiðarhvammi 5 í Keflavík. Mynd: Studio Heirnis holur og tvær þeirra eru nú þegar virkjaðar. í einhverju af næstu blöð- um Faxa mun birtast grein eftir Vil- hjálm Grímsson tæknifræðing Kefla- víkurbæjar um vatnsöflun og vatns- tanka í Keflavík frá upphafi. • HAFA SKAL ÞAÐ SEM RÉTTARA REYNIST í síðasta blaði er sú prentvilla, í grein Einars Kr. Einarssonar, að kirkjan í Grindavík hafi verið vígð 21. septem- ber 1982. Hið rétta er að hún var vígð 26. september 1982. í sama málefnaflokki henti það, í myndatexta, að Borgar Jónsson safhaðarfulltrúi Kirkjuvogssóknar í Höfnum, var ranglega nefndur Sævar Ámason. En Borgar afhenti séra Jóni Arna Sigurðssyni og frú Jónu Sigur- jónsdóttur, forláta gullúr fyrir hönd sóknarbama séra Jóns f Grindavík og Höfnum í veglegri kveðjuathöfn sem fram fór í Festi í Grindavík 27. októ- ber síðast liðinn. Yfirlit yfir byggingarfram- kvæmdir í Keflavík á árinu 1985 Lokið var smíði 25 húsa með 96 íbúð- um samtals að stærð 9.812 m2 31.112 m3. í smíðum 1. jan. 1986 voru 58 hús með 122 íbúðum samtals 14.460 m2 46.968 m3. IÐNAÐAR- OG VERSLUNARHÚS Ixtkið var smíði 9 húsa samtals 3.015 m2, 12.342m’ísmíðum l.jan. 198644 hús samtals 22.240 m2 88.708 m3. BÍLGE YMSLU R Lokið var smíði á 33 skúrum samtals 1.032 m2 3.570 m3. í smíðum 1. jan. 1986 44 skúrar samtals 1.844 m2 5.875 m3. GARÐSTOFUR Á árinu var byrjað á 15 garðstofum 354 m2 912 m3. Á árinu var lokið smíði á 6 garðstofum 138 m2 358 m3. ENNFREMUR VORU í SMÍÐUM EFTIRTALIN HÚS: Lokið á árinu. Hringbraut 130, fé- lagsheimili 170,2 m2 683,0 m3. Hring- braut 125, slökkvistöð, viðb. 254,4 m2 1.259,3 m3. Eyjavellir 15, vatnstankur 800,0 m3. Heiðarból 47A, leikvalla- gæsluhús 63,0 m2 198,5 m3. 1 smíðum í árslok. Austurgata 13, tónlistarskóli 136,8 m2 470,0 m3. Hafnargata 57, hótel- og skrifstofuh. 8.180,6 m2 23.231,3 m3. Sunnubraut 31, sundmiðstöð 1. áfangi 1.044,0 m2 3.996,0 m3. Tjarnargata 12, sparisjóö- ur 3.296,1 m2 12.676,1 m’. Vestur- braut 17, karlakór 1.049,8 m2 3.812,3 m’. Samtals. 13.707,3 m2 44.185,7 m’. NIÐURRIF Á árinu voru 18 fasteignir Ijarlægðar þ.e. geymslur, bílskúrar, íbúöarhús o.ll. samtals að stærð 1.240 m2 3.423 m3. Auk þess byggingar að Hafnargötu 57-59 að stærð 1.913 m2 8.556 m’, vegna byggingar á hóteli. 28 FAXI

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.