Faxi

Árgangur

Faxi - 01.04.1989, Blaðsíða 7

Faxi - 01.04.1989, Blaðsíða 7
komin í Reykjavík en annars staðar vegna þess ekki síst að mun hærra hlutfalli af sköttum var skilaö til Gjaldheimtunnar í Reykjavík en gert var ráð fyrir fyrirfram eða u.þ.b. 60% af öllum staðgreiðslu- skatti sem skilað er á landinu. Þetta stafar af því hve rfkiö sjálft er stör launagreiðandi svo og önnur stór- fyrirtæki sem hafa höfuðstöðvar í Reykjavík en starfsemi um allt land. Svo sem áður sagði var starfsemi Gjaldheimtu Suðumesja fyrst einskorðuð við innheimtu stað- greiðsluskattsins en þegar leið á ár- iö hafa stofnuninni verið að bætast önnur innheimtuverkefni fyrir ríkissjóð og sveitarfélögin. Við álagningu aöstöðugjalds á haust- dögum fólu Njarðvík og Miðnes- hreppur henni innheimtu eftir- stöðva þess, þ.e.a.s. að frádregnu því sem gjaldendur höfðu greitt í formi fyrirframgreiðsluskyldu. Um síðustu áramót bættust síðan við öll eldri sveitarsjóðsgjöld fyrir sveitar- félögin að undanskildum Hafna- hreppi og Keflavík sem kusu að annast sjálf hreinsunaraðgeröir vegna eldri vanskila. Þá fólu Kefla- vík, Njarðvik, Garður og Hafnir Gjaldheimtunni innheimtu fast- eignagjalda á þessu ári og Njarðvík og Garður auk þess innheimtu eldri vanskila vegna fasteignagjalda. Ríkissjóður fól Gjaldheimtunni inn- heimtu fyrirframgreiðsluskyldu þinggjalda utan staðgreiðslu, en þar er um að ræða alls 12 tegundir skatta og gjalda á einstaklinga og fyrirtæki til ríkissjóðs auk kirkju- garðsgjalda sem rennur til rekstrar kirkjugarða eins og nafnið bendir til. Allt bendir til að fjárhæð álagn- inar þessara skatta og gjalda venM yfir milljarð króna á þessu ári og þegar staðgreiösluskatturinn bætist við er ljóst að innheimtuverkefni Gjaldheimtu Suðumesja fyrir eig- endur sína verða á þriðja milljarð kmna í ár sem þýöir aö í mánuði hverjum renna að meðaltali 170 til 180 milljónir króna í gegn um þessa stofnun. Til að sinna þessum verk- efnum starfa í dag við stofnunina fimm manns að gjaldheimtustjóra meðtöldum en stjóm hefur nú gefið heimild sína til ráðningar þess sjötta. Starfsheiti hans verður skrif- stofustjóri. Hann mun verða stað- gengill gjaldheimtustjóra og sinna eins og starfsheitið bendir til dag- •egri stjómun skrifstofunnar, stjómun bókhalds, uppgjöri við eig- endur sem fer fram daglega eða því sem næst og samskiptum við þá ásamt innheimtuverkefnum. Þetta starf hefur veriö auglýst laust til umsóknar og er frestur til aö sækja um þaö liöinn. Alls bárust 17 umsóknir og er stjórnin nú að Qalla um þær. Rekstur Gjaldheimtunnar gekk mjög vel á þessu fyrsta rekstrarári. Stofnkostnaður hennar var innan viö fjórar milljnónir króna en af honum voru kaup á húsgögnum og tölvubúnaði um 2,3 milljónir króna. Fest voru kaup á Ericson tölvubúnaöi og Victor pc tölvum. Rekstrarkostnaöur að frádregnum stofnkostnaði var um 7,5 milljónir króna en þar af vom laun og launa- tengd gjöld 4,8 milljónir króna eða um 64% kostnaöar. Nokkuð hefur veriö reynt aö meta rekstur inn- heimtustofnana sem þessarar og er almennt talið að ef rekstur þeirra kosti ekki meira en 1% af þeim fjár- munum sem þeim er falið að inn- heimta þá sé rekstrarárgangur við- unandi. Gjaldheimta Suðumesja inn- heimti alls á síðasta ári liölega einn milljarð tvö hundmð og fimmtíu milljónir króna og kostnaöurinn er því 0,6% af innheimtu fé. Rekstar- kostnaður að frádregnum vaxta- tekjum og innheimtulaunum var tæplega 5,4 milljónir króna og skiptist þannig að ríkissjóður bar 54,42% en sveitarfélögin restina eða 45,58%, sem eru rúmlega 2,4 millj- ónir króna. Stofnunin innheimti fyrir sveitarfélögin um 570 milljónir króna og kostnaður þeirra við þessa innheimtu var því aðeins 0,39%. Svo dæmi sé tekið af Njaróvík var þessi kostnaður um 423 þúsund krónur sem er líklega nálægt kostn- aði við rekstur á 1 /3 úr meðalstööu- gildi sem Njaróvik hefði haft af þessari innheimtu. Ég tel því engan vafa leika á að fyrir sveitarfélögin er rekstur þessarar sameiginlegu inn- heimtustofnunar ákaflega hag- kvæmur og ef okkur tekst aö ná þeim innheimtuárangri sem ég tel aö þessi stofnun hafi alla burói til þá mun hún lækka verulega reksturs- kostnað sveitarfélaganna og þar með auka getu þeirra til verklegra framkvæmda. Hinn 8. desember s.l. samþykkti stjómin fjárhagsáætlun fyrir þetta ár. Niðurstööutala rekstraráætlunar er liðlega 11,4 milljónir króna. Þaö er ekki nema u.þ.b. 0,54% af því fé sem ætlað var að stofnunin inn- heimti á árinu. Slíkur árangur væri satt að segja næsta undraveróur en þess ber að geta að vegna þess að forsendur áætlunargeróarinnar eru fyrsta rekstrarár stofnunarinnar er óvarlegt að ætla annað en að endur- skoða verói þessa áætlun á miðju ári. Enn er veriö að þróa innheimtu- kerfi staðgreiðsluskatta og þáttur í því er gíróinnheimta þeirra. Núver- andi fyrirkomulag er þannig að launagreiðandi greiðir skattinn inn á reikning Gjaldheimtunnar í næsta banka eða sparisjóði og skilagreinar með sundurliðunum berast henni síðan með pósti. Gjaldheimtan skil- ar síðan innheimtufé inn á reikning ríkissjóðs og Ríkisbókhald greiöir þaö til rétthafa vikulega. Svo viróist sem sveitarfélögin í landinu séu ánægð með þennan hátt og hefur Samband íslenskra sveitarfélaga beitt sér fyrir því að þessi háttur verói hafður á áfram. Eitt er þaö þó við þessa framkvæmd sem hefur verið mjög umdeilt en það er sú fyr- irætlan aö launagreiðendur greiði fé ekki til Gjaldheimtna heldur beint inn á reikning í Seölabanka íslands. Þótt undarlegt megi viróast hefur Samband íslenskra sveitarfélaga stutt þessar fyrirætlanir mjög dyggilega og ber fyrir sig að með þeim megi leysa á betri hátt nokkur tæknileg úrlausnarefni sem hafa þótt ljóður á framkvæmd innheimtu staðgreiðsluskatta. Mér finnst þetta mál snúast um það hvort fela eigi innlánsstofnunum um land allt aö varóveita skattléð þar til þaö er greitt rétthöfum þess, eða hvort það eigi að varóveitast í Seðlabankanum og þótt ljóst sé að hér er oft aðeins um fáa daga að ræða í einu þá er einnig ljóst aö vegna þeirra reglna sem Seðlabankinn setur um lausa- fjárhlutfall innlánsstofnana þá mun útlánageta þeirra minnka ef svona veróur farið að, því vona ég að þessi ágreiningur leysist farsællega. Annað er það sem nokkuð hefur skyggt á annars ágæta starfsemi Gjaldheimtunnar, en það er skortur á upplýsingaflæði frá þeim stofn- unum ríkisins sem annast um inn- heimtukerfin. Þar á ég einkum við Ríkisbókhald. Nú á reynslutíma staðgreiösluinnheimtunnar hefur starfsmönnum sveitarfélaganna oft þótt einkar torráðið hverju kerfið skilar þeim í tékjur frá einni viku til annarrar. Nokkuð hefur þótt uppá- komusamt í þessum efnum og leið- réttingar á tíöum valdið því að tekj- ur hafa verið langt frá þeirri áætlun sem starfsmenn sveitarfélaganna hafa veriö að reyna aö gera frá ein- um mánuði til annars. Leitað hefur verið eftir því að Ríkisbókhald sendi fulltrúa sína hingað þannig að halda megi upplýsingafund með þeim og þeim starfsmönnum sveit- arfélaganna sem halda utan um íjár- mál þeirra. Þetta hefur ekki tekist enn ogbera Ríkisbókhaldsmenn við gífurlegum önnum. Við þetta veró- ur þó ekki unað og er nokkur urgur í sveitarfélagamönnum útaf þessu. Undirritaður mun beita sér fyrir því að af slíkum fundi verói nú á allra næstu dögum. Ágætu fulltrúaráðsmenn, ég hef hér flutt alllangt mál en umfjöllun- arefni mín hafa eðlilega stafað frá því að Gjaldheimta Suðumesja er nú að slíta bamsskónum. Svo sem ég sagöi í upphafi var undirbún- ingstími að stofnun Gjaldheimtunn- ar sérlega skammur og því er ánægjulegt hve vel hefur tekist til um á hennar fyrsta rekstrarári. Ég vil láta í ljósi sérstakar þakkir til allra þeirra sem unnu að undirbún- ingi að stofnun Gjaldheimtu Suður- nesja, til meöstjórnarmanna minna, en ekki síst til Ásgeirs Jónssonar gjaldheimtustjóra og starfsfólks hans. Ég hef áður sagt, og ég endur- tek að eigendur þessarar stofnunar vænta sér mikils af henni og ég veit að þeir veróa ekki fyrir vonbrigð- um. Suðurnesjabúar Sendum ykkur bestu þjóöhátíöarkveöjur Gjaldheimta Suðurnesja Grundarvegi 23 — Njardvík Sími 92-15055 FAXI 123

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.