Faxi

Árgangur

Faxi - 01.04.1989, Blaðsíða 14

Faxi - 01.04.1989, Blaðsíða 14
4. tölublað 49. árgangur Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavik. Afgreiðsla: Hafnargötu 79, sími 11114. Blaðstjórn: Helgi Hólm, ritstjóri, Kristján A. Jónsson, aöst.ritstj., Guðfinnur Sigurvinsson, Hilmar Pétursson og Birgir Guðnason. Hönnun, setning og umbrot: Leturval sf. Filmu- og plötugerö: Myndróf. Prentun: Prentstofa G. Benediktssonar. Gleðilega þjóðhátíð Faxi óskar öllum lesendum sínum til hamingju á þjóðhá- txðardaginn 17. júní. íslendingar hafa fagnað þjóðhátíðardegi sínum- 17. júní- í hartnær hálfa öld. 17. júní var valinn sökum þess, að hinn ástsæli Jón Sigurðsson var fæddur þennan dag. Jón forseti eins og hann var nefndur var ötull baráttumaður fyrir sjálf- stæði Islendinga og átti hvað stærstan þátt í því að gera þá hugsjón að veruleika. En hann stóð ekki einn í þeirri baráttu og því er það skylda okkar á þjóðhátíðardaginn að minnast þeirra mörgu sem ruddu brautina. Blessuð sé minning þeirra. Þess ber einnig að minnast á þessum degi, að baráttunni fyrir sjálfstæði þjóðar lýkur aldrei. Hver nýr dagur færir með sér verkefni að vinna að. Sjálfstæði og frelsi er ekki fullkom- ið nema allir þegnar þjóðfélagsins njóti þess. Baráttan fyrir frelsi og sjálfstæði einstaklingsins birtist í ýmsum myndum og er það næsta víst, að margir gera sér ekki grein fyrir því, hvað sú barátta getur verið hörð. I landi allsnægtanna eru margir sem eiga um sárt að binda. í dag ber einna hæst bar- átta okkar á sviði efnahagsmála. Með samstilltu átaki má sjálfsagt ná viðunandi tökum á þeim. Öllu verr erum við stödd gagnvart vaxandi neyslu eitur- og vímuefnagjafa. í kjölfar vímuefha fylgir slóð afbrota og ofbeldis sem bitna oftast á þeim er síst skyldi. Óþarfi er að fára mörgum orðum um afleiðingar mikillar áfengisneyslu. Hér er sannarlega þörf aukinnar baráttu gegn þessum vágestum. Getum við kallað okkur sjálfstæða þjóð á meðan óhófleg neysla vímu- efna ræður svo ríkjum sem raun ber vitni. Heimsókn Jóhannesar Páls páfa II. Við höfum nú upplifað einstakan atburð er Jóhannes Páll 11., heim- sótti ísland fyrir nokkrum dögum. Páfinn er æðsti trúarleiðtogi um 800 milljóna manna um víða veröld og sem slikur hefur hann ákaflega mikil áhrif. Páfinn hélt margar ræður á meðan á dvöl hans stóð. Athygli vakti áhugi hans á íslenskri sögu og kom berlega í ljós að hann ber mikla virðingu fyrir þjóðinni, bæði þeim sem gengnir eru og þeim sem nú búa landið. Er ekki hægt annað að segja að okkur hafi verið mikill heiður gerður með heimsókn hans hingað. Er þess að vænta, að í kjölfarið fylgi aukinn skilningur milli þeirra trúarfélaga sem á Islandi eru. H.H. Hilmar Jónsson: * Oskar Aðalsteinn, rithöfundur sjötugur Ávarp flutt í Stapa 1. maí s.l. Ég vil þakka verkalýðshreyfingunni á Suðumesjum þá vinsemd og þann menningarhug, sem fram kemur í því að ljá rithöfundinum Óskari Aðalsteini rúm í dagskrá á baráttudegi samtakanna sem jafn- framt er sjötugs afmæli hans. Með því er verið að heiðra rithöfund, sem tvítugur að aldri hóf ritstörf og strax í annarri bók sinni, Grjót og gróðri, gerði kjör verkamanna að sínu verkefni. Athyglisvert er við þá bók, hve aðalsöguhetjan Þorlákur er dreginn sterkum litum ekki sem boðberi sérstakra kenninga heldur sem maður sem berst fyrir frum- þörfum sinna nánustu við hinar erfiðustu kringumstæður. Að mörgu leyti minnir Gijót og gróður, á frægan ljóðabálk, Þorpið, eftir annan Vestfirðing, Jón úr Vör. Æ síðan hefur Óskar skrifað þorpsbækur: Li/sorrustu-raunsanna lýsingu á örlögum einstaklings sem missir atvinnu sína vegna pólitískra hrossakaupa -, Kosningatöfra í gaman- samari tón um atkvæðaveiðar stjómmálamanna ellegar ástarsögur: Húsið ihvamminum ogBreyskar ástir. í síðustu bókum Óskars eins og í röstinni og Fyriburðum á skálmöld, kveður et til vill við þyngri örlagatón. En í öllum bókum hans er þorpið, sjómaðurinn og útgerðin upphaf og endir mannlífs. Og með leyfi að spyrja: Hvar væri þessi eyja út í reginhafi, ef ekki væri til fólk, sem ynni við frumatvinnuvegi þjóðar- innar og sækti lífsbjörg sína úr sjónum? 1977 fluttist Óskar frá Vestfjörðum hingað á Suðumes og hefur ásamt konu sinni Hönnu, búið á Reykjanesvita, þar sem hún er nú vitavörður. 130 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.