Faxi - 01.04.1989, Blaðsíða 36
Fréttir af
Sjómannadegi 1989
Það var bjart yfir en nokkuð kalt,
þegar hátíðarhöld fóru fram í Kefla-
vík. Það var Svavar Óskarsson, vara-
formaður Vélstjórafélags Suðumesja
sem flutti hátíðarræðu og kom hann
víða við. Velti hann því m.a. fyrir sér,
að þrátt fyrir gjöfula vertíð, þá stæði
útgerðin og fiskvinnslan höllum fæti.
Orsakir þess væri m.'a. mikill fjár-
magnskostnaður og sala kvóta og
fiskiskipa.
Ekki hefur fallið niður sú venja að
heiðra eldri sjómenn og vom að þessu
sinni eftirtaldir menn tilkallaðir:
Magnús Bergmann skipstjóri frá
Fuglavík í Miðneshreppi, Sigurður
Hallmannsson, vélstjóri úr Garði og
Ámi Gunnar Sveinsson, einnig úr
GarSi. Að þessu sinni var fallið frá
þeim sið að heiðra aflakónga, því með
tilkomu kvótakerfisins gilda allt önn-
Sjómenn heidraðir. Ámi Gunnar Sveinsson, Sigurdur Hallmannsson og Magnús
Bergmann.
ur lögmál við fiskveiðar en áður
þekktust. Væri nú athugandi að
heiðra þá í framtíðinni sem koma með
hlutfallslega verðmætastan afla að
landi.
Veitt vom sérstök björgunarverð-
laun og komu þau í hlut Odds Sæ-
mundssonar og skipshafnar hans á
Stafnesinu fyrir að bjarga Pétri Stein-
þórssyni, er hann féll fyrir borð á
Agústi Guðmundssyni GK í janúar
s.l.
Margt var til skemmtunar gert. Far-
ið var í siglingu með bömin og for-
eldra þeirra yngstu. Var m.a. siglt að
hinnu nýju höfn í Helguvík. Var þessi
sigling mikil upplifun fyrir mörg
bömin. Mesta athygli vakti sýning
björgunarsveitanna í Keflavík og
Njarðvík. Með aðstoð þyrlu frá Land-
helgisgæslunni var sýnd mannbjörg-
un úr björgunarbát og úr sjó. Var unun
að sjá hvemig þyrlan var notuð í þess-
um tilgangi og komu upp í hugann frá-
sagnir af ýmsum björgunarafrekum,
bæði björgunarsveitamanna og
áhafna þyrlunnar. Kappróðurinn var
varla nema svipur að sjón, því aðeins
kepptu nú tvær sveitir og liggja víst
litlar æfingar að baki þeim róðri. Er
samt alltaf gaman að fylgjast með
þessum hefðbundu atriðum. Furðu
margir lögðu leið sína á hátíðarsvæðið
við Keflavíkurhöfn og sýnir það að
sjómennskan á þrátt fyrir allt enn sín-
ar rætur í hugum bæjarbúa.
152 FAXI