Faxi

Árgangur

Faxi - 01.04.1989, Blaðsíða 16

Faxi - 01.04.1989, Blaðsíða 16
hygliverð fjölgunin á tímabilinu 1949-59. Þess ber að geta, að 1979 flyst 6. bekkur í Gagnfræðaskólann (Holtaskóla). Mestur hefur nem- endafjöldi skólans verið árið 1973 alls 1060 nemendur, en þá komu bæði 6 ára böm í skólann í fyrsta skipti og einnig bættust við nem- endur frá Vestmannaeyjum í kjölfar eldgossins á Heimaey. Var þá æði þröngt á þingi. Með fræðslulögunum frá 1907 varð skólaganga í fyrsta sinn gerð að skyldu hér á landi. Skyldu öll böm á aldrinum 10-14 ára hljóta fræðslu og átti ríkið að standa að mestu leyti undir kostnaði við rekstur og upp- byggingu skóla. 1936erskólaskyld- an aukin og hefst eftir það við sjö ára aldur. Ný grunnskólalög vom sam- þykkt 1974 og skyldi þá í áföngum auka skólaskylduna til 16 ára ald- urs og er sú skipan nú á komin. Þróun skólastarfsins Samhliða lengingu skólaskyld- unnar hafa sífellt átt sér stað breyt- ingar í sjálfu skólastarfinu. Nám- skrár hafa verið í stöðugri endumýj- Hermann Eiríksson. Hann höfkennslu cír/ð 1941 og vard sfdan skölastjórí árid 1946. Samtals var hann skólastjórí f 28 ár. Einnig var hunn skólastjóri Iðnskóla Keflavfkur. un, nýjar kennsluaðferðir sjá dags- ins ljós og skipulag kennslunnar hefur tekið miklum framfömm. Nýjar námsgreinar hafa litið dags- ins ljós og aukagreinamar sem svo vom nefndar, þ.e. handavinna, teikning, tónmennt, íþróttir og ann- að félagsstarf tekur til sín meiri tíma en áður. Þá bjóða skólar nú uppá sálfræðiþjónustu, stuðnings- kennslu og sérdeildir fyrir þá nem- endur sem hið almenna kennslu- form hentar ekki. Þá hafa bókasöfn skólanna tekið stakkaskiptum, bæði hefur bókakostur aukist og einnig starfa oftast við þau sér- menntað fólk. Öll þessi aukning skapar þörf fyrir sérhæfðara og stærra húsnæði. Skólahúsnæði er því í sífelldri uppbyggingu. Hér á eftir verður í stuttu máli lýst þróun byggingamála hjá Bamaskóla Keflavíkur. Byggingasaga Myllubakkaskóla Eins og áður hefur komið fram, þá fór kennsla fram á ýmsum stöðum á fyrstu ámnum. Það er fyrst árið 1897 að keypt var íbúðarhús að ís- hússtíg 3 og þar hafði skólinn aðset- ur fram til ársins 1911 að tekið var í notkun nýtt skólahús við Skólaveg. Gamla skólahúsið við Skólaveg var byggt árið 1911. Það hús hefur á þeim tíma verið byggt af stórhug og myndarskap og er það trúlega með elstu steinsteyptu skólabyggingum landsins. Þá vom íbúar Keflavíkur SKÓLAR Á SUÐUR- NESJUM um 300 og skólaskyld böm á aldr- inum 10-14 ára um 40 talsins. Segja má, að ,,gamli skólinn“ hafi þjónað húsnæðisþörf fyrir skóla- hald hér í um 30 ár, en það var á fundi skólanefndar 15. október 1941 sem fyrst komu fram raddir um það opinberlega, að þörf væri fyrir nýjan skóla. Árið 1942 var fyrst farið að þrísetja í sumar kennslustofumar. Þá vom böm á skólaskyldualdri (7-14 ára) nálægt 200 talsins. Árið 1947 var tekið á leigu húsnæði í Verkalýðshúsinu og 1949 í Sjálfstæðishúsinu. Aðstaða til íþróttakennslu var alla tíð mjög slæm. Leikfimikennsla fór fram í Ungmennafélagshúsinu allt frá árinu 1940 og þar til íþróttahús bamaskólans var tekið í notkun árið 1958. Áður var leikfimi kennd í gamla skólanum og þá ýmist á skólagangi eða í skólastofu. Aðstaða til sundkennslu var aftur á móti sæmileg frá þvi Sundlaug Keflavík- ur var vígð árið 1939 og ágæt eftir að byggt var yfir laugina árið 1951. Aft- ur á móti hefur hvergi nærri verið hægt að halda uppi lögboðinni sundkennslu hér síðustu áratugina, Ciamli skólinn við Skólaveg. Þessi mynd er tekin eftirað húsið var lugfœrt árið 1952. 132 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.