Faxi - 01.02.1986, Blaðsíða 24
Frá sýningu Kmbbcimeinsfélags Suðumesja. Auk mynda barnanna er
tóku þátt ísamkeppninni var mikið af frœðslumyndum og öðrum uplýs-
ingum varðandi krabbameinsvarnig og neðst til vinstri er hið nýja hús og
heimili Krahbameinsfélags íslands.
Ljósm. J.T.
Athyglisverð sýning
— api með sígarettu —
í vetur var sett upp fræðslusýning á Kjarvalsstöðum um helstu
áhættuþætti krabbameins — sjúkdómsgreiningu og hugsanlega
lækningu. Áður hafði farið fram samkeppni í grunnskólum lands-
ins hjá börnum 9 til 12 ára, um hugmyndir þeirra að orsökum
krabbameins, settar fram á myndmáli. Mikill fjöldi mynda barst
í samkeppnina og voru margar þeirra settar upp á Kjarvalsstöðum.
Sýningin fékk góða dóma og var gerð úr henni farandsýning, sem
síðan hefur verið farið með víða um land.
Krabbameinsfélag Suðurnesja fékk hana til Keflavíkur og var
hún sett upp í Holtaskóla. Hún var opin frá 12. til 15. febrúar og
sóttu hana um 350 manns.
Það vakti athygli sýningargesta að reykingar voru efstar í hugum
flestra barnanna svo og alls konar mengun og kjarnorka. Margar
myndirnar voru vel gerðar, hugmyndaríkar og táknrænar, t.d.
myndin af apa að reykja sígarettu. Það tákn held ég að margir muni
lengi muna.
Hugmyndin með myndtúlkun barnanna var að ýmsu leyti snjöll,
opnaði ímyndunaraflinu ótal leiðir, hvatti til íhugunar um skað-
semi tóbaksnotkunar og annarra vímuefna og tii skiinings á um-
hverfismálum.
J.T.
Stjórn Krabhameinsfélags Suðurnesja. Frá vinstri: Björgvin Lúthersson,
Jón Sœmundsson, formaður, Margeir Jónsson ogAndres Fcvrseth. Kon-
rdð Lúðvíksson var ekki viðstaddur.
ALHLIÐA ÁHUGI
Blaðasölukóngar og drottning-
ar Faxa hafa mörg börn orðið á
45 ára ferli blaðsins. Sumra
þeirra hefur verið getið í blaðinu
en þó ekki nærri allra. Það var
einu sinni miðað við að barnið
seldi a.m.k. 100 blöð í götusölu.
í seinni tíð er slíkur fjöldi barna
við söluna að erfitt er að ná
þeirri tölu og fá börn sem fá svo
mörg blöð — aðeins þau dugleg-
ustu.
Gísli Einarsson, Lágmóa 6 í
Njarðvík hefur oft orðið sölu-
kóngur, t.d. seldi hann 117 jóla-
blöð og fékk fyrir það kr.
2925.—. Þegar ég skilaði blaðinu
til hans í desember leit ég inn í
lítið einkaherbergi hans. Það var
mjög snyrtilegt og vel búið hús-
gögnum og áhugaverðum hlut-
um s.s. sjónvarpi. Þá sagði móð-
ir hans mér aö hann hefði sjálfur
keypt alla þessa muni og hús-
gögn fyrir fé er hann hefur aflað
sér fyrst og fremst með blaðsölu
og dreifingu á Morgunblaöinu.
Það er til mikils sóma þegar
börn og unglingar fara vel og
skipulega með það fé sem þau
afla.
Gísli, sem nú er 13 ára, er
áhugamaður um fleira en blað-
sölu og búnað í herbergi sitt.
Hann er mikill áhugamaður um
íþróttir, stundar handbolta, hef-
ur verðlaunapeninga fyrir
keppni í fótbolta og körfubolta,
hefur einu sinni keppt í sundi og
fékk þá silfurverðlaun.
Og nú hefur skákáhuginn
gripið hann sterkum tökum —
enda er hann vel liðtækur í
þeirri grein.
Það er greinilega góður efni-
viður í drengjum, sem hafa slik-
an eldmóð og það verður gaman
að fylgjast með hvernig Gísla
tekst að vinna úr sínum mörgu
áhugaefnum.
J.T.
Slysfarir árið 1868
29. ágúst árið 1868 lá í Keflavíkurhöfn skipið Cathinka, eign
Duus kaupmanns, 211 'A lest að stærð. Skipstjóri var Larsen. Var
skipið búið að fá í sig fulifermi af fiski, iýsi og ull. Átti skipið að
leggja af stað tii Kaupmannahafnar að 1—2 dögum liðnum. Um
morguninn var fremur hvass landsynningur, en er kom fram undir
hádegi tók hann að rjúka á austan. Slitnaði þá önnur ankerisfesti
skipsins og skömmu síðar hin. Mátti heita að skipið væri á svip-
stundu komið upp í klettana, niður undan húsum eigandans og
mun eigi hafa skipt meir en ljórðungi stundar frá því að ankeris-
festin brast þangað til skipið var mölbrotið. Var farmurinn hins
vegar um ströndina, en skipverjar allir, fimm að tölu, drukknuðu.
Sama dag sleit upp fiskijagt Njarðvfkurman na, Ásbjöms hrepp-
stjóra Olafssonar o.fl., þar á víkinni og brotnaði í spón. Hún var
mannlaus.
Heimildir: Annálar
N. Ben.