Faxi - 01.04.1989, Blaðsíða 4
FYRSTI ÍBÚI
Á SUÐURNES JUM
Frá Steinum (Leiru. Hér bjó Steinunn Gamlci, fyrsti (búi Sudumesja. Það er tilgáta Njáls að skáli Steinunnar hafi staðið, þar
sem veggjarústimar eru lengst til vinstri á myndinni.
Þaö er haft f'yrir satt, aö Steinunn
gamla frændkona Ingólfs Arnarson-
ar landnámsmanns hafi verið fyrsti
íbúi á Suðurnesjum. Ingólfur nam
land í Reykjavík árið 874. Ingólfur
helgaði sér allt land norðan vatna.
Ingólfur vildi gefa Steinunni gömlu
frændkonu sinni allt land frá
I Ivassahrauni og suður, norðan
megin við Faxaflóa, en Steinunn
vildi heldur gera við Ingólf kaup.
TUldi slíkt haldbetra er fram liði og
borgaði skagann með hlut, sem
,,flekka“ var nefnd. Enginn veit
með vissu hvað þessi hlutur var.
Kannski var þetta vaömálsflík eða
prjónaflík? bað má geta þess aö for-
menn notuð höfuðfat, sem náði yfir
allt höfuðið og niður á herðar. Það
voru aðeins göt fyrir augu, nef og
munn. Þetta var kallað ,,flekka“.
Svo breyttust þessar höfuðflíkur
og allt andlitið kom fram, þá var far-
ið að kalla þessar höfuðfiíkur hettur
og síðar lambhúshettur. Steinunn
gamla mun hafa byggt sér skála á
Steinum í Leiru, sem síðar hét
Hólmur og enn síðar Stóri-Hólmur.
120 FAXI