Faxi - 01.04.1989, Qupperneq 3
V I Ð
VERTÍÐAR
L O K
Aflabrögð á liðinni vertíð voru
þokkalega góð eftir að heldur brá til
betri tíðar eftir risjótt tíðarfar í janú-
ar og febrúar. Helstu niðurstöður
varðandi heildarafla í Keflavík,
Grindavík og Sandgerði fara hér á
eftir samkvæmt upplýsingum frá
hafnarvogunum.
Keflavík: Heildarafli báta til 15.
maí var 8118 tonn og togara til apríl-
loka 1830 tonn. Aflahæsti báturinn
var Happasæll KE 94, skipstjóri
Guðmundur Rúnar Hallgrímsson,
með 848 tonn. Næstu bátar eru Búr-
fell KE 140 með 704 tonn og Stafnes
KE 130 með 685 tonn og að auki ein-
hvem afla sem landað var annars
staðar. í þessu sambandi má geta
þess að Stafnesið hætti á netum um
miðjan mars og hafði þá aflað 550
tonn. Síðan hefur báturinn verið á
dragnótaveiðum og fryst kolann um
borð.
Albert KE 39 er hæstur þeirra
báta sem vom á línu alla veríðina.
Afli hans var 517 tonn.
1 vetur, annaö árið í röð, gekk fisk-
ur allt inn undir Vogastapa. Sem
endranær á þeirri slóð var um væn-
an þorsk að ræða, og fengu trillur og
minni bátar þarna hlaðafla um
tíma.
Hxlnuaíli á vertíðinni var 7441
tonn.
í Grindavík var afli vertíðarbát-
anna til 1. júní 16256 tonn í 2316
löndunum. f>ar af var þorskur
10400 tonn. Á sama tíma í fyrra var
heildaraflinn 13420 tonn í 2813
löndunum og þar af þorskur 8207
tonn.
Samkvæmt þessu er meðallöndun
f ár 7 tonn á móti 4,7 tonnum í fyrra.
Aflahæstir Grindavíkurbáta eru:
Vörður ÞH með 1106 tonn, skip-
stjóri Jón Ragnarsson. Gaukur GK
1044 tonn, Höfrungur II GK 1006
tonn og Hafberg Gk með 988 tonn
og jafnframt með mesta aflaverð-
mæti Grindavíkurbáta á vetrarver-
tíð 1989.
Eins og fram kemur í þessu yfirliti
er meðalafli í veiðiferð mun betri en
í fyrra, þannig að hljóðið í Grind-
víkingum nú er mun betra en und-
anfamar aflaleysisvertíðir. Sá ljóður
var þó á gjöf Njarðar að alla jafnan
var langsótt eða allt suður á þau
mið, sem þeir kalla ,,Kant“. En
netaróður á þá fiskislóð tekur gjam-
an um 30 tíma.
í Sandgerdi var heildarafli vertíðar-
bátanna til 15. maí 14207 tonn í
3523 sjóferðum. En alls em 147 bát-
ar, sem lagt hafa afla á land í Sand-
gerði í vetur og hafa þeir aldrei verið
fleiri. Heildaraflinn í fyrra var 11415
tonn í 2940 róðmm.
Aflahæstir em Sæborg RE 20 með
998 tonn, þar af landað í Sandgerði
694 tonnum. Skipstjóri á Sæborgu
er Grétar M. Jónsson. Næsti bátur
var Amey KE 50, skipstjóri Óskar
Þórhallsson, með 798 tonn og Barð-
inn GK 375 með 739 tonn, þar af
landaði heima 427 tonnum.
í Sandgerði eins og annars staðar
setur kvótaskortur strik í reikning-
inn. Þannig urðu bæði Amey KE 50
og Hólmsteinn KE 20 að hætta
þorskveiðum þegar um miðjan
mars og síðan hafa fleiri og fleiri
fylgt á eftir. Alls var landað 11893
tonnum af loðnu, en mjög bagalegt
er hvað dýpkun innsiglingarinnar
miðar hægt.
Inni í Sandgerðishöfn hefur að-
staða smábáta batnað til muna,
enda fjölgar þeim jafnt og þétt. í vet-
ur var þar komið fyrir fyrsta vísi að
flotbryggju með útleggjumm. Með
þeirri framkvæmd hafa Sandgerð-
ingar tekið forustu í þessu efni hér
á Suðumesjum.
í Vogum á Vatnsleysuströnd hefur
í vetur verið unnið við gerð innri
hafnargarðs. Suðurverk hf. hefur
verið verktaki við þær framkvæmd-
ir. Að vanda stendur nú hrognkelsa-
vertíð Strandaringa sem hæst og
gróska er þar í annarri smábátaút-
gerð í kjölfar bættra viðlegu og lönd-
unarskilyrða.
Úr Höfnum eru þær fréttir af
hafharmálum að 50 metrar af hafn-
argarðinum hafa verið styrktir með
því að setja þar utan á stórgrýti. Er
þar um mjög brýna aðgerð að ræða
og vonandi tekst að ljúka við að setja
utan á allan garðinn hið bráðasta.
En trúlega er áfanginn sem eftir er
áþekkur þeim sem kom í vetur.
K.A.J.
Auglýsing til sjóðfélaga
Lífeyrissjóöur Suöurnesja hefur sent frá sér yfirlit til þeirra
sjóöfélaga sem greiddu iögjöld til sjóösins á árinu 1988. Þeir
sjóðfélagar sem telja sig hafa greitt iögjald til sjóösins áriö
1988 en hafa ekki fengið sent yfirlit, eru beðnir aö hafa
samband við viökomandi fyrirtæki eöa Lífeyrissjóösdeild
Sparisjóðsins í Keflavík, Suðurgötu 7, sími 15800.
Lífeyrissjóður Suðurnesja
Suöurgötu 7 — Keflavík
FAXI 119