Faxi - 01.04.1989, Qupperneq 22
Greinurhöfiindur
stendur hér vid
bœjarhúsin á Vatna-
görðum. Hér átti fadir
Njáls heima í eina
tfd.
MANNLÍF í GARÐI 1890
Lesandi góöur, síðast vorum við á
Steinsstöðum sem er utasta býlið í
Inn-Garði. Nú erum við komin á
Gerðaland, höldum í átt til sjávar og
komum að Skúlhúsum sem var
tómthús með grasbletti auk þess
höfðu þau útræði sem hét Skúl-
húsavör. Þar býr Guðmundur Jóns-
son 45 ára og Guðríður Þórðardóttir
bústýra 38 ára, einnig Æsa dóttir
þeirra 6 ára og synir þeirra Stefán 4
ára og Þorsteinn 1 árs. Þar bjuggu
Kka Benedikt Bjamason sjómaður
33 ára, Ragnheiður Magnúsdóttir
27 ára bústýra og Guðrún Halldórs-
dóttir húskona 47 ára.
Næst em Hjálmsstaðir, sem er
tómthús. Þar býr Hjálmar Eiríksson
sjómaður og smiður 36 ára. Ólöf
Guðmundsdóttir bústýra og ekkja
50 ára og dóttir hennar Sólveig
Kristjana Bjömsdóttir 7 ára. Þar em
einnig Jórunn Guðmundsdóttir
yfirsetukona 38 ára og dóttir hennar
Pálína Þórðardóttir 10 ára. Það má
geta þess að Jórunn Guðmunds-
dóttir varð síðar kona Jóns Ás-
mundssonar og bjuggu þau seinna á
Neðri-Rafnkelsstöðum í Garði. Jón
og Jórunn áttu einn son, athafna-
manninn Guðmund Jónsson. Hann
var útgerðarmaður og fiskverkandi
og kenndi sig alltaf við Rafnkels-
staði.
Næst komum við að Sighvatar-
húsi. Þar býr Sighvatur Gunnlaugs-
son, borgari, 36 ára og stundar
hann verslunarstörf, og Ingibjörg
Gísladóttir kona hans 34 ára, einnig
synir þeirra Halldór 3 ára og Gísli 1
árs. Þar em einnig Sighvatur Áma-
son uppeldisbam 8 ára, Sigurgeir
Ólafsson tökubam 14 ára, Elín
Finnsdóttir vinnukona 46 ára og
Sigríður Elín Þorsteinsdóttir vinnu-
kona 17 ára.
Annað býli, þar er búandi kona,
Margrét Gunnarsdóttir 62 ára og
stundaði hún sjávarútveg. Þar em
einnig Ingibjörg Steingrímsdóttir
fósturbam 5 ára, Högni Brynjólfs-
son vinnumaður 34 ára, Jóhanna
Jónsdóttir vinnukona 38 ára, Sig-
urður Erlendsson lausamaður og
sjómaður 60 ára, Guðrún Guðjóns-
dóttir vinnukona 38 ára, Einar
Sveinsson smiður 40 ára og Brand-
ur Jónsson tökubam 13 ára.
Rétt fyrir sunnan Sighvatarhús er
Mjösund og er það tómthús. Þar býr
Vigfús Sigurðsson trésmiður 30
ára, Stefanía Guðjónsdóttir bústýra
31 árs og Valgerður Jónsdóttir,
móðir Stefaníu, 68 ára.
Nú göngum við í suð-austur og
komum að Gerðaskóla. Hann var
byggður árið 1872, og er búið á lofti
skólahússins. Þar býr Sigríður
Finnsdóttir bústýra 29 ára og dóttir
hennar Sigríður Sigurðardóttir 8
ára. Þar em einnig Steinn Lárusson
sjómaður 37 ára og Hugborg Guð-
mundsdóttir húskona 41 árs. Þar
búa einnig Þórður Guðmundsson
skrifaður sjómaður 24 ára og kona
hans Þuríður Sæmundsdóttir 24
ára, synir þeirra em Ástfinnur
Frímann 3 ára og Magnús Vilmund-
ur á 1. ári.
Nú höldum við til norð-vesturs og
niður að sjó. Þar er Sjólyst, sem er
tómthús. Þar býr Andrés Ámason
sjómaður 42 ára, kona hans Þóra
Eiríksdóttir 28 ára og dóttir þeirra
Pálína sem er á 1. ári, einnig em þar
Jón Bjömsson vinnumaður 51 árs,
Guðrún Þorbjömsdóttir 71 árs móð-
ir Þóm, Jón Jónsson vinnumaður
25 ára og Jarðþrúður Bjömsdóttir
húskona 57 ára.
Rétt hjá Sjólyst er Sjóbúð. Þar býr
Jón Eyjólfsson húsbóndi og sjó-
maður 34 ára, Sólveig Jónsdóttir
bústýra 33 ára og bam þeirra Eyj-
Sjólyst í Garði. Hér bjó völva Suðumesja, Una í Garði.
138 FAXI