Faxi

Volume

Faxi - 01.04.1989, Page 12

Faxi - 01.04.1989, Page 12
Að gera sér dagamun fyrir 80 árum Þessi gamla mynd sem hér birtist er tekin fyrir réttum 80 árum, upp af Ytri Njarðvík á Hjallatúni, sumarid 1909. Þetta prúðbúna fólk sem hér má sjá, um 80-90 manns, úr Keflavík og Njarðvik, tók sig saman og fór með kajfi, súkkulaði og sœtabrauð, á sunnu- degi, fyrir ofan byggðina til samfundar á góðum degi. Það má vel sjá dúka, kaffikönn- ur og katla, og bretti til að hlífa prímusunum sem notaðir voru til upphitunar. Stefán Bergmann, myndasmiður, úr Kefla- vík, tók myndina. Hann var til húsa á horn- inu við Hafnargötu í Keflavík, þar sem Hörður rakari er nú. Heimir Stígsson, Ijós- myndari í Keflavík, tók eftir frummyndinni og stcekkaði hana. Upplýsingar um myndina og fólkið á henni eru fengnar hjá einni þeirra sem var með í þessari sunnudagsferð. Hún heitir Guðrún Ólafsdóttir, á Stoð í Ytri Njarðvík. Guðrún dvelur nú á Garðvangi, fœdd 7. júní 1896. Hún er ern þótt komin sé yfir nírcett og man þennan atburð vel, þá var hún sjálf 13 ára. Skal nú reynt að nefna þá sem Guðrún kannast við á myndinni, þótt vitaskuld kunni að vera að eitthvað sé ekki alveg rétt með farið, þá verður það bara leiðrétt síðar og marga vantar að nefna og suma er erfitt að þekkja á þessari gömlu mynd. Myndinni má skipta í fjóra hluta. í þeim fyrsta er fólk merkt 1-9, þeim nœsta 10-21, þeim þríðja frá 22-44 og í fjórða h/utonum er fólkið merkt 45-52. 1. hluti, neðri helmingur, vinstra megin. 1. Drengur með húfu (?) 2. Adda í Vík, Árný Olafsdóttir (f. 19(X), dó 1984) systir Guðrúnar. 3. Guðrún sjálf. 4. Elín (?), dóttir Þóru og Jóns, elsta systir Guðmundar, foður Ólafs Þ. Guðmundssonar, málara í Ytri Njarðvík. II. hluti neðst hœgra megin. 14. Anna dóttir Magnúsar á Flankastöðum (hún var með ,,lúpus“, eða húðsjúkdóm, í nefinu og var send til lækninga í Kaupmannahöfn). Hún missti móður sína, en Magnús giftist aftur. Hún átti Einar, kjötkaupmann á Laugavegi 28, fyrir albróður. Guðmundur Hannesson og Guðrún Jónsdóttir ólu hana upp. (sjá nr. 18). Guðrún Bergmann, sem nýlega lést í Keflavík, var líka alin upp hjá þeim. 15. Sigríður, Sigga, af Vatnsleysuströndinni, uppeldisdóttir Jóns Loftssonar og Marfu. 16. ? 17. Lilli (heldur á fötu fremst á myndinni), Guðmundur Jónsson, faðir Ólafs málara í Njarðvík. Foreldrar hans eru á myndinni nr. 41 og 42. 18. Fóstra Guðmundar Jónssonar, Guðrún Jónsdóttir og maður hennar sem var Guðmundur Hannesson, er hér á bak við hana nr. 18.a. 19. Marta Valgerður Jónsdóttir, símstjóri í Keflavík. Sú merka kona sem allir Faxa lesendur fyrri ára kannast vel við vegna skrifa hennar í blaðið um fólk frá liðinni tíð. 20. Drengur í röndóttri peysu, Sigurður, Siggi Bensi, Helgason, bjó uppi á loftinu í gamla skól- anum hjá Duus. Þeir voru margir bræðurnir, alltaf kallaðir „skólabræður". 21. Drengur með húfu og hvítan trefil, er sennilega Friðrik Þorsteinsson, sonur Bjargar Arinbjarnar- dóttur Olafssonar úr Innri Njarðvík. III. hluti myndarinnar, efst til hœgri. 22—23. Ingibjörg, en systir hennar var Eydís frá Nesjum í Sandgerði, Guðmundsdóttir og maður hennar Einar Jónsson (nr. 23) verslunarmaður í Duus, bróðir Olafs Hvanndal í Reykjavík. Þau áttu ekki börn. Einar er með gráa húfu og samlitan lrakka, heldur á bolla ( hægri hendi. Ingibjörg stendur við hlið hans. 24. ? 25—27. Sennilega fólk frá Vatnsnesi. 28. Kona efst á myndinni yst til hægri. Þórunn Bjarnadóttir, í Bakaríinu, systir fyrsta skólastjóra Sjómannaskólans, Magnúsar Bjarnasonar. Hún var gifti Arnbirni Olafssyni frá Árkelsstöðum í Rangár- vallasýslu, en hann var loðurbróðir Gissurar Bergsteinssonar, lögfræöings í Reykjavík. 29. Bjarnveig í Brautarhól (?). Hún var þá hjá Helgu systur sinni á Vatnsnesi. Giftist síðar Árna Grímssyni í Þórukoti. 30. (Erfitt að sjá, situr fyrir altan nr. 29). 31—32. Þórdís Einarsdóttir (kom að vestan), seinni kona Olafs Ofeigssonar, dóttir þeirra Halldóra (nr. 32?) giftist einum Zöega, en hin voru Bragi Olafsson, læknir á liyrarbakka, Ásgeir Olalsson, dýralæknir í Borgarfirði og Vilborg (Minní) sem fór til Reykjavíkur, og keyrði lengi bíl hjá verslun þar, hún giftist ekki, dó á Vífilsstöðum. 33—34. Jóna Sigurjónsdóttir, kennari í Kellavík, uppeldisdóttir Ambjöms og Þórunnar (nr. 28). Hún giftist síðar Olafi Þorsteinssyni, lrænda sínum (nr. 43) en Sesselja, móðir hans og Arnbjörn voru systkini. Olafur var verkfræðingur í Reykjavík hjá Guðjóni Samúelssyni, húsameistara rikisins, þeim lræga manni sem m.a. teiknaði Hallgrímskirkju, Þjóðleikhúsið og fleiri þekktar byggingar. Olafur dó á leiðinni til Færeyja, er hann var að fara erlendis til að leita sér lækninga. Systir Ólafs átti verslunina Sikk í Reykjavík, neöarlega á horni Vesturgötu. 35—36. Maður með hvítan hatt. Vilhjálmur Hákonarson, frá Stafnesi. Hann var 18 ár í Banda- ríkjunum. Kaupmaður í Kellavík. Kona hans (nr. 36) Eydís frá Nesjum (systir nr. 22). Hún var ófrísk af fyrsta barni. Þau eru aíi og amma Konráð Lúðvíkssonar, læknis í Keflavík. Guðrún, heimildar- maður var í vist hjá þeim („pían þeirra“) þegar Guðrún var aðeins 12 ára. 37-38. ? 39. Þóra, dóttir Þóru og Jóns, hún var eitthvaö fötluð. 40. Sennilega bn'xMr Þóru (nr. 39). 41—42. Þóra og Jón í „Eldhúsinu" í Kellavík, húsi sem var skammt frá skólanum. 43. ? 44. Ársæll Ágústsson f rá Höskuldarkoti í Ytri Njarðvik. Fór til Ameríku (Bellingham, í Washington fylki) giftist Arndísi (f. 1888) dóttur sr. Árna Þorsteinssonar frá Kálfatjörn. Hann er sonur hjónanna nr. 47 og 48. 45. Olalur Arnbjörnsson, giftist Guðrúnu úr Sandgeröi, börn þeirra í Keflavík eru Einar og Arnbjörn og Didda í „Bakaríinu", kona Helga S. IV. hluti myndarinnar, efri helmingur vinstra megin. 46. ? 47., Agúst Jónsson í Höskuldarkoti í Ytri Njarðvik, kennari og hreppstjóri. Hann þótti ákaflega guðrækinn. Hann var skáld gott og gagnmerkur maöur. 48. Guðleif, í Höskuldarkoti, kona hans. Hún var Ársælsdóttir, hálfsystir mömmu hans Magnúsar, í Höskuldarkoti, sem er faöir þeirra systkina Garðars, Ársæls, Olafs, og Onnu, sem búa í dag í Ytri Njarövík. 49. Gróa í Þórukoti í Ytri Njarðvík. 50. Björg (skyld Þórukotsfólkinu). Hún var móðir ()lafs Þorsteinssonar, og Ara og Friöriks, sem var organisti í Keflavík. 51. Sigurður Bjarnason (með kaffibolla), pakk- hússmaður í Edinborgarversluninni í Keílavík. Sonur hans hét Fjiríkur og dóttur átti hann líka, Elínu sem giftist trésmiði í Hafnarfiröi. 52. Ingibjörg Stefánsdóttir úr Stefánshúsi, mág- kona Lóu (Ingibjargar Danivaldsdóttur) sem þar býr nú. Hundurinn sem sést á miðri mynd og leikur svo listilegar kúnstir sínar fyrir Olaf (nr. 45) hét „Dóni“ og var úr Bakaríinu í Keflavfk. Hér var gréinilega ekkert kynslóðabil og enginn hrepparýgur ekki frekar en nú er þegar fólk úr Njarðvík og Keflavík kemur saman í þeim tilgangi að eiga góða stund saman. í dag vœri sennilega erfitt að kallu menn saman til svona tilbreytingar. Það þœtti ekki ýkja merkilegt að njóta náttúr- unnar við bœjarfótinn, prúðbúast og hafa svolítið fyrir þvi að gera sér dagamun með heitt súkkulaði og kökur og hvíta dúka þar sem flugvélar í dag þjóta yfir til lendingar og brottfarar. Um borð eru þeir sem eru að koma heim eða eru að flýta sér til Spánar í sólina og sumarylinn ogdúkurinn er kominn á veitingastað á Benidorm, þar sem nágrannur á nútímavisu, hitlast yftr bjórglasi og mcela á framandi tungum. En sama þörfin fyrir samfélag vina og kunninga er enn til staðar. Og hví ekki að taka upp þráðinn á ný og hóa saman fólki úr nágrannabyggðum hér upp í móa einn góðan veðurdag í sumar, með hvítan dúk og heitt súkkulaði, til þess að gera sér dagamunP Þorvaldur Karl Helgason, sóknurprestur í Njarðvfk. 128 FAXI

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.